Saga - 1954, Side 44

Saga - 1954, Side 44
38 felli hafi, er hann var nokkuð hníginn á efra aldur, farið utan, fyrst til Noregs og þaðan gengið suður til Rómaborgar. Á heimleið tók hann sótt í Danmörku og lézt þar. Er hann sagð- ur hvíla í Hróarskeldu. Gellir var föðurfaðir Ara fróða, sem alkunnugt er, og hjá honum var Ari, þar til er Gellir fór utan síðasta sinni, sem verið hefur 1072, en 1073 sýnist hann hafa and- azt, svo sem í nokkurum annálum segir, sbr. og Islendingabók Ara 9. kap. Sagt er, að Gizur ísleifsson, síðar biskup, og Steinunn Þorgrímsdóttir, kona hans, hafi bæði farið suður til Rómaborgar (Biskupasögur I. 9). Gizur var farmaður mikill um eitt skeið æfi sinnar, og hafa þau hjón sennilega gengið suð- ur, meðan Gizur stundaði farmennsku, líklega milli 1070 og 1080. Annars segir ekkert frá því ferðalagi. Af suðurgöngum manna í þessum flokki á 12. öld eru nokkurar dreifðar sagnir. Árið 1118 segir, að Sigmundur Þorgilsson, austfirzkur höfðingi af Svínfellingakyni, hafi andazt í Rómför (Islendingasögur I. 279). Getið er Þórarins stuttfeldar skálds, er til Noregs kom á dögum Sigurðar konungs Jórsala- fara og gengið hafi suður (Islendingas. VII. 194). Hefur för sú verið farin nokkru fyrir 1130. Nikulás ábóti á Þverá, sem sagður er hafa sagt fyrir um suðurlönd og leiðir suðurgöngu- manna, kom út samkvæmt íslenzkum annálum árið 1154, að því er ætla má úr suðurgöngu. Hefur hann gengið suður um eða rétt eftir 1150. Á þessu ferðalagi hefur hann sennilega aflað

x

Saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.