Saga - 1954, Qupperneq 51
45
*
laust hefur verið í betri bænda röð, hafi farið
til Jórsala.
Árið 1241 skýtur upp manni, sem sýnist hafa
verið vestfirzkur og Jórsala-Bjarni er nefndur
(Sturlungas. II. 408). Sýnist maður þessi einn-
ig hafa verið í betri bænda tölu og virðist hafa
farið til Jórsala.
Loks segir, að Sighvatur Böðvarsson frá
Stað á Ölduhrygg, bróðir Þorgils skarða og
bróðursonur Sturlu lögmanns Þórðarsonar, hafi
farið Jórsalaför úr Noregi 1266, en hann and-
aðist í Rauðahafinu á leiðinni þangað (Sturl-
ungas. III. 364). Rauðahafið er, eins og kunn-
ugt er, milli Afríku og Asíu (Arabíu) og alls
ekki á þeirri leið, sem pílagrímar, sem komið
hafa frá Italíu eða af Balkanskaga, hafa farið
til Jerúsalem. Sögnin um andlát Sigmundar á
leiðinni til Jerúsalem er sjálfsagt sönn, en hitt
mun missögn vera, að hann hafi andazt í Rauða-
hafinu. Hann hefur sennilega andazt í Mið-
jarðarhafinu á leið frá Ítalíu eða Balkanskaga.
Þann varnagla verður að slá, að vel mega
suðurgöngumenn fleiri vera nafngreindir í
heimildarritum en hér eru taldir, þó að eg hafi
ekki rekið mig á þá. En naumast eru þeir þó
margir. Skiptir það og eigi miklu, enda er tak-
markið með greinarkorni þessu að veita ein-
ungis nokkra yfirsýn um ferðir þessar, takmark
þeirra og þýðingu.
Eivur Amórsson.