Saga - 1954, Page 56

Saga - 1954, Page 56
50 að láta ekki undir höfuð leggjast að messa þar á jólunum og segir, að hann geti jafnvel flutt þangað messu frá Sjávarborg, en séra Jón Gunn- arsson, tengdafaðir hans, sem þá hefur verið fluttur til hans, geti lesið guðspjallið heima í Fagranesi. Bendir þetta til, að eitthvað hafi biskupi þótt hann daufur eða undarlegur í hátt- um. Þjóðsögur geta og um alls konar illindi, sem hann á við sóknarfólk sitt á þessum slóð- um, og er þar einkum tilnefndur Eyjólfur nokk- ur Grímólfsson bóndi að Fossárteigi (= Fossi?) á Reykjaströnd. En víst er um það, að átt hefur hann í útistöðum við Einar nokkurn Einarsson bónda á Skarði, því að í bréfabók Gísla biskups getur þess, að 7. október 1670 hafi fyrir milli- göngu Hallgríms prófasts Jónssonar í Glaum- bæ og fleiri góðra manna verið gerð sætt þeirra. Er því ekki ólíklegt, að séra Árni hafi hrökkl- azt burt frá Fagranesi fyrir óvinsældir, sem að einhverju leyti kunna að hafa stafað af geð- brestum hans, og orðið feginn að hafa brauða- skipti við séra Þorstein á Hofi, en síðan hafi brátt sótt í sama horfið, er þangað kom. Nafngreindir eru f jórir ákærendur séra Árna, þeir Jón Egilsson, Halldór Jónsson, Sigurður Jónsson og ívar Ormsson. Þrír hinir fyrst töldu voru lögréttumenn, og má af því marka, að það voru engir kotbændur, sem að ofsókninni stóðu. Kærurnar voru af þeirri tegund, sem algengust var: tjón á gripum, veikindi á konum og börn- um, hrakningar á sjó, truflun á heimilisfriði o. s. frv. Um ákærurnar má lesa nánar í bók ólafs Davíðssonar: Galdur og galdramál á ís- landi, bls. 304—306. Það er athyglisvert, að

x

Saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.