Saga - 1954, Page 60
54
menn, þar á meðal prestinn á Eiðum, sem tal-
inn er að vera séra Halldór Eiríksson. Einnig
er hún látin tortíma skipi á útsiglingu, vegna
þess að hún reiðist við kaupmanninn, selja mýs
fyrir sauði og leggja inn grjót fyrir smjör og
ost í kaupstaðnum o. s. frv.
Um þessar sögur allar er það að segja, að
þær eru auðsær tilbúningur. Við þá sögu, er
hún er látin reyna að fyrirfara séra Árna, koma
menn, sem ekki eru samtímamenn þeirra. Um
tengdasynina, sem báðir áttu að vera giftir
Þuríði dóttur hennar, er það að segja, að Þuríð-
ur var aðeins eingift og missti mann sinn, Guð-
mund Oddsson frá Húsavík, í snjóflóði kring-
um 1690. Séra Halldór Eiríksson var ekki prest-
ur á Eiðum, heldur Hjaltastað. Hann deyr af
fótarmeini 1698, og er Ingibjörg þá sennilega
dáin. Þó hefur þessi saga komizt inn í Mælifells-
annál, og er ekkert sennilegra en Gísli Konráðs-
son hafi stungið henni þangað inn. Skipskað-
inn, sem madama Ingibjörg er talin að hafa
valdið með göldrum sínum, verður 1726, en það
er 20—30 árum eftir dauða hennar. Ekki er
hún að minnsta kosti finnanleg í manntalinu
1703 og er þá efalaust látin.
Það er algeng galdrasaga, að menn voru látn-
ir reka mýs í kaupstað fyrir sauði, og er þeim
orðrómi dreift um ýmsa, m. a. Þorvald Rögn-
valdsson á Sauðanesi, Jón í Dalhúsum í Suður-
Múlasýslu og fleiri. Hefur sú saga sennilega
verið vinsæl meðal almennings, þar sem hún
sýndi eða átti að sýna, að til væru menn og kon-
ur, sem gátu náð sér niðri á dönsku verzlunar-
stéttinni.
I Þjóðsögum ólafs Davíðssonar er madama