SunnudagsMogginn - 16.05.2010, Síða 8
8 16. maí 2010
Englendingar binda miklar vonir við
landslið sitt á heimsmeistaramótinu
sem hefst í Suður-Afríku eftir fjórar vik-
ur. Engum blöðum er um það að fletta
að Frank Lampard verður þar í lyk-
ilhlutverki enda svellur honum móður
þessi dægrin eftir stórbrotið gengi und-
anfarnar vikur og mánuði. Heimurinn
ætti að búa sig undir Frank Lampard í
ham.
Hann lék sinn fyrsta landsleik gegn
Belgum haustið 1999 og hefur alls
skrýðst ljónatreyjunni 77 sinnum og
skorað 20 mörk. Lengi vel gekk hon-
um illa að festa sig í sessi í landslið-
inu, einkum vegna Pauls Scholes sem
lék í sömu stöðu, og var hvorki valinn í
hópinn fyrir Evrópumeistaramótið 2000
né heimsmeistaramótið tveimur árum
síðar. Það var ekki fyrr en á EM 2004
að Lampard þreytti frumraun sína á
stórmóti. Gerði þar þrjú mörk í fjórum
leikjum. Enn og aftur lutu enskir í gras
eftir vítaspyrnukeppni.
Síðan hefur Lampard átt fast sæti í
enska landsliðinu enda þótt gengi
hans hafi verið misjafnt. Tvö ár liðu til
að mynda milli marka (2007-09) og í
leik gegn Eistum haustið 2007 varð
Lampard fyrir þeirri niðurlægingu að
stuðningsmenn liðsins brugðu sér í
beljulíki í hvert skipti sem hann fékk
knöttinn.
Allt annað var upp á teningnum í
undankeppni HM, þegar Lampard og
Englendingar fóru á kostum undir
stjórn nýs þjálfara, Fabios Capellos.
Okkar maður var með tvö mörk þegar
England tryggði sér farseðilinn til Suð-
ur-Afríku með því að húðstrýkja sína
fornu fjendur Króata, 5:1.
Undanfarin ár hefur hver landsliðs-
þjálfarinn af öðrum glímt við sama höf-
uðverkinn: Hvernig á að koma Frank
Lampard og Steven Gerrard fyrir í
sama liðinu svo báðir fái notið sín? Af
undankeppninni að dæma hefur Ca-
pello leyst þann vanda.
Hafa ljónin loksins heppnina með sér?
Lampard gleðst innilega í landsleik með Englandi. Crouch og Beckham er einnig skemmt.
Reuters
Þ
að sætir jafnan tíðindum þegar mið-
vellingur rýfur tuttugu marka múr-
inn í ensku knattspyrnunni. Bryan
Robson, David Platt og Paul Gas-
coigne, sem í minningunni voru drjúgir
markaskorarar, gerðu þetta aldrei. Paul Scholes
hefur aðeins gert þetta einu sinni. Frank Lamp-
ard, miðvellingur nýkrýndra Englandsmeistara
Chelsea, hefur nú sett nýtt viðmið í þessum
efnum – vann það einstaka afrek á þessari leik-
tíð að skora tuttugu mörk eða meira í öllum
keppnum fimmta árið í röð. Árið þar á undan
skoraði kappinn nítján mörk. Í vor bætti
Lampard svo enn einni rós í hnappagatið þegar
hann fór yfir tuttugu mörk í úrvalsdeildinni.
Þess ber að geta að Lampard hefur fengið
stífa samkeppni á markalistanum frá Steven
Gerrard, fyrirliða Liverpool, á þessum tíma en
hann hefur skorað á þriðja tug marka þrisvar á
undanförnum fimm árum. Raunar er eins og
miðvellingar séu almennt að færa sig upp á
skaftið í þessu tilliti en Cesc Fàbregas, fyrirliði
Arsenal, skoraði nítján mörk í vetur og hefði án
efa rofið tuttugu marka múrinn hefði hann ekki
fótbrotnað í lok mars.
Lampard, sem verður 32 ára í sumar, hefur
nú gert 196 mörk í 669 leikjum fyrir West Ham
United, Chelsea og Swansea (þar sem hann lék
níu leiki sem lánsmaður fyrir fimmtán árum).
Hann er markahæsti miðvellingurinn í sögu
ensku úrvalsdeildarinnar, sem sett var á lagg-
irnar 1992, með 129 mörk, og þriðji markahæsti
leikmaðurinn í sögu Chelsea með 157 stykki.
Markahæsti leikmaður Chelsea frá upphafi er
Bobby Tambling sem gerði 202 mörk á árunum
1959-70. Annar á þeim merka lista er Kerry
Dixon með 193 mörk.
Enda þótt markheppni Lampards sé með
ólíkindum segir hún ekki alla söguna um kosti
hans á velli, undanfarin sex ár hefur hann
nefnilega lagt að meðaltali upp fimmtán mörk
fyrir félaga sína. Flest í vetur, eða tuttugu. Eig-
ingirninni er með öðrum orðum ekki fyrir að
fara hjá kappanum.
Ber er hver að baki …
Fyrstu tvö árin sem Lampard var hjá Chelsea
gerði hann samtals fimmtán mörk en þriðja ár-
ið tók hann mikinn kipp og skoraði önnur
fimmtán. Það er líklega engin tilviljun að sá
kippur kom í kjölfar komu franska landsliðs-
mannsins Claudes Makélélés til félagsins en
hann er af mörgum talinn fremsti varnar-
miðvellingur sinnar kynslóðar í heiminum.
Frakkinn smávaxni sat af yfirvegun í holunni
fyrir framan vörnina, sama á hverju gekk, og
gaf Lampard svigrúm til að stinga sér fram án
þess að allt færi í voða. Við þessu hlutverki tók
síðan Ganabúinn Michael Essien og að stórum
hluta Nígeríumaðurinn John Obi Mikel í vetur.
Ber er hver að baki nema sér bróður eigi.
José Mourinho og sporgöngumenn hans voru
fljótir að átta sig á því að Lampard væri einstök
markalind og ætti hann að njóta sín til fulls
þyrfti mann af þessu tagi honum við hlið. Þegar
Mourinho innleiddi tígulmiðjuna góðu hjá
Chelsea setti hann raunar Eið Smára Guðjohn-
sen upphaflega með góðum árangri á oddinn en
á öðru tímabili Portúgalans fékk Lampard það
hlutverk og hefur haft það síðan. Vegna þess að
Mourinho er varkár maður að eðlisfari (það er í
æði en ekki orði) varð Eiður Smári hins vegar
fljótt að víkja fyrir betri varnarmanni, Essien.
Talandi um kosti Franks Lampards þá eru fá,
ef nokkurt, dæmi um eins slitgóðan leikmann.
Hann meiðist hér um bil aldrei enda þótt hann
hái sína hildi þar sem mest liggur við, á miðjum
vellinum. Ef undan er skilið tímabilið 2007-08,
þegar hann missti af fjórtán leikjum vegna
meiðsla, hefur Lampard varla orðið misdægurt.
Á níu árum á Stamford Bridge hefur hann leikið
að meðaltali 52 leiki á vetri og hálfum betur.
Ekki kemur á óvart að hann á metið yfir flesta
úrvalsdeildarleiki í röð, 164.
Ætla mætti að slíkt álag væri farið að taka
sinn toll, maðurinn er kominn á fertugsaldur.
Öðru nær, ef marka má framgöngu Lampards á
leiktíðinni sem lýkur nú um helgina með bik-
arúrslitaleik gegn Portsmouth. Tölfræðin
bendir til þess að hann hafi aldrei verið betri.
Markverðir úrvalsdeildarinnar þurfa því enn
um sinn að hirða þremufleyga hans úr netinu –
a.m.k. tuttugu sinnum á vetri.
Endur-
skrifar
söguna
Frank Lampard
aftur og enn
iðinn við kolann
Frank Lampard fagnar einu af 27 mörkum sínum fyrir Englandsmeistara Chelsea á leiktíðinni.
ReutersVikuspegill
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Frank James Lamp-
ard fæddist 20. júní
1978. Faðir hans,
Frank Lampard eldri,
var einnig knatt-
spyrnumaður, enda
þótt hann væri ekki
jafnskæður upp við
mark andstæðing-
anna og sonurinn,
gerði aðeins átján
mörk á jafnmörgum
árum. Lampard hefur
unnið þrjá meist-
aratitla með Chelsea,
enska bikarinn og
deildabikarinn í tví-
gang hvorn.
Föður-
betrungur