SunnudagsMogginn - 16.05.2010, Blaðsíða 20
20 16. maí 2010
trú á þessu verkefni. Það er óhætt að segja að við höf-
um vaðið eld og brennistein til að gera þessa mynd að
veruleika.“
CAOZ fékk meðframleiðendur í Þýskalandi, Ulysses
Filmproduktion og Magma Productions, og víðtækur
stuðningur kvikmyndasjóða hefur fengist við verk-
efnið. Það eru Kvikmyndamiðstöð Íslands, Eurimages,
NFTF, Media, Nordmedia, Irish Film Board og Hamb-
urg FF, sem leggur mest í púkkið, tæp 24%. „Við erum
í sjóðbisness,“ segir Arnar kíminn.
Aðrir sem leggja hönd á plóginn eru íslenska iðn-
aðarráðuneytið, framleiðendur og fjárfestar, auk þess
sem forsala er á bak við 10% af kostnaði en myndin
hefur þegar verið seld til 26 landa í Evrópu, Asíu og
Suður-Ameríku.
„Erlenda fjármagnið hjálpar heilmikið til við dreif-
ingu og er um leið viðurkenning á því að myndin á er-
indi á erlendan markað,“ segir Arnar en heimssölu- og
dreifingaraðilinn, Cinepool, áformar að selja Þór til
a.m.k. eitt hundrað landa. Liður í því átaki er rækileg
kynning á myndinni á kvikmyndahátíðinni í Cannes
sem hófst í vikunni.
Þór – í heljargreipum kemur upphaflega út á ís-
lensku, ensku og þýsku en fastlega má búast við að
myndin verði síðar talsett á fleiri tungumálum.
Vegna umfangs verkefnisins þurfti CAOZ að und-
irgangast verklokatryggingu hjá European Film Bonds
og þarf að skila af sér mánaðarlegum skýrslum um
verkframvindu og fjárhag. Verkefnið er baktryggt af
hópi tryggingarfélaga. „Þetta krefur okkur um mikinn
aga og innri endurskoðun,“ segir Arnar.
25 útgáfur af handriti
Það var ekki bara lögð mikil vinna í fjármögnun
myndarinnar. Nostrað hefur verið við listrænu hliðina
líka. Þannig hefur sagan verið endurrituð fimmtán
sinnum og 25 útgáfur gerðar af handritinu. „Og sagan
hefur batnað í hvert einasta skipti,“ segir Gunnar
Karlsson.
Arnar segir þá ekki hafa viljað kasta til höndunum í
handritsgerðinni enda breyti menn ekki svo miklu í
klippingu eftir á þegar um teiknimynd er að ræða.
Erlendir sérfræðingar hafa farið yfir handritið,
menn sem m.a. hafa unnið við myndir á borð við
Pocahontas, Mulan og Shrek.
Tólf útgáfur af söguhetjunni hafa orðið til á þróun-
arskeiðinu og Þór yngst allnokkuð í leiðinni. Nú er
handritið hins vegar endanlega tilbúið. „Kannski eins
gott, hefðum við haldið áfram að skrifa hefði Þór
örugglega endað í vöggu,“ segir Óskar sposkur.
Leikstjórinn kom af fullum krafti inn í ferlið á síð-
asta ári og leist strax vel á. „Ég sá að þarna var eitthvað
með viti enda þótt við ættum eftir að krukka heilmikið
í söguna eftir það. Mig óraði samt aldrei fyrir því hvað
umfangið átti eftir að verða stórt og mikið. Leikstjóri
teiknimyndar gerir ýmislegt fleira en að leika sér í
tölvunni, skal ég segja þér. Þetta er meiri vinna en að
leikstýra venjulegri mynd.“
Avatar afdrifarík
Upphaflega var áformað að gera Þór með venjulegri
þrívíddartækni en eftir að Avatar kom til sögunnar í
svokallaðri „stereoscopic-tækni“ þurfti að hugsa það
mál upp á nýtt. „Í raun var ekkert að hugsa, við áttum
ekki annarra kosta völ en að hlaupa á eftir mark-
aðnum. Eftir Avatar verður ekki aftur snúið. Krafan er
skýlaus – þrívíddarmyndir verða að vera „stereosco-
pic“,“ segir Hilmar. Menn brettu því bara upp ermar.
Að sögn Hilmars kostaði þessi kúvending um 180
milljónir króna. Meðal annars þurfti að sækja tvo er-
lenda sérfræðinga á sviði „stereoscope“ til að snúa
framleiðsluaðferðinni við. „Þetta eru ráðgjafar í ste-
reó, þess vegna voru þeir tveir,“ segir Arnar léttur.
Gunnar heggur í sama knérunn. „Nú á bara eftir að
finna fjórðu víddina í kvikmyndum. Við Hilmar höfum
tekið að okkur að gera það.“
Nú ranghvolfir Arnar augunum. „Það vísindastarf
hefur raunar ekkert með bíómyndir að gera – bara
viskí.“
Það er gott að menn hafi ekki tapað kímnigáfunni á
þessum galeiðuróðri.
Sérmenntaðir komnir heim
Framleiðsla Þórs – í heljargreipum fór á fullan skrið sl.
haust og eftir áramót flutti CAOZ í nýtt og betra hús-
næði á Skúlagötu. Núna vinna 58 manns að framleiðslu
myndarinnar í stúdíóum í fjórum löndum. Þegar mest
verður í haust verða 80 manns í fullu starfi við að búa
myndina til.
CAOZ er eina fyrirtækið sinnar tegundar hér á landi
og Hilmar segir Þór einstakt tækifæri fyrir Íslendinga
sem hafa menntað sig og starfað við tölvuteikni-
myndagerð erlendis til að snúa heim. „Þannig náðum
við í fólk frá Kanada, Bandaríkjunum, Svíþjóð, Írlandi,
Danmörku og Englandi. Í raun má segja að við séum að
byggja upp þennan bisness hér heima með svipuðum
hætti og CCP hefur byggt upp tölvuleikjabisnessinn.
Þetta er sprotastarfsemi.“
Ýmis hliðarverkefni tengjast kvikmyndinni. Má þar
nefna bækur. Fyrsta bókin um Þór hefur þegar selst í
4.000 eintökum á Íslandi og er að koma út í Svíþjóð
um þessar mundir. Önnur bókin er væntanleg hér
heima í haust. Einnig er Þór á iPhone/iPad kominn út
og netsamfélag í vinnslu. Þá munu samningar um fleiri
tengdar vörur vera í farvatninu.
Spurðir hvort þeir ætli að halda áfram á sömu braut
reka framleiðendur myndarinnar um Þór upp stór
augu. „Að sjálfsögðu. Eftir alla þessa vinnu kemur
ekkert annað til greina,“ segir Arnar og Hilmar bætir
við að af nægu sé að taka. „Enska yfirskriftin verður
„Legends of Valhalla“ og það rúmast býsna margt
undir henni. Við erum rétt að byrja.“
Morgunblaðið/Ernir
Helstu aðstandendur Þórs. Hilmar Sigurðsson framkvæmdastjóri CAOZ, Karólína Stefánsdóttir verkefnastjóri, Gunnar
Karlsson listrænn stjórnandi, Arnar Þórisson framleiðandi og Óskar Jónasson leikstjóri.
Þrymur og Sindri ráða ráðum
sínum í Jötunheimum.