SunnudagsMogginn - 16.05.2010, Blaðsíða 22
22 16. maí 2010
Á
meðan til eru myndir þá verð-
ur hátíð,“ segir Hálfdán Ped-
ersen, kvikmyndagerð-
armaður og einn aðstandenda
Skjaldborgar hátíðarinnar, þar sem ís-
lenskar heimildarmyndir eru sýndar. Há-
tíðin er árleg og verður haldin í fjórða sinn
á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina. „Við
erum búin að fá heilmikið af myndum og í
raun fleiri en við höfum tök á að sýna.
Þessi hátíð verður jafn flott, ef ekki flottari
en fyrri ár,“ segir Hálfdán. Mikil umræða
hefur verið um niðurskurð í greininni, en
það virðist ekki koma niður á hátíðinni, að
minnsta kosti ekki í ár. „Þrátt fyrir
ástandið er enn verið að búa til heim-
ildamyndir,“ segir Hálfdán.
Kvikmyndagestum gefst færi á að sjá
bæði nýjar og eldri íslenskar heimild-
armyndir, sem þeir í sumum tilfellum
hefðu annars ekki átt kost á að sjá. Að-
standendur eru bæði frá Reykjavík og Pat-
reksfirði og hafa átt góða samvinnu við
heimamenn, sem hafa lagt mikið af mörk-
um til að gera hátíðina sem veglegasta.
Í raun má kalla Skjaldborgarhátíðina
uppskeruhátíð íslenskra heimildamynda
og þangað eru allir velkomnir. Síðustu ár-
in hafa tæplega hundrað íslenskar heim-
ildarmyndir verið frumsýndar á hátíðinni,
auk þess sem valdar eldri myndir hafa
verið á dagskránni. Þar hafa einnig verið
sýnd sýnishorn af myndum í vinnslu og
leikstjórar setið fyrir svörum. Hálfdán
segir mikla eftirspurn hafa verið eftir að fá
myndir sýndar á hátíðinni.
„Því miður höfum við stundum þurft að
vísa myndum frá sem við hefðum gjarnan
viljað sýna, dagskráin hefur bara sprungið
og jafnvel orðið of löng. Að þessu sinni var
lokafrestur til 1. maí og engar myndir til-
kynntar fyrir þann tíma.“
Heillaðist af bíóinu
Hugmyndin að hátíðinni kviknaði þegar
Hálfdán var staddur á Patreksfirði. „For-
eldrar mínir eiga þar hús, ég var að kynna
mér bæinn og fékk í leiðinni að kíkja inn í
bíóið á Patreksfirði, Skjaldborgarbíó. Ég
heillaðist alveg af því og komst að því að
þar væri lítið af sýningum. Ég hafði sam-
band við Huldar vin minn Breiðfjörð,
sagði honum frá þessu og okkur datt í hug
að gaman væri að vera með hátíð þarna og
nýta bíóið. Við spáðum í alls kyns form af
hátíðum og okkur fannst heimild-
armyndageirinn eiga það inni að fá sína
eigin hátíð því við vissum að þar var mikil
gróska. Geir Gestsson á Patreksfirði hafði
komið mest að uppbyggingu og rekstri á
bíóinu, við töluðum við hann og hann
varð strax spenntur. Saman fórum við á
fund bæjarstjóra og úr varð hátíð. Þetta
var í árslok 2006 og í maí 2007 var fyrsta
hátíðin haldin.“
Hálfdán segir framlag Geirs kraftaverki
líkast. „Því miður er hann ekki virkur
þátttakandi lengur, því hann hefur öðrum
hnöppum að hneppa, en það var alveg
ótrúlegt hvað hann náði að komast yfir
mikið. Í stað hans hefur slegist í för með
okkur góður hópur af fólki á Patreksfirði,
alveg gríðarlega öflugur.“
Fyrsta árið voru 27 íslenskar heimild-
armyndir sýndar, þar af var 21 frumsýnd.
Síðan hefur hátíðin vaxið og dafnað. Hálf-
dán segir það ánægjulega þróun að fólk sé
farið að líta á hátíðina sem góðan stað til
að frumsýna myndirnar sínar, fólk sé farið
að sækjast eftir frumsýningu á Skjaldborg
þó að það eigi kost á að frumsýna í Reykja-
vík.
Flóra heiðursgesta
Sú stefna var strax tekin að hafa heið-
ursgest á Skjaldborg. Öll árin hafa það
verið afkastamiklir kvikmyndagerð-
armenn, sem hafa verið viðstaddir hátíð-
ina og setið fyrir svörum um myndir sínar
og kvikmyndagerð almennt. Fyrsta árið
var Þorsteinn Jónsson heiðursgestur og
voru sex heimildarmyndir hans frá átt-
unda áratugnum sýndar, auk nýjustu
myndar hans, Annað líf Ástþórs. Árið eftir
kom hinn virti kvikmyndagerðarmaður
Albert Maysles og voru fjórar myndir hans
sýndar. Maysles ræddi við gesti um kvik-
myndagerð og skemmti sér svo fram á
nótt á Patreksfirði áður en hann hélt aftur
vestur um haf. Í fyrra var Þorfinnur
Guðnason heiðursgestur og voru sýndar
sex myndir hans, þar á meðal Drauma-
landið. Í ár verður það færeyska kvik-
myndagerðarkonan Katrin Ottarsdottir. Á
meðal þekktari mynda hennar eru Atl-
antic Rhapsody og Bye Bye Bluebird, en sú
mynd hlaut hin eftirsóttu Tiger-verðlaun
á kvikmyndahátíðinni í Rotterdam. Á
Uppskeru-
hátíð íslenskra
heimildar-
mynda
Skjaldborg, hátíð íslenskra heimilda-
mynda, verður haldin í fjórða sinn í þess-
um mánuði á Partreksfirði. Hátíðin hefst
21. maí og stendur til 24. maí.
Nanna Gunnarsdóttir
Einarinn
Áhorfendaverðlaun Skjaldborgar hafa verið veitt frá upphafi. Þau hafa gengið undir nafn-
inu Einarinn, því Einar Skarphéðinsson, smíðakennari á Patreksfirði, hefur hannað og
smíðað verðlaunagripinn. Áhorfendur kjósa um bestu myndina og úrslitin eru svo til-
kynnt á lokakvöldinu, áður en alvöru dansiball hefst í félagsheimilinu á Patreksfirði þar
sem gestir og heimamenn skemmta sér saman.
Þær myndir sem hafa verið valdar besta mynd Skjaldborgar eru:
Árið 2007: Sófakynslóðin, í leikstjórn Áslaugar Einarsdóttur og Garðars Stefánssonar.
Árið 2008: Kjötborg, í leikstjórn Helgu Rakelar Rafnsdóttur og Huldu Rósar Guðnadóttur.
Árið 2009: Konur á rauðum sokkum, í leikstjórn Höllu Kristínar Einarsdóttur.
Teitur Atlason, kynnir
hátíðarinnar í fyrra.
Sjávarréttarveislu
var haldin í Sjó-
ræningjahúsinu.
Leikstjórinn Al-
bert Maysles
sat fyrir svörum.
Haus