SunnudagsMogginn - 16.05.2010, Qupperneq 23
16. maí 2010 23
Línudans
Myndirnar á
hátíðinni
Amma
Backyard
Beyond Strength
Björgunarafrekið við Látrabjarg
Brautin
Burkina Faso 8600 km
Faceland
Frelsi
Friur fantasiur
Garðarshólmi
GusGus – Make Them Soft
Imbinn
Ísland Úganda
Íslenzk menning: 3. byndy
Liljur vallarins
Línudans
Meinvill í myrkrunum lá
Með hangandi hendi
Skaftfellingur
Skarfar
Stafræna holan
Súðbyrðingur
Útrás eldri borgara
Frelsi
Skjaldborg
Beyond
strength
Brautin
Burkina Faso
Íslensk
menning
Backyard
Faceland
Skarfar
Skjaldborgarhátíðinni verður sýnd heim-
ildarmynda triologia eftir hana um þrjá
færeyska listamenn. Auk þess mun Katrin
sitja fyrir svörum og ræða við gesti.
Framlag heimamanna
Það má segja að hátíðin sé um margt mjög
sérstök, ekki síst fyrir gestrisni heima-
manna og örlæti. Ekki aðeins er boðið upp
á fríar kvikmyndasýningar frá morgni til
kvölds, heldur er gestum einnig boðið í
mat bæði á föstudags- og laugardags-
kvöldi.
Lionsklúbbur Patreksfjarðar hefur séð
um Skjaldborgarbíó um langt árabil og
standa þeir vaktina sem fyrr í húsinu og
sjá um að allt sé klárt fyrir og yfir hátíðina.
Kvenfélagið á Patreksfirði sér svo um hina
árlegu plokkfiskveislu og reiðir fram með
honum dýrindis heimabakað rúgbrauð.
Grillveisla Skjaldborgar hefur undanfarin
tvö ár verið haldin í Sjóræningjahúsinu á
Patreksfirði. Þá hefur m.a. verið boðið upp
á fisk frá fiskvinnslufyrirtækinu Odda,
krækling úr Arnarfirði, rækjur og fleira og
allir fengið nóg að borða.
Fjölmörg fyrirtæki á svæðinu styðja við
hátíðina með einum eða öðrum hætti, sem
og bæjaryfirvöld. ,,Við höfum fengið alveg
frábær viðbrögð frá heimamönnum, segir
Hálfdán., Ef einhverju er ábótavant, þá er
það kannski hvað heimamenn koma lítið í
bíó. Hátíðin er fyrir alla, ekki síður heima-
menn en aðkomufólk og það hefur
kannski ekki komist nægilega vel til skila,
segir Hálfdán.
Þess má kannski til gamans geta að
kvikmyndaleikarinn Brian Cox sat meðal
gesta árið 2008 og gæddi sér á grilluðu
sjávarfangi í Sjóræningjahúsinu en hann
var þar á ferð í tengslum við gerð kvik-
myndarinnar The Good Heart eftir Dag
Kára Pétursson sem var nýlega frumsýnd á
Íslandi.
Hámenningarleg og sveitó
Hátíðin er í senn hámenningarleg og
sveitó og líklega með vilja gert. Sýndar eru
myndir af öllu tagi, stuttar, langar,
skrýtnar, fyndnar, sorglegar, furðulegar.
Þarna er öll flóran.
Sýningarnar fara fram í einu elsta starf-
andi bíói á Íslandi, en það tekur 180 manns
í sæti. Umferðin er mikil inn og út. Gestir
velja sér sjálfir hvaða myndir þeir vilja sjá
og hverjar ekki. Í upphafi hverrar sýn-
ingar fer fram stutt kynning og stundum
er spjallað við leikstjórann fyrir sýningu,
þannig að áhorfendur fá smjörþefinn af
því sem er í vændum. Ásgrímur Sverr-
isson hefur séð um pallborð og umræður
við kvikmyndagerðarmenn. Andrúms-
loftið er afar frjálslegt og hressandi og á
kvöldin hittist fólk að loknum löngum
kvikmyndadegi og skemmtir sér saman,
hvort sem er á veitingastaðnum Þorpinu,
Sjóræningjahúsinu eða fer í ferðir eða aðra
afþreyingu sem heimamenn hafa boðið
upp á. Sumir fara á sjóstöng á meðan aðrir
fara að skoða Látrabjarg eða aðra staði í
nágrenninu. Einn anga hátíðarinnar mátti
sjá í Ríkissjónvarpinu í vetur þegar ís-
lenskar heimildarmyndir voru sýndar á
þriðjudagskvöldum. ,,Ásgrímur Sverr-
isson og Herbert Sveinbjörnsson gerðu
mynd um hátíðina í fyrra, sem var upp-
hafsmynd heimildamyndarvetrar á Rúv.
Þær myndir sem þar voru sýndar komu
allflestar frá hátíðinni og við vonum að
með hátíðinni séum við með smávakningu
fyrir heimildamyndargeiranum,“ segir
Hálfdán.
Ánægjan stendur upp úr
En hvað skyldi standa upp úr eftir þessar
þrjár hátíðir? ,,Við erum náttúrlega mjög
stolt af því að hafa komið þessu á fót,“
segir Hálfdán. ,,Ég held það sé nú bara
helst ánægja gestanna og þeirra sem sýna
sem stendur upp úr. Á hverri hátíð eru
einhver atvik skemmtilegri en önnur en á
heildina litið er það hvað hátíðin hefur
fallið í góðan jarðveg. Bæði það að drífa
fólk út úr bænum og að finna vettvang þar
sem fólk getur sýnt sínar myndir fyrir
áhugasama. Við erum stolt af því að geta
boðið upp á þennan viðburð svona langt
frá Reykjavík, þar sem flestir aðstand-
endur myndanna búa, en það virðist ekki
hafa nein áhrif þó að fólk þurfi að ferðast
langan veg og leggja mikið á sig.“
Hálfdán ítrekar að hátíðin sé alls ekki
einkapartí kvikmyndagerðarmanna og
hvetur alla til að koma í bíó á Patreksfirði
um hvítasunnuhelgina. Þeir sem vilja
kynna sér dagskrána geta lesið um hana á
heimasíðu hátíðarinnar: skjaldborgfilm-
fest.com