SunnudagsMogginn - 12.09.2010, Blaðsíða 19

SunnudagsMogginn - 12.09.2010, Blaðsíða 19
12. september 2010 19 „Við vorum einmitt að fást við þennan skort á reglum og við- miðum í uppsveiflunni og hruninu. Með sama hætti verðum við að passa upp á háskólastarfið,“ segir Inga Dóra Sigfúsdóttir. að verða kennari þegar ég var sjö ára og „vera góð við börnin“. Kannski er það bara það sem ég er,“ segir hún bros- andi. Það var því fyrir hálfgerða tilviljun að stjórnmálafræðin varð fyrir valinu. „Ég hefði getað farið í hvað sem var en fyrr en varði stóð ég uppi á sviði að taka við prófskírteini og hugsaði: „Bíddubíddu, ég ætlaði aldrei að klára þetta!“ Þetta var bara svo fljótt að líða, enda var ég á fullu í stúdentapólitíkinni og var for- maður Vöku eitt árið. Eftir stjórnmála- fræðina lenti ég hins vegar í svolítilli sjálfsmyndarkeppu. Ég hafði engan áhuga á stjórnmálafræðinni heldur á einstaklingnum og hvernig væri hægt að byggja betra samfélag.“ Eftir stutt stopp í sálfræðinámi fór hún að vinna með Þórólfi Þórlindssyni, prófessor í félagsfræði, hjá Rannsókn- arstofnun uppeldis- og menntunarmála og svo fór að félagsfræðin varð aðal- grein Ingu Dóru. Hún lauk meistara- gráðu frá Háskóla Íslands árið 1999 og doktorsgráðu frá Pennsylvania State University fimm árum síðar. „Áður en ég fór í doktorsnámið hafði ég sett á laggirnar litla rannsóknarmiðstöð sem heitir Rannsóknir og greining, og sér- hæfir sig í rannsóknum á högum barna og unglinga. Í raun eru þetta rannsóknir sem Þórólfur byrjaði á og ég fékk tæki- færi til að halda áfram með þegar Rann- sóknarstofnun uppeldis- og mennta- mála var breytt í Námsmatsstofnun.“ Um er að ræða viðamiklar rannsóknir sem lagðar eru fyrir alla grunn- skólanema landsins á hverju ári. „Fyrstu kannanirnar voru lagðar fyrir árið 1992 svo til hefur orðið mjög sterk- ur vísindalegur grunnur sem við höfum nýtt til að birta fjölmargar greinar um börn og unglinga í erlendum, ritrýndum vísindatímaritum. Að auki hefur þetta orðið grunnur að stefnumótun hér á landi. Í dag erum við að vinna í 15 borgum í Evrópu þar sem við stýrum sambærilegri rannsóknarvinnu sem gengur út á forvarnastarf með börnum og unglingum.“ Framkvæmdastjóri rannsóknarmiðstöðvarinnar er Jón, einkabróðir Ingu Dóru, enda segir hún gott „þegar systkinahópurinn er svona lítill að verja góðum tíma saman í líf- inu“. Að loknu doktorsnámi árið 2004 hóf Inga Dóra störf við Háskólann í Reykja- vík, þar sem hún byggði upp nýja deild við skólann, kennslufræði- og lýð- heilsudeild, og um leið fluttust Rann- sóknir og greining til skólans. „Sú deild sótti grunninn í Columbia-háskóla þar sem hugmyndin er að tengja árangur einstaklinga og líðan þeirra. Við vitum að börnunum okkar gengur ekki vel nema þeim líði vel en hingað til hefur okkur hætt við að horfa á skólann sem einangrað fyrirbæri. Þarna úti er heilt samfélag og börnin koma inn í skólann með ýmislegt á bakinu. Þess vegna er mikilvægt að tengja samfélagið sem börnin koma úr inn í skólann. Sömu- leiðis lögðum við áherslu á að efla þekkingu þeirra sem starfa með börn- um, kennara og annarra, á þessari víðu flóru barna.“ Ekki gott að loka því sem best er gert Auk barna- og ungmennarannsóknanna hefur Inga Dóra einbeitt sér að rann- sóknum á vísindastarfi í háskólum. „Gott háskólastarf er grunnforsenda þess að okkur gangi vel sem þjóð til framtíðar,“ segir hún með áherslu. „Við verðum að gæta þess að vera fagleg í starfinu og sjá til þess að nemendurnir okkar fái bestu menntun sem völ er á. Að þessu þarf sérstaklega að gæta, nú á tímum mikilla breytinga og efnahags- þrenginga.“ Fagmennska er Ingu Dóru ofarlega í huga í þessu sambandi. „Við verðum að gæta að því að vera fagleg í ákvörð- unum um breytingar. Í háskólageir- anum erum við svo heppin að hafa mjög skýrar alþjóðlegar reglur og við- mið sem þeir háskólar sem hafa náð bestum árangri í heiminum hafa fylgt um aldaraðir og snúa m.a. að því hvernig árangur er metinn, að virku rannsóknarstarfi í skólunum og aka- demísku frelsi þeirra. Nákvæmlega sama á að gilda um íslenska háskóla.“ Hún segir þetta lykilatriði vilji landið gæta að samkeppnishæfni sinni. „Við erum þátttakendur í alþjóðlegu um- hverfi þar sem er algerlega útilokað fyr- ir háskóla að ætla sér að ná árangri nema hann sé alþjóðlegur og taki þátt í starfinu á sömu forsendum og aðrir há- skólar úti í heimi. Við munum ekki geta beitt einhverjum öðrum reglum á Ís- landi.“ Það eru engin ný vísindi, bendir Inga Dóra á. „Við vorum einmitt að fást við þennan skort á reglum og viðmiðum í uppsveiflunni og hruninu. Með sama hætti verðum við að passa upp á há- skólastarfið.“ Hún óttast að í því niðurskurð- arástandi sem nú ríkir verði gæðakröf- um kastað fyrir róða. „Þegar ákvörðun er tekin um að skera niður verður að gera það á grundvelli háskólastarfsins í heild, meta það sem best er gert, halda því og henda öðru. Þá skiptir engu máli hvort við erum með tíu háskóla eða einn. Við þurfum einfaldlega að tryggja að innan þeirra sé rekið starf sem er nemendum okkar boðlegt. Þá er ekki gott að byrja á því að loka því sem best er gert.“ Þarna vísar Inga Dóra til nýlegrar ákvörðunar um að leggja niður kennslufræði- og lýðheilsudeildina við HR, sem hún veitti forstöðu. „Við stóð- Umvafin fjölskyldunni. Með foreldrum sínum Erlu Sigurðardóttur ljós- móður og Sigfúsi Jónssyni sölustjóra og svo Jóni stóra bróður. „Þegar systkinahópurinn er svona lítill er gott að verja góðum tíma saman í lífinu,“ segir Inga Dóra en hún vinnur með Jóni bróður sínum. Sjö ára og stefndi á að vera kennari sem yrði „góð við börnin“. Morgunblaðið/Ómar ’ Um það leyti sem ég var að klára grunnskólann var ég t.d. pönkari með svart hár og í hermannaklossum og hékk á Hlemmi með Jóni Gnarr og fleirum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.