Ný saga - 01.01.1997, Page 11
s
I læri hjá Komintern
hangelsk að því er virðist. Á hverjum stað
fengu menn fyrirlestur um framfarir síðustu
áratuga, um fjölda flokksfélaga á staðnum,
fjölda verkamanna, lífskjör og aðbúnað. Skrif
Andrésar sýna mikla hrifningu á því sem fyr-
ir augu og eyru ber. Svona lýsir hann
Ivanovo-Voznessensk:
Visiting the workers’ quarters of Ivanovo-
Voznessensk. Excellent place! 10 thousand
people in the quarter, 3 big buildings with
400 flats. 140 smaller houses 40 m2 per per-
son. Nursery one of the best I have seen
240 children from 3 months to 4 years of
age. Two shifts each 20 hours the children
looked very healthy. Once every week the
children are examined by doctors. If one in
the family gets tuberculous all the mem-
bers of the family must come to the doctor
for examination. School for 300 children in
construction.36
Aðrar færslur eru í sama dúr. Andrés var ekki
jafn hrifinn af öllu sem hann sá, en allt taldi
hann þó koma heim og saman við að bolsé-
víkar í Rússlandi ynnu skynsamlega að upp-
byggingu og iðnvæðingu. Dagbókinni lýkur
27. júlí án þess að ljóst sé hvort ferðinni var
einfaldlega lokið þá eða hvort Andrés hætti
að skrifa hana af öðrum ástæðum.
Kollektívíserað í Tsypnavolok og
sjómönnum snúið í Batumi
í*að var regla við bæði Vesturháskólann og
Lenínskólann að menn færu í vinnuferðir í
sumarleyfum. í sumum tilfellum höfðu þessar
ferðir einungis áróðursgildi. Þannig hefur það
verið um kynnisferð Andrésar Straumlands
og félaga hans úr ensku deildinni. Öðrum
hlotnaðist meiri lífsreynsla. Eóroddur Guð-
mundsson og Eyjólfur Árnason höfðu staðið
sig vel fyrri vetur sinn í Vesturháskólanum og
voru báðir gerðir félagar í sovéska Kommún-
istaflokknum vorið 1931.37 Gert var ráð fyrir
því að kommúnistar sem dvöldust um lengri
tíma í Sovétríkjunum á vegum Kominterns
flyttu flokksaðild sína yfir í rússneska Komm-
únistaflokkinn. Engu að síður var þetta heið-
ur: Menn voru ekki gerðir félagar í rússneska
flokknum nema þeir hefðu sannað fyrst að
þeir væru þess verðir.
Mynd 9.
Alþjóðasamband
kommúnista hafði
verið hugarfóstur
Lenins frá þvi í
byrjun heims-
styrjaldarinnar.
Arið 1919, rúmu
ári eftir byltingu
bolsévika, varð af
stofnun þess. Hér
þrammar Lenín yfir
Rauða torgið.
Mynd 10.
Andrés Straumland.
9