Ný saga - 01.01.1997, Blaðsíða 91
s
Síðustu misseri Arna Magnússonar
rekssonar (AM 357 4to) og 1726 fékk Árni
fjögur blöð úr Veraldar sögu frá um 1200
(AM 655 VII-VIII 4to), en árið eftir latneska
lesbók frá 12. öld sem Ormur hafði fundið „í
bréfarusli“ (AM 788 4to), auk Grágásar með
hendi Hákons Ormssonar frá miðri 17. öld
(AM 339 fol.). Frá séra Snorra Jónssyni á
Helgafelli, bróðursyni sínum, fékk hann
haustið 1721 mikla sendingu skinnblaða frá
13., 14. og 15. öld (sjá ramma).
Jafnframt hélt Árni áfram að koma sér upp
afritum skjala, gerði sjálfur svolítið, en skrif-
arar hans mest. Síðustu árin hélt hann að jafn-
aði einn eða tvo íslenska skrifara úr hópi
námsmanna við háskólann og ekki er útilok-
að að sumir þeirra hafi búið á heimili hans.
Meðal þeirra voru Jón Ólafsson, Finnur Jóns-
son, Sigurður Kárason, Jón Sigurðsson og
Einar Jónsson, en þeir afrituðu skjöl af kappi
árið 1727 og til vors 1728." Bruninn rnikli setti
allt úr skorðum. Hann kom upp á áttunda
tímanum miðvikudagskvöldið 20. október
1728. Þriðjungur Kaupmannahafnar brann til
kaldra kola og um 16 þúsund manns misstu
heimili sín, en tjón á eignum nam tveimur
milljónum ríkisdala hið minnsta, rúmlega
hundraðföldum árstekjum konungs af Is-
landsversluninni. Hverfi Árna (Klædebo
kvarter) var á miðju brunasvæðinu og þar
stóð ekkert hús eftir. Ástandinu lýsti Jón
Ólafsson þannig í skýrslu sem fylgdi bréfum
Árna til íslands vorið eftir: „Að líta á staðinn
sjálfan er skelfilegt, það sér allt út eins og
stórgrýtt holt eða hraun.“12 Svo sem frægt er
orðið trúði Árni því ekki að eldurinn myndi
breiðast út og tregðaðist við að láta hefjast
handa um brottflutning bóka og handrita.
Urn kvöldið hvötlu íslenskir námsmenn hann
til að forða eigum sínum, en hann svaraði að
„hér væru anstalter í staðnum'* og „gekk á
báðar síður til glugganna." Þegar hann morg-
uninn eftir heyrði að eldur væri kominn í Vor-
frúarkirkju tók hann af skarið og megnið af
handritunum bjargaðist. Bækurnar brunnu
flestar og ótal handrit reyndar líka, fáein á
skinni, en flest á pappír, þar á meðal ýmis
gögn Árna sjálfs, uppköst og alhugagreinar.
Að björgun lokinni gengu Árni og Jón Ólafs-
son skrifari hans niður í Höjbrostræti og þar
gekk Árni inn til Peters Abbestés vínkaup-
h þ^jffStr itrbr 7|)UtÖ8^1tt»sr auop W ftt ifr
fix^p uri^«t&laIttahywtj' |tr.B.iaUat
£'-cqin •jfaQ’n Km at fvcitfo fú iflihftrauqoí, rtah.Boff
ðt jna.ba at&tt ðutn lí?® nttKttttáv.‘Sv^iiiiíiM&
íkfai þáh ficfr aptr Íatr. W' % þ. 1 fttfi* fi$ (
ar bioi f& fma ifo' tftr þehan líc jb $hki^^utríœttai
$fcm.(fvo1- fotthf.fi fiflfh‘ • «r 15c 5 fiöíjoettttfc.vq.Ulir'y
fiaphtfnyirapfiítinuön foía g»nfl,'ufefln?aÆattfflftb^^tli|if^J*
runhclc v •sdfthabFtgátth fiathtaSrii'oÉ.. jír fi -\j mi ^
#þtttd na hefbvhom & fttfnr rfin ðílrnn ftmt mrt^%ttttuforito^
^DlInm$m hcranu thtn fcm pc tufeu þiggta ar ítrrt*Oc
nbðttwnii miK frmtft-Mnó ____t*.r » J ’uv
h^ottwnn traK. mnjfr nqa afmti johStCuf K
vttN nmaar faB fa ar farntf—-
iht fWtrfi 6.
amnbcjtrab
ohumtfltt/fihanhiö*
m a * T
- A,Hr«e /«
Mynd 3.
Sending séra Snorra Jónssonar haustiö 1721
tvö blöð úr Egils sögu (AM 162 Ay fol.)
tvö blöð úr Guðmundar sögu eftir Arngrím ábóta (AM 220 IV fol.)
tvö blöð úr Stjórn (AM 229 a I og III fol.)
þrjú blöð Barlaams sögu og Jósafats (AM 231 I og V fol.)
tvö blöð úr Gyðinga sögu (AM 238 XVII fol.)
blað úr Hirðskrá (AM 173 d C 3 4to)
tvö blöð úr Orkneyinga sögu (AM 325 llla4to)
blað úr Ólafs sögu Tryggvasonar (AM 325 VIII 2 e 4to)
blað úr Sverris sögu og Hákonar sögu Sverrissonar
(AM 325 VIII 4 a 4to)
sex blöð úr sögum Bevers, Rémundar, Elís og Bærings
(AM 567 II 4to)
blað úr Adoníus sögu (AM 567 VI ji4to)
tvö blöð úr Göngu-Hrólfs sögu (AM 567 XI þ 4to)
tvö blöð úr Nítíða sögu (AM 567 XVIII 4to)
fjögur blöð úr tveggja postula sögu Jóns og Jakobs
(AM 653 a 4to)
tvö blöð úr Maríu sögu (AM 667 III 4to)