Ný saga - 01.01.1997, Blaðsíða 84

Ný saga - 01.01.1997, Blaðsíða 84
Margrét S. Björnsdóttir spillingu og fyrirgreiðslu hafði mikil áhrif, einkum á Alþýðuflokkinn. Áhrif þess síðar- nefnda með gagnrýni á pólitíska fyrirgreiðslu og spillingu urðu þó ekki djúptæk, meðal ann- ars vegna þess hversu pólitísk fyrirgreiðsla er inngróin í íslensk stjórnmál. Áhrif Kvenna- framboðs og Kvennalista eru augljós. Flest baráttumál þeirra eru að minnsta kosti í orði kveðnu orðin viðtekin í hinum stjórnmála- flokkunum. Áhrif Þjóðvaka eru umdeilan- legri. Eina sérmál hans var krafan um sam- starf félagshyggjuflokka og hann var eini stjórnmálaflokkurinn sem lýsti því yfir fyrir Mynd 1. Borgarstjórnar- flokkur Reykjavikurtistans. síðustu kosningar að hann útilokaði ríkis- stjórnarsamstarf með Sjálfstæðisflokknum. Það má hins vegar benda á að framboð Þjóð- vaka átti verulegan þátt í fylgistapi Alþýðu- flokks í síðustu kosningum. Þar með kom Þjóðvaki líklega í veg fyrir að Alþýðuflokkur færi aftur í stjórn með Sjálfstæðisflokknum eins og vilji hans stóð til. Þannig lagði Þjóð- vaki lið þeirri gerjun sem nú er milli þeirra flokka sem standa utan ríkisstjórnar. Gerjun sem að minnsta kosti væri með öðrum hætti ef Alþýðuflokkur og Sjálfstæðisflokkur væru saman í ríkisstjórn. Mun sagan endurtaka sig? En er eitthvað að gerast nú sem bendir til þess að flokkakerfið sé að breytast? Mun sag- an ekki bara endurtaka sig þannig að þeir úr forystu Þjóðvaka sem vilja halda áfram fari í framboð með eða fyrir Alþýðuflokkinn og Kvennalistakonur sem vilja starfa áfram að stjórnmálum skipti sér milli A-flokkanna? Og að forystumenn A-flokkanna að sínu leyti telji sér og sínum hagsmunum betur borgið í „gamla“ flokknum. Má ekki einnig halda því fram að Alþýðuflokkur eigi meira sameigin- legt með Sjálfstæðisflokki en Alþýðubanda- lagi, sem að sínu leyti eigi meiri samleið með Framsóknarflokki en Alþýðuflokki? Ég held því fram hér að sagan sem áður var rakin muni ekki endurtaka sig. Þrátt fyrir augljósar mótsagnir milli (stefnumála) A- flokkanna muni verða breyting á fjórflokka- kerfinu fyrir næstu kosningar. Til verði kosn- ingabandalag A-flokkanna, Þjóðvaka og Kvennalista. Fyrir því eru margar ástæður. Endalok kalda stríðsins skipta að sjálfsögðu máli og einnig breytt afstaða þessara flokka til mark- aðsbúskapar og ríkisafskipta í atvinnumálum. Ég tel þó að aðrir atburðir sem gerst hafa skipti ckki síður máli og skulu þeir því raktir hér. Reykjavíkurlistinn 1994 og áhrif skoðanakannana þá og nú Fyrst vil ég nefna sigur Reykjavíkurlistans í borgarstjórnarkosningunum 1994. Sameigin- legt framboð gegn Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík átti sér langan aðdraganda. Árið 1985 höfðu verið settar fram kröfur innan allra minnihlutaflokkanna um sameiginlegan lista í Reykjavík í kosningunum 1986. Á þeim árum starfaði Málfundafélag félagshyggju- fólks sem þá beitti sér fyrir sameiginlegum lista, en í því félagi starfaði saman ungt fólk úr öllum flokkum nenia Sjálfstæðisflokki. Hugmyndin um sameiginlega lista gegn Sjálf- stæðisflokknum fékk þá ekki mikinn hljóm- grunn. í aðdraganda næstu borgarstjórnar- kosninga árið 1990 var meiri kraftur í þessari kröfu, sem endaði í framboði Nýs vettvangs, 82
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Ný saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.