Ný saga - 01.01.1997, Blaðsíða 40

Ný saga - 01.01.1997, Blaðsíða 40
Hrefna Margrét Karlsdóttir 1807 hafi hann verið búinn að fá húsið endur- bætt á kostnað hins opinbera.19 Öruggt má telja að fangar hafi unnið að þessu að ein- hverju leyti. Vinna hélt áfram við kirkjuna í maímánuði og vinnudögum fjölgaði að sama skapi. Einnig var unnið við hús Trampes stift- amtmanns, að niðurrifi Hólavallaskóla og að einni nýbyggingu sem gekk undir nafninu „Det Nye Hus“.20 Ekkert finnst í heimildum um hvaða hús er átt við. Vinna hélt áfram við skólann allt sumarið og við Nesstofu fram í september.21 Eftir 1808 finnast engin dæmi um slíkar byggingarframkvæmdir og má að öllum líkindum rekja það til ófriðarástandsins. Flesta daga voru menn þó við mógröft, eða allt upp í 15 daga í senn, enda sýna eignaskrár fyrir árin 1809 og 1810 verkfæri til mótekju.22 Fangi var sjaldnast lengur en einn til einn og hálfan dag í einu við garðhleðslu eða vinnu við opinberar byggingar. Allir vinnufærir fangar fengu eitthvað að starfa yfir sumar- mánuðina í mógreftri og annarri útivinnu fyr- ir fangelsið. Hér er átt við sumrin 1807 og 1808 því 1809 settu Jörundur byltingarmaður og Danakonungur strik í reikninginn. Asjo Eins og áður hefur verið minnst á skyldu karlfangar stunda sjóróðra fyrir tukthúsið. Gera átti út sexæring og tvo góða báta.23 Einnig sést í skrám yfir innanstokksmuni og fleira frá 1809 að skinnfatnaður til sjóróðra er til.24 Róið var árin 1791, 1807, 1808 og 1809. Mismunandi er hversu margir fóru til veiða og hversu marga daga þeir reru. Þarna kann ýmislegt að hafa valdið, veðurfar, heilsufar fanga og ef til vill ótti við strok. Yfirleitt voru það sömu fangarnir sem reru til fiskjar sumar eftir sumar og hófust róðrar yfirleitt í mars og stóðu fram til júlíloka. Fimm þeirra voru fangar sem sátu lengi inni, ísleifur Sigurðs- son sem dæmdur var fyrir blóðskömm, Jónas Jónsson, Gísli Sigurðsson og Ari Teitsson, sauðaþjófar, og Jón Illugason þjófur. Árið 1807 var þó róið nokkra daga í nóvember og er það í eina skiptið sem fangar stunduðu róðra að hausti til.25 Samhliða útræði skapaðist önnur vinna. Verka þurfti fiskinn sem kom á land. Fisk- Mynd 6. Bessastaðastofa. Mynd 7. Hólavallarskóli. ársins hvort ár og var hún mjög takmörkuð. Eftir það finnast engar heimildir um slíkt fyrr en 1791, en þá má sjá að fangar eru að vinna við dómkirkjuna og á Bessastöðum, auk vinnu hjá bæjarbúum og við sjóróðra.16 Fangar unnu að jafnaði þau störf utandyra sem enginn annar vildi sinna eða erfiðisvinnu. Á árunum 1807-10 var mótekja og hleðsla grjótgarða ein algengasta sumarvinna fanga, hvort tveggja erfið og slítandi verk. Einnig voru fangar settir í vinnu við opinberar bygg- ingar.17 Bæði Nesstofa og Bessastaðakirkja finnast í vinnuskrá fyrir apríl 1807.18 í Árbók- um Jóns Helgasonar er sagt frá því að þegar Klog landlæknir flutti að Nesi í fardögum Mynd 5. Dómkirkjan i Reykjavik í upprunalegri mynd. 38
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Ný saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.