Ný saga - 01.01.1997, Side 41
„Vinnan göfgar...“
iáá®
verkun er skráð í vinnuskýrslur 1807, frá júní
til septemberloka, og er þar tekið fram hvort
menn séu að vakta fiskinn, þurrka hann eða
taka á móti honum.26 Aðeins er einu sinni
minnst á fiskverkun árið 1808. Ekki er afla-
leysi um að kenna því það sumar var fiskafli
góður.27 Engin skýring finnst því á þessu.
Þetta sumar voru einnig nokkrir fangar send-
ir til Keflavíkur að sækja fisk og er það
lengsta ferð sem fangar fara.28 Annars mið-
aðist vinna þeirra við Reykjavík, Seltjarnar-
nes og einstaka sinnum Hafnarfjörð. Ýmis-
legt annað smálegt tilheyrði útræðinu eins og
viðhald og viðgerðir á bátum og veiðarfær-
um.29
I stórum dráttum var þetta sú vinna sem
fangar stunduðu helst úti við á sumrin. En
það er ýmislegt annað og smálegra sem ekki
er síður athyglisvert. Meðal annars er áber-
andi hversu oft lyf voru sótt og eru þær ferðir
skráðar í skýrslurnar. Árið 1807 fer sex og
hálfur dagur í að sækja lyf frá september og
fram í nóvember. Árið eftir eru sjö dagar
skráðir í slíkar ferðir, en þeir dreifast á lengri
tíma, frá janúar og fram í mars og svo aftur í
maí og júní.30 Virðist þá fangi vera sendur úl
í Nesstofu þar sem lyfsalinn bjó. Ekkert bend-
ir til annars en að viðkomandi fangi hafi farið
einn því enginn tilgangur var í því að senda
einhvern með honum sem gat sótt lyfin sjálf-
ur. Ekki er ólíklegt að fangar hafi verið send-
ir fyrir bæjarbúa í leiðinni, en um það eru
engar heimildir. Einstaka sinnum virðast
fangar einnig vera í vinnu hjá lyfsalanum og
er það þá skráð á „Apotheket“.31 Fjöldi lyfja-
ferða þarf hins vegar ekki að koma á óvart því
langtímum saman eru þó nokkuð margir
fangar veikir og rúmliggjandi. Það segir svo
aftur sitt um aðbúnað og mataræði. Til er
lyfjareikningur frá árinu 1808 og eru þar
skráðar 38 færslur, en það ár sátu 26 fangar
inni. Þar koma fram nöfn sjúklinga og hvaða
lyf þeim hafa verið gefin og má sjá að nær all-
ir fangarnir hafa að minnsta kosti einu sinni
veikst það alvarlega að ástæða þótti til að
gefa lyf.32
Fangarnir voru látnir vinna ýmislegt fleira
yfir vor- og sumartímann. Póstkassinn var
iluttur reglulega til Hafnarfjarðar, að öllum
líkindum á skipsfjöl. Allt upp í 11 fangar eru
skráðir í þessa flutninga árið 1807, sex fangar
1808 og tveir fangar 1809.33 Ómögulegt er að
segja nokkuð um hvers vegna svo margir
sinntu þessu verkefni, en kannski var hér ein-
ungis um einn dag að ræða á ári eða farið var
nokkra daga í röð. Greiðslan kom úr jarða-
Mynd 8.
Allir vinnufærir fangar
fengu eitthvað að
starfa yfir sumar-
mánuöina í mógreftri
og annarri útivinnu.
Þá skyldu karifangar
stunda sjóróðra.
Áberandi er hversu
oft lyf voru sótt í
Nesstofu þar sem
lyfsalinn bjó.
39