Birtingur - 01.01.1959, Side 14

Birtingur - 01.01.1959, Side 14
Pablo Neruda er frá Chile, fæddur 1904. Chile hefur alið nokkur fremstu skáld Suður-Ameríku, auk Neruda eru þaðan Gabriela Mistral, skáld- konan sem fékk bókmenntaverðlaun Nóbels og Vicente Huidobro, þau eru bæði látin. Neruda gaf fyrstu bók sína út sautján ára að aldri, en síðan hefur hann gefið út þrjátiu bækur, flestar ljóðasöfn. Canto general, sem kom út 1950, er eitt umfángsmesta verk nútímans, 500 síður að stærð, það fjallar um sögu Ameríku og er þrúngið kommún- istískum boðskap. Róttækar skoðanir Neruda hafa valdið því að hann hefur verið landflótta árum saman. Neruda er ekki feiminn að ræða um vandamál samtímans, ljóð hans eru baráttuljóð í bestu merkingu þess orðs, hann er nútíma kraftaskáld, orð hans verða áhrínsorð, af því að þau eru vopn hins stríðandi mannkyns. J. Hj. Leiðrétting Ljóðið Á fljótinu eftir kínverska skáldið Tu Fu, sem birtist í síðasta hefti þýtt af Helga Hálfdanarsyni, hefur aflagazt slysalega í prentun. 1 handriti þýðanda var lokalínan þannig: í sjáifs mín hug, sem lygn og djúpur streymir. Birtingur biður þýðanda og lesendur einlæglega afsökunar. 12 Birtingur

x

Birtingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.