Birtingur - 01.01.1959, Side 90

Birtingur - 01.01.1959, Side 90
Anno 1959. Gömul hjón stöðva einn af hinum mikilvægu krossgátumönnum hinna opinberu kontóra í höfuðstaðnum, þau hafa ungan dótt- urson sinn með sér úr sveitinni og segja: Gæti maðurinn vísað veginn á húsið hans Kjarvals. Ha? segir skrifstofumaðurinn í höfuðstaðnum. Já ég hef heyrt hann eigi kofa í Hjaltastaða- þinghánni. Ha? segja pilagrímarnir einum rómi, æska og elli: nei við meintum Kjarvals- húsið. Ja hann er víst stundum að mála þarna uppi, segir maðurinn og bendir á þakið á húsa- samstæðu í Austurstræti. Og gömlu hjónin voru víst fyrst að hugsa um að fara inn í Lands- bankann því að þeim þótti inngangurinn svo fínn. Enginn gat vísað þeim á Kjarvalshúsið. Því miður var það hvergi að finna nema á pappírnum í skjalasafni ríkisins eða hvar þeir nú geyma blöðin þegar þeir tæma vasana. Ekki leizt þeim þesslega á húsið þar sem þjónn ríkis- valdsins hafði bent á þakið, reyndu samt að skygnast þar um gættir en fundu ekki fyrir nema lýsiskaupmenn og komust að þeirri niður- stöðu að skrifstofumaðurinn hefði átt við að höll Kjarvals væri í skýjum himinsins. Eftir 14 ár. Og þó. Síðustu tvö árin var ekki viðburðalaust í þessu máli. I fjárlögum Alþingis 1957 og 1959 voru veittar samtals 800 þúsundir króna til við- bótar 300 þúsundum króna sem höfðu legið í sjóði síðan 1945 væntanlega til að reyna eyð- ingarmátt möls og ryðs. Alls 1,1 milljón króna. Og menntamálaráðherra sem í ýmsu hefur sýnt góðan vilja gagnvart listum stofnaði eina nefnd- ina enn, í þetta sinn með ágætan hollvin lista- mannsins í forsæti, Guðbrand Magnússon sem er einn hinna elztu og einlægustu aðdáenda Kjarvals. Og loksins voru yfirvöld borgarinnar svo sérstaklega höfðingleg að veita lóð svo að það væri hægt að flytja þessa miklu höll niður á jörðina og grunnmúra hana í lögsagnarum- dæmi Reykjavíkur. „Og innflutningsskrifstofan veitti fyrirheit um fjárfestingarleyfi," segir í blaðafregn. Teikningar að húsinu kváðu hafa verið til, ekki veit ég neitt um þær. Loksins virtist rolukastinu vera að létta, heysigemling- urinn var að rumska. Þá kemur bréf: „Þeir peningar eða fjárhæð, sem íslenzka ríkið hefur ánafnað í Kjarvalshús, finnst mér æskilegast að gangi sem stofnfé í byggingarsjóð málverkasafns íslenzka ríkisins. Virðing og umhyggja. Jóh. Sv. Kjarval“. Þessi maður sem hefur auðgað þjóð sína meira en nokkur annar málari, ekki lætur hann við það sitja, sá sem aldrei hefur átt hús sjálfur nema sveitasetur í Hjaltastaðaþinghánni sem er varla meira en þrír metrar á kant skreytt þjóðfánum Norðurlanda og ungmennafélags- flagginu til að færa Austfirðingum hinar sunn- lensku stórhátíðar eins liðins sumars, hann hefur nú gefið utan um myndlist landsins til að geyma. Og heysigemlingar rolukastsins hverfa aftur til sinnar eðlilegu veru, aftur er hanastélið hrist og aftur er hringt á mennina frá í gær, silfurbikararnir hefjast á loft og senda sín litlu leiftur í tómið frá í fyrragær: skál húrra bravissímó. Alþingi hefur þakkað hina höfðinglegu gjöf og samþykkt að geyma peningana á banka, í Landsbankanum, og aðkomufólkið stanzar þar á horninu snemma morguns, sér mannþröng á tröppunum bíða þess að vera hleypt inn í dýrð- ina, spegla svefnþrungin andlit borgarlífsins í stóru gleri útidyranna meðan vegvitarnir skammta bílaröðunum umferðaréttinn uin krossgöturnar í hjarta þjóðlífsins: grænt gult og rautt, þarna standa listpílagrímar framtíðar- innar á horninu og reyna að grípa einhvern asamanninn úr umferðinni til að spyrja: getur maðurinn sagt mér hvort hún er þarna lista- höllin sem hann Kjarval gaf okkur? 88 Birtingur

x

Birtingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.