Birtingur - 01.01.1959, Page 46

Birtingur - 01.01.1959, Page 46
ar allra alda og segja við okkur: Látið listamennina drepast, ef þeir geta ekki bjargað sér, — þetta eru vesalingar og þeir nenna ekki að vinna. En þeim er nokkur vorkunn, sem þannig tala: Geisli listarinnar hefur aldrei uppljómað hugskot þeirra, þeir hafa aldrei fyllst hljóðlátri lotningu fyrir listamanninum sem háði ævilangt stríð við misskilning sinnar tíðar, svo við mættum njóta lífsunaðar af verkum lians. Ólíklega hafa þeir nokkru sinni svarið með sjálfum sér að láta þakkarskuldina við hann koma fram við bræður hans, sem lifa. Þeim, sem enn kunna að halda, að listin sé eitthvert bríarí letingjanna, langar mig til að segja sögu, raunar ósköp venjulega, sem er að gerast á meðal okkar. Síðastliðið vor kemur til mín ungur maður utan af landi, sem hefur fengizt við að mála og teikna, þá sjaldan hann hefur átt tóm- stund til. Hann leggur feimnislega fyrir mig myndir sínar, og þegar ég hef virt þær fyrir mér um stund, segir hann: Mig hefur alltaf langað til að komast á listaskóla; haldið þér að það sé nokkurt vit í því? Af mynd- unum var satt að segja ekki mikið að sjá. Þær voru gerðar af elju og hug- kvæmni, en báru þess hinsvegar allt of ljós merki, að hann hafði lítið séð fyrir sér og ekki þjálfað sig vísvitandi í teikningu. Mest voru þetta alls- konar hugarsýnir, mjög lausbeizlaðar listrænum tökum. Ég ráðlagði hon- um að nota tómstundir sumarsins til að teikna og sjá svo til. Teiknaðu allt, sem þú hefur fyrir augum, húsin, bátana, fólkið, reyndu að teikna nákvæmlega, og láttu þér ekki detta í hug, að þú sért að búa til nein listaverk. Sumarið leið, og einn haustdag kom hann til mín aftur. — Ég held að mér hafi farið eitthvað fram, og ég er ennþá með þessa flugu í kollinum. Hún er orðin dálítið stór, flugugreyið, sagði hann og brosti afsakandi. — Ilvaða aðstæður hefurðu til þess að fara á skóla? spurði ég. — Ja, það er nú það. Ég er kvæntur og á þrjú börn. Ég hef fasta vinnu, sem ég yrði að segja upp. Svo hef ég verið að basla við að koma mér upp húsi, er búinn að kaupa flest inn í það. Það er svo sem annað en gaman að fara frá þessu öllu saman. En ég á góða konu. Hún er með mér í þessu: við getum komið einu barninu fyrir, og hún getur farið út á land með hin tvö þennan tíma. — Þennan tíma? sagði ég. — Já, ég veit, að það verður ekki einn vetur, ekki tveir. — Og húsið, sagði ég, — þú ættir kannski aldrei afturkvæmt í það. — Nei, sagði hann, ég veit. En ég veit líka, að ég fengi aldrei frið fyrir þessu, og til hvers væri þá allt hitt? Að sjálfsögðu gat ég ekki tekið á mig að ráða þessum manni af eða frá. Segði ég honum að koma, tæki ég ef til vill á mig sök af lífstíðarstríði hans, réði ég honum frá, ylli ég ef til vill óhamingju hans og legði stein 44 Birtingur

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.