Birtingur - 01.01.1959, Qupperneq 74

Birtingur - 01.01.1959, Qupperneq 74
— Segðu frá. Hann yppti öxlum. — Ég kæri mig ekki um að muna hitt. — Er það margt? — Nóg fyrir mig! — Það er skrítið. — Hvað? — Hvað við vitum lítið hvort um annað. — Lítið? — Já, skelfing lítið. Þú breytist með hverjum degi. — Þú vilt heldur aldrei hlusta á, þegar ég rifja upp endurminningar mín- ar. I hvert sinn, sem ég ympra á því biðurðu mig að hætta. — Ég vil heyra eitthvað annað. — Já, en þetta er það sem mestu máli skiptir. — Ég vil, að þú gleymir þessu. Það er það, sem ég vil fyrst og fremst gera fyrir þig. Hugsaðu ekki um það, Pietrek. — Hvað viltu þá vita um mig? — Til dæmis um hvað þú ert að hugsa núna? — Og ef það er nú heimskulegt? — Þá er það bara heimskulegt! Maður fer ekki út í skóg með Einstein. Segðu það! Hann settist með spenntar greipar um hnén og horfði til himins. Vanga- svipur hans var skýr, rólegur í ungæðislegri festu sinni. — Ég er að hugsa um hvenær þetta kveljandi ástand taki enda, stefnu- mótin á kaffihúsunum, í görðunum, í kvikmyndahúsunum .. . Hann lok- aði augunum og það kom sársaukagretta á munninn. — Þak yfir höfuðið, sagði hann. — Bara örlítinn reit út af fyrir okkur, Agnieska. Vera með þér í viku; dag og nótt með þér. Eftir það mundi ég deyja ánægður. Það voðalega er, að hverjum degi sem ég er án þín er rænt úr lífi mínu. Og hvað eru þeir ekki orðnir margir? Og hvað eru margir eftir? Fyrst öll árin sem ég á að baki og nú þetta endalausa flakk . . . Enginn færir mér aftur þá daga, enginn þeirra kemur aftur. Hvað gætum við ekki verið búin að eiga marga góða daga? Heldurðu, að það sé hægt að halda þessu lengi áfram? — Ekki tala um það, Pietrek. — Stundum fæ ég mig ekki til að trúa því, sagði hann. — Við erum ein, yfirgefin, skilurðu? Og hvernig sem við biðjum mun enginn rétta okkur hjálparhönd; og ég veit heldur ekki hvern ætti að biðja. Sýnilega getur enginn gefið okkur þennan litla reit. Við verðum að bíða. Alltaf að bíða, og bíða lengi. 0g beri svo biðin á endanum einhvern árangur, þá höfum við áreiðanlega ekki þrótt til að njóta þess. Furðumargir lífdagar ganga manni úr greipum að óþörfu. Það er verst, 72 Birtingur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Birtingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.