Ritmennt - 01.01.2000, Side 64

Ritmennt - 01.01.2000, Side 64
ÞÓRUNN SIGURÐARDÓTTIR RITMENNT samfögnunarvers, propempticum sem er reisulcvæði eða burtferðarvers, epicedium eða líkvers, epitaphium sem er grafskrift og margar fleiri tegundir. Þá talar hann um skáldskap eftir „afdeilingu efnisins" og á þar við, sýnist mér, ýmsar kvæðategundir og aðskiljanleg form þeirra. Hér má nefna sem dæmi drama, eða „skoðunarspil", sem Jón segir þetta um: „kvæði það sem lætur ýmsar persónur koma á leikvöllinn, tala þar og leika fyrir tilsjáendum". Annað dæmi er elegía, sem Jón skilgreinir þannig að hún sé blönduð saman af hexametris og pentametr- is og handli eiginlega um sorgarlega hluti en l<unni þó að brúkast um alls konar objecta. Epigramma segir Jón að sé „stuttur diktur, sem [...] er gjörður um eitthvað sem nokk- urs konar yfirskrift". Að lokum skal nefna technopægnia, sem eru „látgæðiskvæði skálda. I þeim er að sönnu sérdeilis kúnst, en enginn viss bragarháttur". Hann skil- greinir margar gerðir af þess háttar látgæðis- kvæðum, eins og t.d. þegar fyrstu bókstafir erinda samsetja mannsnafn.5 Jón nefnir margar aðrar tegundir, sem óþarfi er að tí- unda hér, en athyglisverð er skýring hans á því af hverju hann er svo fjölorður um þetta efni. Hann segir að það sé vegna þess að margt þess konar eigi sér stað í íslensku. Þegar hann svo fjallar um skáldskap á móð- urmálinu, í kafla sem hann nefnir „Að skælda í íslensku", segir hann að efnið geti hann (skólasveinninn) lagað að hinum latn- eska skáldskap í flestu, þ.e.a.s. Jón telur eðlilegt að skáldskapur á íslenslcu dragi aö einhverju leyti dám af latneskum kveðskap um efni og form. Þó að ekki hafi farið mik- ið fyrir þætti kveðskapar af klassískum rót- um runnum í íslenskri bókmenntasögu, voru slík kvæði afar algeng á 17. og 18. öld, bæði á latínu og á íslensku, enda tilheyrðu þau kveðskapartísku menntamanna í Norð- ur-Evrópu á þessum tíma.6 Það þarf því ekki að koma á óvart þó að Jón taki talsvert mið af klassískri skáldskaparfræði í Hagþenki þegar hann fjallar um fagurbókmenntir á sinni tíð. En fornfræðingurinn Jón lítur þó ekki eingöngu til klassískra bókmennta- hefða þegar hann fjallar um kveðskaparlist- ina. Hann telur bókmenntaarf íslendinga mikilvægan fyrir þá og einnig segir hann að kveðskapur á íslensku sé íslenskum manni „þénanlegri en latneskur, grískur eða ann- arra tungna" (53). Þetta sjónarmið sést einn- ig berlega ef ritgerðir hans um skáldskapar- fræði í handritinu AM 986 4to eru slcoðað- ar. Þar er m.a. stutt ritgerð (eða öllu heldur upphaf að ritgerð) um norrænan skáldskap, þar sem kemur fram að hann sé norrænum mönnum nauðsynlegri en sá gríski eða latn- eski, einkum vegna þess að þeir skilji móð- urmál sitt betur en hin málin en einnig af því að slcáldskapur á móðurmálinu gagnist fleirum en skáldskapur á hinum lærðu tungum.7 5 Jón hefur skrifað sérstaka ritgerð um technopægnia sem varðveitt er í handritinu AM 1028 4to, bls. 1-16. Margrét Eggertsdóttir hefur búið þessa ritgerð til prentunar undir yfirskriftinni „Slcáldanna leiltaraverk" og birt í Vitjun sína vakta ber. Safni greina eftir Jón Ólafsson úr Grunnavík, bls. 21-37. 6 Sjá t.d. Wolfgang Beutin o.fl. A History of German Literature, bls. 111 og áfr.; Per S. Ridderstad: Vad ár tillfállesdiktning?; Minna Skafte Jensen: Denmark, bls. 37 og áfr.; William H. Race. Classical Genres and English Poetry. 7 AM 986 4to, bl. 71r. Margrét Eggertsdóttir liefur fjallað um ritgerðir Jóns Ólafssonar um skáldskap- arfræði í fyrirlestri sem hún flutti á málþingi um 60
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168

x

Ritmennt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritmennt
https://timarit.is/publication/859

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.