Ritmennt - 01.01.2000, Page 113

Ritmennt - 01.01.2000, Page 113
RITMENNT EGGERT ÓLAFSSON - slciptist í þrjá hluta: Eymdaróð, Náttúru- lyst og Munaðardælu. Kvæðinu var ætlað að hvetja landsmenn til dáða. Þar kemur fram ást á náttúru og ættjörð, bjartsýni á framtíð lands og þjóðar en andúð á deyfð og framtaksleysi. í samræmi við þá hugsjón upplýsingarinnar að vilja veita ljósi þar sem myrkur var áður, stillir skáldið óspart upp í ljóðinu andstæðunum ljósi og myrkri: hinn skynsami ungi bóndi sltapar sér nýtt líf í birtu og heiðríkju liins íslenska sumars. Þannig er í Eymdaróði dregin upp dökk mynd af hinum óskynsömu íslendingum. Kallar skáldið þá „skuggafifl og þoku- þjóna" og átelur þá fyrir að velja flónskuna í viskunnar stað. Ljóst er að eymd þeirra og volæði stafar af fáfræði, fordómum og hjá- trú. í Náttúrulyst er því á hinn bóginn lýst hvernig ungi bóndinn dregur lærdóma af líf- inu í náttúrunni og fylgir rödd skynseminn- ar til að skapa sér betra líf í „sæludal"14 fram til fjalla. Hann er andstæða hins hjá- trúarfulla letingja sem lýst er í Eymdaróði. Það hlutverk sem sólarljósið og sumarið leilta í ljóðinu undirstrikar bjartsýni skálds- ins. Tilfinning fyrir fegurð náttúrunnar er líka augljós. Hefur ljóðið víða að geyma fal- lega ljóðræna náttúrustenmingu eins og eft- irfarandi dæmi sýnir: Sólin brauzt fram úr frænu skýi, fegurð veraldar lýstist öll; allt var á beztum blóma-stigi, blilcaði gras um rakan völl, náttdaggar knappa silfri sett, smaragðar vóru' í hvörjum blett.15 Þó er ljóst að fegurðarsýn Eggerts á íslenska náttúru á ekkert sameiginlegt með fegurð- arsýn rómantísku skáldanna síðar en þau dáðu hrikalega og hrjóstruga náttúru lands- ins. Hjá Eggerti tengist fegurð náttúrunnar frjósemi hennar.16 Það eru hinar grösugu og búsældarlegu sveitir sem eru fagrar, enda getum við haft af þeim not. í Munaðardælu segir t.d.: Þegar hraungrjót er handa' á milli, hræðist eg við og kem í stans, af því jarðeldr jafnan spillir jörðunum hér og utanlands; að mitt hérað er frá þeim frí, fullkomliga eg gleðst af því.17 Til gamans má í þessu sambandi benda á lýsingar hans á Mývatnssveit í Eerðabók- inni þar sem hann segir að hún hafi blasað við „svört og ljót tilsýndar".18 í þriðja og langstærsta hluta Búnaðar- bálks, Munaðardælu, lýsir Eggert lífinu í „sæludalnum", vinnusemi bóndans og at- orku í jarðrækt.19 Hann fræðir landa sína um nytsemi hvers kyns jarðargróða og telur upp nytjagrös til matar og lækninga. Þá leggur hann áherslu á uppfræðslu, bóklestur og dyggðugt líferni. í ljóðinu skín í gegn trú á gæsku guðs og möguleika mannsins til að 14 í skemmtilegri grein um náttúrusýn í Búnaðar- bálki, „o! að eg lifði í soddan sælu", Vefnir, tengir Guðrún Ingólfsdóttir kvæðið m.a. við evrópskar út- ópíubókmenntir og bendir á að Eggert fjalli fyrst og fremst um útópíska draumsýn sem styðjist ekki nema að hluta við veruleikann. 15 Eggert Olafsson, Kvæði, erindi 33, bls. 37. 16 Sjá Steinunn Haraldsdóttir, „I lystigarði ljúfra kála", bls. 105. 17 Eggert Ólafsson, Kvæði, erindi 13, bls. 40. 18 Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson, Ferðabók, II. bindi, bls. 63. 19 Oft hefur verið bent á að áhugi Eggerts á landbún- aði og ræktun jarðarinnar tengist m.a. búauðgi- stefnunni svokölluðu („fysiokrati") sem var hag- fræðistefna á 18. öld og angi af upplýsingunni. Sjá t.d. Steinunni Haraldsdóttur, „í lystigarói ljúfra kála", bls. 12, 37. 109
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Ritmennt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritmennt
https://timarit.is/publication/859

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.