Vera - 01.08.2002, Qupperneq 7
ið settumst niður fyrir utan
kaffihús á óvenju sólríkum sum-
ardegi. Mannlífið í borginni var
með fjörlegasta móti og ekki kom
á óvart að þær voru hæstánægðar
með ferðina. En hverjar eru þær
og hvernig stóð á því að þær
skelltu sér í tónleikaferð til Is-
lands?
Pia Loman, Marit Ernst, Kar-
ina Agerbo og Helle Nielsen eru
fjórir blokkflautuleikarar frá Sví-
þjóð og Danmörku sem allar voru
með sama kennara og kynntust
þannig. „Við prófuðum að spila
saman eitt verk, síðan annað og
þannig vatt þetta upp á sig,“ segja
þær en þær héldu fyrstu tónleik-
ana árið 1994. Síðan þá hafa þær
víða leikið og að auki gefið út tvo
geisladiska og er annar þeirra fá-
anlegur, Sitting Ducks BIS-CD
1112. „Þessi ferð er hluti af Norð-
urlandatónleikaferð," segja þær.
„Við leikum klassíska tónlist,
bæði nútímatónlist og eldri tón-
list (barokk og endurreisn). Okkur
langaði til að leika meira af nú-
tímatónlist frá Norðurlöndunum
en af henni var ekki mikið fram-
boð. Við ákváðum því að panta
tónlist frá nokkrum tónskáldum á
Norðurlöndum og Elín Gunn-
laugsdóttir var ein þeirra. Síðan
datt okkur í hug að það væri gam-
an að ferðast urn Norðurlöndin
með tónlistina og höfum þegar
farið um Noreg og Svíþjóð."
Blokkflautukvartettar eru
sjaldgæfir og er þessi reyndar sá
eini í Danmörku. Þær stöllur taka
fljótlega fram að þær spili ekki
bara á fjórar litlar blokkflautur
heldur noti þær allt að 20 til 30
blokkflautur á hverjum tónleik-
um, af mismunandi stærðum og
gerðum. „Þetta er svolítið sérstakt
og kemur fólki stundum á óvart.
Það hefur kannski engar vænting-
ar og veit ekki við hverju það á að
búast þannig að oft verður þetta ó-
vænt ánægja. Margir spiluðu á
blokkflautu í barnæsku og fólk á
misgóðar minningar um það.
Blokkflautan er því að mörgu leyti
vanmetið hljóðfæri."
Lýðræðislegur kvartett
Þær benda einnig á að kvartettinn SIRENA sé rnjög
lýðræðislegur. Olíkt því sem gerist í strengjakvartett
breyti þær oft um hlutverk og spili ýmist fyrstu, aðra,
þriðju eða fjórðu flautu. „Við erum því oft að skipta
um hljóðfæri og sæti á sviðinu. Stundum köstum við
upp um það hver á að spila hvað enda líkar okkur til-
breytingin vel. Okkur líkar afskaplega vel að vera
kvennakvartett og teljum það stóran kost að hafa
leikið svo lengi saman. Við erum fjórir mjög ólíkir
persónuleikar en viljum spila saman og erum á sömu
bylgjulengd hvað tónlistina varðar."
Þær segja að móttökurnar í Skálholti hafi verið
góðar. „Þetta er mjög sérstakur staður og gaman að
halda tónleika þarna. Við spiluðum í kirkjunni og
því mátti ekki klappa. Það var svolítið skrítið fyrst en
seinna gat fólkið talað við okkur fyrir utan kirkjuna.
Þá komu margir og þökkuðu okkur fyrir og það var
mjög ánægjulegt. Þess má líka geta að Elín var að
heyra tónlistina sína leikna í fyrsta sinn tveimur tím-
um fyrir tónleikana. Henni líkaði vel en við erum
einnig mjög ánægðar með tónlistina."
Þær hlökkuðu mjög til að halda til Mývatns og
sögðu það forréttindi að geta ferðast um og hitt fólk
á meðan þær vinna. „Það eru 14 mánuðir síðan við
vissum að við myndum koma hingað og síðan þá
höfum við beðið með eftirvæntingu. Það má því
segja að nú sé draumur að rætast.“
Loksins komnar með rútu
Þær bentu einnig á að nú væru þær að ferðast um í
alvöru tónleikaferðalagarútu. „Við höfum aldrei
ferðast með svona rútu áður en höfum oft talað um
að ekki væri vanþörf á. Fólk heldur oft að við séum
ekki með mikinn farangur, aðeins fjórar litlar blokk-
flautur, en það er nú öðru nær. Surnar flauturnar
okkar eru risastórar og það getur tekið á að rogast um
með þetta. Nú erum við komnar með rútu og vantar
bara rótara!“ segja þær hlæjandi. Reyndar viður-
kenna þær að ekki væri heldur vanþörf á umboðs-
manni. Því það er ekki nóg að spila góða tónlist. „Við
verðum líka að kunna að markaðssetja okkur og það
er oft ekki auðvelt. Við erum ekki menntaðar í það og
það getur verið erfitt að muna eftir þessurn þætti
líka. Kannski fáum við okkur umboðsmann síðar,
við þurfum bara að sannfæra hann um að hann muni
græða eitthvað á þessu,“ segja þær hlæjandi. „]á,
hvers vegna ekki,“ segja þær þegar blaðakona spyr
hvort þær vilji hér með auglýsa eftir umboðsmanni.
„Það væri ekki verra að hafa hann íslenskan!"
7