Vera - 01.08.2002, Side 27
vjs / oisn,
„Það er auðvitað tilhneig-
ing samfélagsins að móta
konur í ákveðin hlutverk,"
segir María og bætir síðan
hugsi við: „Náttúrlega getur
líka jaðrað við kvenfyrirlit-
ningu að gera svona grín.
Kannski er fólk hrætt við
það. Það hefur verið tabú að
gera grín að konum og kannski er líka fullt af konurn
sem eru ekki hrifnar af þessu, hjá þeim er enn
attitjúdið: Við eigum að standa saman og sýna styrk
okkar, ekki veikleika."
Ef maður tilheyrir hópi sem má ekki gera grín að,
er maður þá ekki í verulega vondum málum?
„Það lýsir hræðilegri minnimáttarkennd sem
sumir hafa jafnvel fyrir hönd annarra. Ef það má ekki
gera grín að hlutunum þá er þetta orðið eitthvað
hösh hösh. Það er frelsi sem er fólgið í gríninu," segir
María. „Við konur verðum líka að læra að taka okkar
pláss og það gerum við í Skjallbandalaginu með því
að setja þetta verk á fjalir. Við erum með því að
afsanna mýtur eins og þær að konur geti aldrei unnið
saman. Við vitum ekkert hvernig þetta fer en samt
höfum við kynnt verkið grimmt og höfum fulla trú á
okkur. Við höfum þegar selt upp nokkrar sýningar og
lítum bjartsýnar á þetta allt saman,“ segir leik-
stjórinn og brosir bjartsýnislega að lokum.
Margir sem heyra að við séum að setja á svið verk
um konur halda að við séum með eitthvað væl.
Auðvitað erum við að gera grín að væli en við
vælum lítið sjálfar."
/ I J
ii <§ y
r %$' a
& /ÍMRk. w
% wl
m
m.
Jh 1
.... svona eiga
konur að vera og
svona eiga þær
ekki að vera.
Hefurðu smakkað ferskan,
íslenskan Mozzarellaost?
www.ostur.is
Islenskir ostar - hreinasta afbragð
Skoðaðu nýja bæklinginn frá Osta- og smjörsölunni.
Hann er fullur af Ijúffengum Mozzarellauppskriftum.
Raðið Mozzarella og tómatsneiðum á disk.
Stráið salti og pipar yfir. Hellið olíunni á
og dreifið basilíkulaufum og furuhnetum yfir.
Einnig er gott að setja þunnt sneiddan
rauðlauk yfir réttinn.
Mozzarella
og tómatsalat
• ferskur, sneiddur
Mozzarella
• tómatsneiðar
• ólífuolía
• fersk basilíka, söxuð
• salt og nýmalaður pipar
• furuhnetur