Vera - 01.08.2002, Síða 47

Vera - 01.08.2002, Síða 47
Hulda Dóra Styrmisdóttir: í dag eru auknar kröfur um jafnvægi vinnu og einkalífs en auk þess er krafist betri af- komu fyrirtækja. Af því leiðir að fyrirtæki þurfa að nýta mannauð sinn betur, enginn hefur efni á að velta fyrir sér kyni heldur skiptir mestu máli hver er hæfastur til að skila árangri. Auk þess benti Hildur á að aukin þátttaka kvenna stuðlar að lýðræðissjónarmiðum. „Kynin hafa mis- munandi áherslur og forgangsröðun og lýðræðið er ekki fullkomið ef hlutur kvenna er skarður því þannig endurspeglar það ekki samfélagið. Mikilvægt er að bæði kynin komi að ákvörðunartöku til að fá víðari sýn á málin. Þá er mikilvægt að sóa ekki auðn- um sem býr í konum.“ Erlendar kannanir og rannsóknir sýna ólíkar áherslur kven- og karlkyns stjórnmálamanna. A finnska þinginu reyndust þingkonur frekar beita sér í félagsmálum, menningar- og og menntunarmálum. Hollenskar þingkonur beittu sér á sviði velferðarmála, heilbrigðisþjónustu, menntunarmála og í jafnréttis- og kvenfrelsismálum. Á sænska þinginu hafa konur beitt sér í menntunar- og félagsmálum en sjaldnar í fjármál- um. Á Bretlandi hafa þingkonur beitt sér í áfengis- og fíknivörnum, dýravernd, málefnum barna og íjöl- skyldna og neytendamálum. Islenskum rannsóknum er ekki til að dreifa. Þess ber að geta að á síðari árum hefur dregið úr þessum áherslumun þingkarla og -kvenna. Með aukinni þátttöku kvenna víkkar mála- sviðið sem þær beita sér fyrir. Hildur benti á að hlutur kvenna í nefndum, ráð- Um og stjórnum stofnana Reykjavíkurborgar væri nokkurn veginn jafn og að formennska skiptist hnífjafnt. Hún sagði að pólitískur vilji væri mikil- vægur og forsenda breytinga í þessa átt. Aðferðir við stjórnun hafi líka verið í breytingaferli. Forgangsröð- un sé breytt og rneiri áhersla lögð á leikskólamál, skóla, þjónustu, jafnréttismál, starfsmanna- og kjara- mál, umhverfismál, stjórnsýslu og samráð við íbúa. •.Þarna hafa konur stýrt miklum breytingum sem eru 1 takt við nútímakenningar um stjórnun," sagði Hildur. Hún sagði að þar með hefðu ákveðin gildi og >.kvenlegur“ stíll, sem áður var á jaðri, sannað sig og verið forsenda árangurs. Svafa Grönfeldt, framkvæmdastjóri þróunarsvið- ls IMG, ráðlagði konum að nota vald á jákvæðan hátt. Hún velti því fyrir sér skilgreiningunni á valdi og vitnaði í Pfeffer: „Vald er grunnorkan sem þarf til að hrinda fyrirætlunum í framkvæmd og viðhalda þeim ... án þess geta stjórnendur ekki stjórnað." „Vald er tækifærið til að byggja, skapa og hnika sögunni í nýj- ar áttir.“ Svafa ræddi um nokkrar tegundir valds, en hún sagði nauðsynlegt að nota mismunandi tegund- ir valds eftir kringumstæðum. Hún ræddi það hvern- ig best væri að hrinda áætlunum í framkvæmd og sagði mikilvægt að fá aðra til liðs við sig, en konur eru oft gagnrýndar fyrir að vinna verkin of mikið sjálfar. Einnig þarf að gera sér grein fyrir eigin valdi en oft vanmetum við eða ofmetum eigið vald. Þá er þolinmæði lykilatriði. Þegar fólk vill hlaupa af stað er gott að geta stoppað og ákveðið að fara réttu leið- ina,“ sagði Svafa. Að verða ekki að saltkjöti I máli Kolbrúnar Halldórsdóttur alþingiskonu skein í gegn að hún streittist mjög á móti því að ganga inn í karlaheim á forsendum karlanna enda sagði hún það eina af megináherslum sínum að breytast ekki við hið nýja hlutverk sitt sem þingkona. „Mínar að- ferðir eru ekki þær aðferðir sem vanalega er beitt. Eg horfi gagnrýnum augum, reyni að beita ferskari leið- um en þeim hefðbundnu og trúi því að ég hafi burði til að breyta gamalkunnum aðferðum í stjórnmál- um,“ sagði Kolbrún. Kolbrún játaði að hugsunin um völd væri henni nokkuð fjarlæg enda benti ýmislegt til þess að valda- hugtakið sé fremur karllægt hugtak. Og stjórnmál hafi fengið á sig valdastimpil enda karllægt starf. En stjórnmál snúast um samfélagið og mannlífið í stóru samhengi sagði Kolhrún og vildi beina augum sínum að því hvernig ákvarðanir eru teknar á vettvangi stjórnmálanna þegar fólk kemur úr ólíkum áttum og sjónarmiðin eru margvísleg. Kolbrún sagðist hafa reynslu af því sem leikstjóri að sætta ólík sjónarmið án valdbeitingar. „Eg var nú reyndar ekki svo barna- leg að halda að aðferðir mínar úr leikhúsinu dygðu óbreyttar á þeim vettvangi en ég trúi því þó að að- ferðirnar sem hingað til hefur verið beitt í heimi stjórnmálanna hafi mjög gott af því að vera settar undir kastljós einstaklinga með mína reynslu." Kolhrún minnist þess að hafa sagt blaðamanni fyrir mörgum árum að hún ætlaði sér ekki í pólitík. „Ástæðan sem ég gaf fyrir þessu svari mínu var sú að þegar maður setti ferskan kjötbita í pækil þá yrði hann líka saltkjöt! Gegn þessu lögmáli er ég einmitt núna að vinna. Ég lít sem sagt þannig á að einmitt kona með minn bakgrunn geti hreyft við hinum gam- algrónu aðferðum og þannig komið af stað einhverj- um breytingum." Hún sagði að þessar tilraunir hefðu ekki gengið vel og taldi ástæðuna þá að meðal rót- gróinna stjórnmálamanna sé enginn vilji til að ná sameiginlegri niðurstöðu. Hún sagðist ekki sátt við það að í stjórn- málum hafi fólk eingöngu völd sé það í meirihluta. Hún telur að hægt sé að hafa annan hátt á. Til dæmis að meirihlutinn sæktist eftir sam- starfi við minnihlutann um að leysa mikilvæg mál en víða í Evrópu er löng hefð fyrir minnihlutastjórnum, Þórkatla Aðalsteinsdóttir: Konur óttast að nýta sér tengslin í eigin þágu eða þágu verkefnis en karlar hika ekki við það. Konur þurfa að hætta pempíugangi. Þær eru of uppteknar af því að gera hlutina rétt, eru ný- komnar á vinnumarkaðinn og í stjórnun og vilja ekki •áta hanka sig á klíkuskap.

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.