Vera - 01.08.2002, Qupperneq 68
vera
kvikmyndir
Úlfhiidur Dagsdóttir
Börn og bíó
I vestrænu samfélagi gnægta er mikilvægt að gera börn sem fyrst að neytendum.
Umræðan um áhrif f)ölmiðla á börn hefur síðan einkennst af áhyggjum af ofljeldi
og kynlífi. Mig langar til að velta upp öðrum hliðum illra áhrifa, spurningunni um
kynhlutverk og hvernig þeim eru gerð skil í barnamyndum. Það er mikilvægt að
fylgjast með þessum myndum því ljóst er að afþreyingarefni af ýmsu tagi er orðinn
ríkur þáttur í lífi hvers barns. Persónulega finnst mér sú innræting sem snýr að sí-
endurteknum, íhaldssömum kynhlutverkum mun hættulegri en það að barnið sjái
ofbeldi eða nekt og finnst því mjög mikilvægt að benda barninu á það hversu hall-
ærisleg hefðbundin kynhlutverkaskipun er - hlæja til dæmis hátt að hetjulegum
karlmennskustælum og fussa yfir feimnum og fórnfúsum ungmeyjum.
Mulan
Mulan (Disney 1999) er byggð á kínverskri sögn og lýsir sterkri kven-
hetju sem neitar að beygja sig undir kynhlutverk sitt og stendur uppi
sem sigurvegari að hætti hetja. Þegar Húnarnir ráðast yfir Kínamúrinn
er gert almennt herútkall, en vegna sonaleysis verður aldraður faðir
Mulan að fara í stríðið. Nema einkadóttirin Mulan sættir sig ekki við
þetta, sker hár sitt og stelur búningi og sverði föður síns og heldur í her-
þjálfun. Myndin er uppfull af skemmtilegum hugmyndum og flottum
senum, handritið vel skrifað og sagan ánægjulega laus við þá yfirdrifnu
væmni sem oft einkennir Disney.
Shrek
Mulan þótti óvenju
framsækin teiknimynd.
Árið 2001 tók Shrek frá
Dreamworks upp þann
þráð, en hann er grænn
að lit og - eins og hann
bendir á sjálfur - afskap-
lega lítið hetjulegur.
Fyrst virðist sem um
hefðbundið ævintýri sé
að ræða, Shrek tekur að
sér að bjarga prinsessu
fyrir lávarð sem er of lág-
vaxinn til að standa í
hárinu á drekum. Shrek rýkur af stað og bjargar píunni með stæl. Nema
svo kemur skemmtilega í ljós að prinsessan sú er vel fær um að bjarga
sjálfri sér og reynist harla óhefðbundin kvenpersóna. Að auki er drek-
inn bæði kvenkyns og besta skinn. Eg segi ekki meir, vil ekki spilla end-
inum fyrir þeim sem eiga þessa gleði enn í vændum. Fyrir utan leik
með kynhlutverk er myndin skrýtin og skemmtileg úttekt á ævintýra-
heimum.
Toy Story
Myndirnar um leikföngin, Toy Story 1 og 2 (Buena Vista, 1995, 1999)
eru gott dæmi um myndir sem vekja upp allskonar áhugaverðar vanga-
veltur um leiki og barnaefni - en gefa hinsvegar algerlega steríla mynd
af kynhlutverkunum. 1 fyrri myndinni er varla um neina kvenpersónu
að ræða en sagan segir frá leikföngum ungs drengs sem eiga sér sjálf-
68 stætt líf þegar hann sér ekki til (en öll börn vita að leikföngin þeirra eru
í raun lifandi). Aðahetjan er
kúrekinn Woody og eina kvenper-
sónan er hjarðmær sem er eins
konar kærasta hans og hefur ekk-
ert annað hlutverk en það. I næstu
mynd er spilað á hugmyndir um
afþreyingarmenningu og fagur-
menningu, en þar er Woody rænt
af manni sem safnar einstökum
leikföngum til að setja á safn.
Woody hittir í fyrsta sinni afgang-
inn af sínu 'setti' - kúrekastelpu
og hest. Hún vill fara á safn í stað
þess að láta krakka skemma sig,
en hann vill fara aftur heim til
stráksins og vera honum áfram-
haldandi uppspretta gleði og
leikja. Þrátt fyrir að í fyrstu virðist
þetta kvenhlutverk bjóða upp a
meiri möguleika en hjarðmærin
fékk, þá reynist pían gersamlega
ómöguleg sem alvöru kvenhetja.
Maurar
Pöddumyndirnar tvær Antz og
Bug's Life vöktu ekki síður athygli
á sínum tíma, enda einkennast
allar þessar myndir af því að fræg-
ir leikarar voru fengnir til að tal-
setja. Báðar sýna okkur samfélag
iðjusamra maura sem er ógnað.
Einstaklingssinnaður maur hefur
sig upp fyrir fjöldann og bjargar
öllu, giftist mauraprinsessunni og
tekur við búinu, þarsem hefð-
bundin iðjusemi hel^lur áfram. I
Antz (Dreamworks, 1998) er öll-
um hefðbundnum kynhlutverk-
um haldið vandlega til haga og
mauraprinsessan er afskaplega
máttvana pía. í Bug's Life (Disney,
1998) má finna aðeins meiri til-
brigði við kvenhlutverk því þ°
prinsessan sjálf sé gagnslaus þa
reynist litla systir hennar heil-
mikil hetja, auk þess sem mariu-
hæna sem blandast í málið er
skemmtilega kynvillt, því þetta
ofurkvenlega skordýr er í raun
karlkyns með grófa rödd og allt!
Kannski ekki bylting í bala, en
smáatriði sem skiptir máli.