Vera - 01.10.2003, Síða 29
KONUR ERU ALLTAF VIÐMIÐIÐ í HUGUM RÓTTÆKRA FEMÍNISTA OG FEÐRAVELDIÐ ALLTAF
VANDAMÁL. KARLMENN ERU ÁBYRGIR FYRIR KÚGUN KVENNA. KARLMENN GRÆÐA Á KÚGUN
KVENNA OG ÞEIR MUNU BEITA ÖLLUM TILTÆKUM BRÖGÐUM TIL AÐ HALDA VÖLDUM
ingarfrelsi. Rök frjálshyggjumanna um
1 að öll tjáning eigi að vera leyfileg sé í
raun málsvörn kúgunar en ekki röksemd
fyrir því að konur eigi að hafa val um að
selja líkama sinn. Undir þetta taka tugir
þúsunda róttækra femínista og fara þar
fremstar í flokki þær Andrea Dworkin,
Nikki Craft og Diana Russell.
Áhersluatriði róttækra femínista
Róttækur femínismi er sú grein femín-
isma sem heldur því fram að jafnrétti
fyrir konur verði ekki náð nema karl-
menn sem heild gefi eftir völd, ríki-
dæmi og forréttindi þau sem feðraveld-
ið hefur tryggt þeim.
Róttæknin tengist einfaldlega því að
vilja komast fyrir RÓT vandans, sem er
feðraveldið. Konur eru alltaf viðmiðið í
hugum róttækra femínista og feðraveldið
alltaf vandamál. Karlmenn eru ábyrgir
fyrir kúgun kvenna. Karlmenn græða á
kúgun kvenna og þeir munu beita öllum
tiltækum brögðum til að halda völdurn.
Konur eru kúgaðar af feðraveldinu
sem er það stigveldi karla sem þeir nota
til að kúga konur. Því er viðhaldið með
einu eða fleiri af eftirtöldum atriðum:
Móðurhlutverkinu er þvingað upp á
konur þar sem þeim er rneinað urn
getnaðarvarnir og fóstureyðingar; karl-
ar beita konur ofbeldi; konur eru
neyddar til að taka þátt í lclámi, horfa á
það eða líkja eftir því.
Til þess að binda enda á kúgun
kvenna verður að afnema feðraveldið.
Það mun m.a. gerast með því að:
• skilgreina og hafna hefðbundnum
kynhlutverkum og hvernig konur eru
sýndar í tungumáli, fjölmiðlum og
einkalífi sínu.
• berjast gegn skilgreiningu feðraveldis-
ins á kynlífi kvenna með því að banna
klám.
• veita konum fullt frelsi til að stjórna
barneignum sínum (víðast í heiminum
hafa þær ekki þetta frelsi, m.a. hér á
i landi þar sem þeim eru fóstureyðingar
ekki í sjálfsvald sett heldur þurfa leyfi
tveggja lækna eða læknis og félagsráð-
gjafa).
• koma í veg fyrir mansal.
• réttindi kvenna hafi forgang umfram
„þjóðlegar hefðir“, „menningarbundinn
mun“ og „trúarhefðir" - sem eru oft af-
sakanir fyrir kúgun kvenna.
• setja lög.
• beita fléttulistum og jákvæðri mis-
munun.
En eru þá ekki allar sammála?
Þriðju bylgju femínistar eru flestar dæt-
ur annarrar bylgju femínistanna (eða
annarra af 68 kynslóðinni) og hafa not-
ið góðs af baráttu rauðsokkanna og síð-
ar Kvennalistans (m.a. Kvennaathvarf-
ið, Stígamót, fóstureyðingar og dag-
heimili). Þetta er kynslóð sem er alin
upp við að rnark sé tekið á konum, að
rödd þeirra heyrist, þar af leiðandi hef-
ur hún meira sjálfstraust og hefur jafn-
vel aldrei þolað neitt misrétti á eigin
skrokki. Að mínu rnati liggur helsti
munurinn milli hreyfinganna tveggja í
afstöðu til karlmanna.
Félagar í Femínistafélagi Islands
hafa sagt: „Að vera kona er að ganga í
of litlum skóm. Að vera femínisti er að
skilja ástæðuna fyrir því og fræða aðra
urn að það eru ekki fæturnir sem eru of
stórir heldur skórnir sem eru of litlir.“
Þarna er lykilorðið að „fræða“ en rót-
tækir annarrar bylgju femínistar vilja
aftur á móti boð og bönn á misrétti.
Það má vera að enn séu til karlmenn
sem hafa ekki heyrt að of litlir skór
meiði og séu skaðlegir en líklegra er þó
að þeim sé bara alveg sama um líðan
kvenna; eða finnist bara gott að skórnir
rneiði þær. Róttækir femínistar líta hins
vegar ekki svo á að karlar hér á Vestur-
löndum séu ómeðvitaðir, ekki lengur.
Líklega eru þó einhverjir unglingsstrák-
ar sem hafa ekki heyrt það fyrr að kon-
um þyki ekki gott að láta nauðga sér.
Það er jú einu sinni svo að undir stjórn
karla (þ.e. feðraveldisins) hefur þeirn
verið talin trú um að konurn þyki það
gott.
Karlmenn
Rótttækir femínistar líta svo á að karl-
menn - sem hópur - séu óvinurinn.
Þriðju bylgju femínistar trúa því að
karlmenn geti verið alveg jafn miklir
femínistar og þær sjálfar og að þeir vilji
í fullri einlægni jafnan rétt karla og
kvenna. Þeir eru því boðnir velkomnir
- í hópurn - og ekki stuggað við þeim
fyrr en þeir hafa fullkomlega gengið
fram af öllum konum með orðbragði
eða látæði sínu. Mörg dæmi um þetta
Það eina sem öllum femínistum,
hægri og vinstri og af öllum bylgj-
um, virðist koma saman um er að
konur eigi að fá jafnhá laun og
karlar. Allt annað virðist vera um-
deilanlegt.
mátti sjá á póstlista femínista síðastlið-
ið vor.
Þó margir ungir karlmenn séu mun
meðvitaðri en fyrri kynslóðir kyn-
bræðra sinna, og vilji ef til vill femín-
ismanum vel, þá gera þeir það ekki
nema með skilyrðum - á sínum for-
sendurn. Dæmi af póstlistanum tala
sínu máli: Karlarnir kvörtuðu undan
því að vera ávarpaðir sem konur (sæl-
ar) og auðvitað var tekin upp karlkynj-
uð eða afkynjuð orðræða (ágætu / kæru
femínistar, sæl öll) til þess að körlunum
liði nú örugglega vel í sínu nýja hreiðri!
Mikið púður fór svo í að útskýra fyrir
þeim skaðsemi vændis og um tíma má
segja að þeir hafi algerlega stjórnað
umræðu á póstlistanum. Sumir þeirra
héldu því þó statt og stöðugt fram að
þeir væru femínistar eða hlynntir hon-
um - héldu þó frammi goðsögnini urn
hamingjusömu hóruna og reyndu
ítrekað að halda á lofti þeirri hugmynd
að konur væru sífellt að ljúga nauðgun-
um upp á karlmenn. Einn þeirra vildi
meira að segja láta reka Rúnu Jónsdótt-
ur á Stígamótum af póstlistanum vegna
þess að hún væri hrokafull og sagði að
hún yrði að: „Læra að bera virðingu
fýrir þessu sjónarhorni.“!
Það voru líka nokkrir karlar í
kvennahreyfingum annarrar bylgjunn-
ar, sumir þeirra snerust algerlega gegn
þeim, sbr. Rod Van Mechelen sem er
mjög stoltur af því að standa fyrir
„backlash" og talar nú um femínista og
aðrar konur sem „rýtandi gyltur“.
Mín skoðun er sú að hver sá karl
sem er í kvennahreyfmgu sé líklegur til
að snúast gegn henni þegar hann áttar
sig á að hans markmiðum er ekki best
þjónað þar. Verði hinsvegar hagsmun-
um karla best þjónað innan femínisma
tel ég þann femínisma ekki standa und-
ir nafni.
Titill greinarinnar vísar ekki í efnisatriði
bókar með satna nafni. Heimildaskrá er
að fttma á www.vera.is
vera /5-6. tbl. / 2003 / 29