Vera - 01.10.2003, Síða 33
VIÐ LEGGJUM METNAÐ OKKAR í AÐ VINNA VEL OG ÞRÓA ÁFRAM GÓÐAN STARFSANDA í ANDA
GILDANNA OKKAR. ÁRLEG STARFSMANNAVIÐTÖL ERU T.D. MIKILVÆGUR ÞÁTTUR í ÞVÍ AÐ
AUKA VELLÍÐAN OG HALDA GÓÐU SAMBANDI MILLI STARFSMANNS OG YFIRMANNS
t.d. hjá þeim sem sjá um eignastýringu og þjónustu við
fjárfesta. Hjá VÍB voru hlutföllin i stjórnendastörfum nokk-
uð jöfn. Vilborg tók mikinn þátt ífélags- og nefndastörfum
sem tengjast verðbréfaviðskiptum meðan hún vann hjá
VÍB, sat t.d. í stjórn Verðbréfaþings íslands sem síðar varð
Kauphöll Islands. Þá voru tvær konur í stjórninni en auk
Vilborgar sat Erna Bryndís Halldórsdóttir endurskoðandi
þar. Vilborg sat einnig í Prófnefnd verðbréfamiðlara í
nokkur ár en nefndin kom af stað námi til löggildingar í
verðbréfamiðlun og stendur nú fyrir prófum í því námi.
Úr verðbréfum í starfsmannastjórn
Vilborg hafði starfað við verðbréfaviðskipti í yfir 15 ár þeg-
ar hún ákvað að hætta og söðla alveg um. Hún sagði upp
hjá VlB og var kvödd með pompi og prakt - leyst út með
gjöfum og veislum. Hún ákvað að taka sér gott frí en þeg-
ar henni bauðst að gerast starfsmannastjóri íslandsbanka
þáði hún starfið. Hún hóf því aftur störf hjá bankanum í
febrúar 2002, þótt hún hafi gert ráð fyrir því þegar hún
hætti að vera að kveðja fyrirtækið.
„Ég sé ekki eftir því að hafa tekið þetta starf því það
liggur alveg á mínu áhugasviði. Ég er með gott fólk með
mér í deildinni en hér vinna níu manns, í rúmlega átta
stöðugildum og sjá m.a. um mannaráðningar, launaúr-
vinnslu, fræðslu- og starfsþróunarmál og ýmsa þjónustu
við starfsfólk bankans, ásamt umsjón með innra neti bank-
ans. Mitt starf felst í stefnumótun starfsmannamála, ráð-
gjöf við stjórnendur, ráðningar og starfslok og allt þar á
milli í samstarfi við aðra í deildinni. Það er sterkur hóp-
vinnukúltúr við bankann og hefur verið alla tíð enda finnst
mér bankinn mjög góður vinnustaður."
Sem dæmi um góðan vinnuanda í íslandsbanka nefnir
Vilborg niðurstöður árlegrar vinnustaðagreiningar sem
framkvæmd er af IMG Gallup þar sem viðhorf starfsfólks til
ýmissa þátta eru könnuð, svo sem vellíðunar á vinnustað,
endurgjafar, viðhorfa til umhverfisins, stjórnenda o.fl. (s-
landsbanki hefur komið mjög vel út úr þessari greiningu.
Á síðasta ári fékk bankinn einkunnina 4.52 af 5 möguleg-
um fyrir starfsánægju sem er hæsta einkunn sem íslenskt
fyrirtæki hefur fengið og var svarhlutfallið 95%. „Við telj-
um að almenn starfsánægja skili sér í bættri þjónustu við
viðskiptavini og áfram í bættri afkomu fyrirtækisins en
hún hefur verið mjög góð," segir Vilborg. „Nýlega var lok-
ið við að semja nýja starfsmannastefnu fyrir bankann og
þar er starfsánægja ein af höfuðmarkmiðunum. Við leggj-
um metnað okkar í að vinna vel og þróa áfram góðan
starfsanda í anda Gildanna okkar. Árleg starfsmannaviðtöl
eru t.d. mikilvægur þáttur í því að auka vellíðan og halda
góðu sambandi milli starfsmanns og yfirmanns. En þó
mikil áhersla sé lögð á góðan starfsanda þá er það síðast
en ekki síst árangur í starfi sem áherslan er lögð á."
Spírurnar - félagsskapur kvenstjórnenda í
íslandsbanka
Þegar Vilborg er spurð um kynbundinn launamun segist
hún vera að vinna að samanburði á launum karla og
kvenna. Hún hefur lokið könnun á starfsmönnum útibú-
anna. Þar kom í Ijós að ekki er munur á launum á milli
kynja. Nú er verið að bera saman laun í höfuðstöðvunum á
Kirkjusandi. „Ef í Ijós kemur að um verulegan launamun
fyrir sambærilega vinnu sé að ræða verður það skoðað sér-
staklega í samráði við stjórnendur," segir Vilborg. „[ jafn-
ræðisstefnu bankans eru ákvæði um að fyllsta jafnræðis
skuli gætt á milli starfsfólks og á það jafnt við um laun sem
aðra þætti. Jafnræðisnefnd er starfandi innan bankans og
mun hún skoða niðurstöðu könnunarinnar. Formaður
nefndarinnar er Herdís Pála Pálsdóttir sem jafnframt er
fræðslustjóri bankans.
„Vilborg minnir á að (slandsbanki var einn af helstu
styrktaraðilum verkefnisins Auður í krafti kvenna og telur
að það hafi haft mikil og góð áhrif innan bankans. Margar
konur úr bankanum sóttu námskeiðin, m.a. Leiðtoga Auð-
ar námskeiðið og í framhaldi af því stofnuðu kvenstjórn-
endur innan bankans félagsskapinn Spírurnar þar sem fé-
lagar eru 26 talsins.
„Markmið Spíranna er að styrkja tengsl á milli okkar,
miðla reynslu og auka þekkingu. Við höfum farið saman í
fyrirtækjaheimsóknir, haldið námskeið og fengið til okkar
gesti. Þetta er mjög skemmtilegur félagsskapur enda mik-
ilvægt að konur í leiðtogastörfum hittist og styrki hver
aðra. íslandsbanki tók Ifka þátt íverkefninu Hið gullna jafn-
vægi, bæði sem þátttakandi og styrktaraðili. Það hefur
verið stefna bankans að auðvelda starfsfólki að samræma
atvinnu og einkalíf og hefur þátttaka í þessu verkefni
styrkt það starf."
Eignaðist barn 38 ára
Að lokum er Vilborg spurð um sjálfa sig og lífið fyrir utan
vinnuna. Hún er í sambúð með Ásgeiri Ásgeirssyni bygg-
ingafræðingi og eiga þau 8 ára gamla dóttur en fyrir átti
Ásgeir 12 ára gamlan son og 18 ára dóttur.
„Ég eignaðist barn seint," segir hún og hlær. „Ég var
orðin 38 ára en fannst frábært að verða mamma og var al-
veg tilbúin til þess. Ég nýt þess að ala dóttur mína upp og
taka þátt í foreldrastarfinu í skólanum, fylgjast með tóm-
stundastarfinu og fleiru sem fylgir börnunum. Ég hafði
upplifað margt áður, hafði ferðast mikið og gert það sem
mig langaði til. Ég tók mikinn þátt (félagsmálum, var t.d.
formaður Félags viðskiptafræðinema þegar ég var í Há-
skólanum og sat seinna í stjórn Félags viðskipta- og hag-
fræðinga. Ég sat einnig í stjórn Rauða krossins í fjögur ár
og í stjórn nokkurra fyrirtækja sem tengjast Rauða krossin-
um. Það var sérlega gefandi starf sem ég gæti vel hugsað
mér að taka þátt í aftur síðar. Við Ásgeir höfum fjölbreytt
áhugamál. Við erum útivistarfólk, höfum gaman af að spila
golf, fara á skíði og eigum sumarbústað sem við notum
mikið bæði sumar og vetur. Ég reyni sjálf að gæta jafn-
vægis milli vinnu og einkalífs og passa að eiga helgarnar
fyrir fjölskylduna, þó það takist ekki alltaf," sagði Vilborg
að lokum. X