Vera - 01.10.2003, Page 56
Martha Árnadóttir
/ ALÞINGISVAKT
- SAMFÉLAG JAFNRÉTTIS, EÐA HVAÐ?
I tilefni af Femínistavikunni 24. október til 1. nóvember skrifaði stjórn-
málahópur Femínistafélags Islands alþingismönnum bréf með áskorun
um að láta til sín taka á ýmsum sviðum jafnréttismála. í bréfinu eru
upplýsingar um launamun kynjanna, skipan í nefndir og ráð á vegum
hins opinbera og stöðu kynjanna í æðstu stöðum stjórnsýslunnar. í
bréfinu er einnig vikið að málefnum sem brenna á okkur í samfélags-
umræðunni í dag, t.d. samþættingu jafnréttissjónarmiða við aðra mála-
flokka og vændi, og skorað á alþingismenn að leggjast á eitt um að
jafna stöðu kynjana svo viðunandi sé. Alþingisvaktin fékk nokkrar al-
þingiskonur til að svara því hvernig þær hyggist bregðast við þeirri
áskorun sem fram kemur í bréfinu.
KOLBRÚN halldórsdóttir,
VINSTRI GRÆNUM
Höfum lagt fram mörg mál
Meðal þess sem við höfum gert er að gefa út sérstaka
stefnu um kvenfrelsi auk þess sem við höfum flutt fjölda
þingmála sem flokkast undir þennan málaflokk. Þar má
nefna þingsályktunartillögu um bætt starfsumhverfí
kvennahreyfmgarinnar á íslandi, tillögu um bann við
umskurði á kynfærum kvenna, frumvarp um úrræði tii
lögreglu um að fjarlægja ofbeldismann af heimili og
banna honum heimsóknir þangað, frumvarp um bann
við kynferðislegum nektarsýningum og skipulagðri
klámþjónustu gegnum tölvur eða síma, að ógleymdu
frumvarpi okkar um að kaup á vændi verði gerð refsi-
verð.
Þá eru ótaldar fyrirspurnir sem við höfunr flutt varð-
andi nauðganir og fleira tengt kynferðisofbeldi. Einnig
höfum við lagt áherslu á ýmis mál er hafa myndu áhrif á
lífsstíl okkar til hins betra, að okkar rnati. Þar má nefna
tillögur okkar um sjálfbæra atvinnustefnu þar sem tekið
er sérstakt tillit til atvinnurekstrar í eigu kvenna og til-
lögur okkar um stuðning við smá og meðalstór fyrir-
tæki. Tillögur okkar um kjarabætur til barnafólks tengj-
ast líka málefnum kvenna, en við höfum lagt til að ríkið
komi að rekstri leikskólans á þann hátt að hann verði
gerður gjaldfrjáls.
Varðandi það hvort eitthvað sérstakt verði gert í til-
efni af áskorunum stjórnmálahóps Femínistafélagsins,
þá er því til að svara að við munum hér eftir sem hing-
að til beita okkur fyrir samþættingu kynjasjónarmiða
inn í alla málaflokka og munum reyna að vekja athygli á
því hversu skeytingarlaus ríkisstjórnin hefur verið varð-
andi það mikilvæga verkefni. Við gagnrýnum ríkis-
stjórnina fyrir að skoða ekki ríkisfjármálin með kynja-
gleraugum og gerum það sem í okkar valdi stendur til
að sýna fram á að þar með sé ríkisstjórnin að skjóta sér
undan þeirri ábyrgð sem hún hefur undirgengist í al-
þjóðasamningum ogjafnvel í sinni eigin stefnumörkun.
56 / 5-6. tbl. / 2003 / vera