Akranes - 01.07.1957, Qupperneq 49

Akranes - 01.07.1957, Qupperneq 49
raunin er, þar sem þeir eiga greiðan að- gang að sinu eigin blaði án nokkurs til- lits hvort frásögn þeirra hefur sannleiks- gildi eða ekki, ef hún aðeins hefur sölu- gildi. Almenningur venst smám saman á að meta sorpblöð að verðleikum og munu þá flestir telja sig standa jafn- rétta, þótt þeir verði fyrir árásum slíkra málgagna. Því miður hafa velflest íslenzk blöð eitt einkenni sorpblaða. Þau birta stund- um dylgjur og jafnvel svívirðingar um menn, án þess að hafa gefið þeirn, sem víta skal, tækifæri til þess að segja sína skoðun á málunum eins og talin er sjálf- sögð skylda hjá erlendum menningarblöð- um. Þetta hefur jafnvel gengið svo langt, að menn hafa ekki fengið að bera hönd fyrir höfuð sér í sama blaði og árásin á þá er hafin en verða að leita á náðir ann- arra blaða með leiðréttingar. Sem betur fer mim þessi ósiður fara minnkandi og ætti að hverfa með öllu úr íslenzkri blaðamennsku. Annað meginhlutverk islenzkra dag- blaða eru þjóðmálaumræður. Þetta hlut- verk getur bæði aukið og dregið úr vaxt- armöguleikum blaða. Málgögn fjöl- mennra stjórnmálaflokka hafa að öðru jöfnu betri aðstöðu en málgögn smá- flokka. Hins vegar er hætt við eins og áð- ur er að vikið, að flokkssjónarmið verði um of rikjandi og dragi úr almennu gildi blaðanna. Á þessu sviði tel ég að gera þyrfti endurbót á íslenzkum blöðum. Eins og nú standa sakir og eins og verið hefur eins lengi og ég man eftir þjóðmálaum- ræðum hérlendis hafa þær verið um of mótaðar af persónulegri áreitni og jafnvel svívirðingum um forustumenn í stjórn- málum. Þessi túlkun þjóðmála er afar óheppileg þar eð almenningur verður að velja á milli þess að telja alla forustu- menn þjóðarinnar afbrotamenn á mis- munandi stigum eða leggja takmarkaðan trúnað á það, sem blöðin segja um þá. Hvorugur kosturinn er góður. Sé hinn fyrri valinn er hætt við að fólki þyki forustumönnum varlega treystandi. Taki menn þann síðari hlýtur það að draga úr trausti á blöðum almennt og má þá vel svo fara, að enginn trúi þeim held- ur þegar þau segja satt. Með þessu móti er raunverulega ekki hægt að halda uppi eðlilegri og réttmætri gagnrýni á ráða- mönnum vegna þess, að lesendur blað- anna hafa vanizt á að taka ekkert mark á henni. Af þessu leiðir aftur að valda- menn hér geta leyft sér framkomu, sem myndi teljast alls kostar óviðurkvæmileg og jafnvel varða stöðumissi t. d. í Eng- landi og Sviþjóð, þar sem strangar sið- ferðikröfur eru gerðar til valdamanna. Umræður urn þjóðmál eiga að vera málefnalegar en ekki bera á sér blæ per- sónulegrar áreitni. Sé ástæða til að gagn- rýna valdamenn á að gera það af fullri kurteisi en alvöruþunga og leyfa mönn- um að lesa gagnrýnina áður en hún er birt, svo að þeir geti tekið afstöðu til hennar. Vera má, að þrætuaðferðir íslenzkra stjórnmálamanna í ræðu og riti einkenn- ist allmjög af þvi, hversu fámenn þjóðin er, a. m. k. finnst þeim, sem standa utan við stjómmálaþrasið þær hafa á sér nokkum keim krakkavaðals á stóru heimili þar sem eitthvað ber á milli. Slíkur málflutningur getur ekki til lengd- ar haldizt hjá þjóð, sem telur sér miklar gáfur og úrvalsbókmenntir til gildis. Eft- ir höfðinu dansa limimir og lágkúrulegt þras blaðanna hlýtur að slæva en ekki styrkja siðferðismeðvitund almennings. Að vísu mun þeim fara sífækkandi, sem lesa stjórnmálagreinar blaðanna, en ekki er sú lausn málsins heldur til fyrirmynd- AKRANES 185
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Akranes

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.