Akranes - 01.07.1957, Blaðsíða 67
TIL FRÓÐLEIKS OG SKEMMTUNAR
(Framháli af 2. kápusiSu.)
hið næsta í sitt umdæmi. Hall-
grimur hefur því sjálfsagt oft haft
ástæðu til að reiðast við sýslu-
mann og muna honum þegjandi
þörfina. Þó ekki væri nema út
af því, að dæma einn mesta vel-
gerðarmann þeirra Hallgrims og
Guðríðar, Grim Bergsson, fyTÍr að
skjóta yfir þau skjólshúsi, er þeim
lá mest á. Einhvem timan þegar
í odda skarst með þeim presti og
sýslumanni, á Torfi að hafa kall-
að Hallgrim „líðilegan slordóna",
en Hallgrímur var fljótur til
svars:
Áður en dauður drepst úr hor
drengur á rauðum kjóli,
feginn verður að sleikja slor
slepjaður húsgangs drjóli.
Margar þjóðsögur eru til um á-
kvæðaskáldskap Hallgrims. Mætti
þar margt til nefna, þótt ekki
verði það gert að þessu sinni.
Ýmsir munu t. d. hafa þá litið svo
á, að þetta hafi orðið að óþægileg-
um áhrínsorðum gagnvart Torfa
sýslumanni, því að hann var
„dæmdur frá embætti, æru og
eignum". Um Torfa áfegir svo í
Isl. æv. V. b. bls. 25: „Hann var
mesti hörkumaður, fégjam og ó-
vinsæll, talinn illa að sér í lög-
um. Var dæmdur frá embætti
1660 með lögmannsdómi og í
sektir miklar til konungs fyrir
illmælgi".
— ★ —
Sumum finnst að Hallgrimur
sé lengi sár og minnugur þessa
valdsmannsmótgangs og stórbokka
þar syðra, og að þess gæti nokk-
uð í skáldskap hans. Ég held að
of mikið sé úr þessu gert. Það var
ekki óeðlilegt að valdstjómar-
menn kæmu við sögu, er hann
yrkir Passiusálmana. Sú öld var
um margt lik þeirri, er hann lifði
á, og svo er meira að segja enn
í ýmsum efnum. Hitt fór ekki
fram hjá svo gáfuðum, snjöllum
manni, hversu það væri þjóðfélag-
inu hættulegt að slíkir vanmeta-
menn væm i ábyrgðarmestu stöð-
um þjóðfélagsins. Hallgrimur var
svo sannur maður og heilsteyptur,
að hann gerði engan greinarmun
á „standi" manna. Hins vegar sá
hann vel með sinni samtið þann
ægilega löst, — sem enn má finna
á vorri öld. — Þetta sést bezt á
eftir farandi vísu Hallgríms:
Rikir falla i ráðsök,
reyna þar með hálsbein.
Rétt er óðar fram féð,
flenna greypar valdsmenn.
Leysir mútan meinhnút,
má hann kallast hreinn þá.
Glottir við sá gaf kvitt
og gónir upp á Mammón.
Þama hittir hvert orð í mark
og segir langa sögu i meitluðu
máli. Hallgrimur sér þetta allt
og l>að særir hann. Ekki vegna
þess að hann hafi orðið fyrir barð-
inu á þessum mönnum og þeirra
nótum. Heldur af þvi hve þetta
sé þjóðhættulegt, fyrir utan af-
stöðu einstaklinganna til Guðs.
Þótt hann þannig segi öld sinni
til syndanna, er hann hafinn yfir
það, að hafa einstaklingana bara
að skotmáli. Það sést bezt á hinni
heitu einlægu bæn hans fyrir
þessum mönnum í 8. P.s. 23. v.:
Drottinn Jesú, þú lífsins ljós,
lýstu valdstjórnarmönnum,
svo þeir sem ráða yfir oss
eflist að dyggðum sönnum.
— ★ —
Á 17. öld átti þjóðin bágt á
marga vegu. Sultur gerði menn
að vergangsmönnum, og viða var
svo þröngt í búi að fólk kveið fyr-
ir að fá næturgesti. Var þvi fólki
vafalaust oft úthýst. Ekki alltaf
af illvilja, heldur armóði og mat-
arskorti. Það bitnaði ekki alltaf
á umrenningum, heldur einnig
þeim, sem ferðast þurftu i nauð-
synja erindum fyrir sig og aðra.
Þannig á hún að vera til komin
visan, sem Hallgrímur á að hafa
gert um gestrisni þeirra bænda í
Hraunum, en þar átti honum að
vera úthýst:
Oti stend ég ekki glaður,
illum þjáðum raunum.
Þraut er að vera þurfamaður
þrælanna í Hraunum.
— ★ —
Hallgrímur segir sultarsögu
þessara ára í fám orðum og á-
takanlegum, af sinni alkunnu
fimi i eftirfarandi vísu:
Margir tína murur, smára,
moskað hey og rót ei klára
- seðja með því svangan bel -
fifla, súrur, söl og kjama;
segðu’ ei lengur frá þvi ama,
litlu’ er betra líf en hel.
Þá kom líka góðæri við og við
t657, fyrir réttum 300 ámm.
Hann gleymir ekki að segja frá
því. Til þess þarf hann heldur
ekki málalengingar, heldur að-
eins eina vísu. Þar lofar liann
„veður. mjúk, engin fjúk, all-
sjaldan frost eða snjó. — Hvorki
hörku mun né mein, máttum
því finna. — Þessa vægð þökk-
um vér góðri miskun ferskri
drottins dáð, hafi nú lof og heið-
ur guð, á himni og jörðu“.
— ★ —
1 bili skal svo staðar numið
með visu þeirri, er hann á að
hafa ort sem sjálfslýsingu af sér:
Sá, sem orti rimur af Ref,
reiknast ætíð glaður,
með svartar brýr og sívalt
nef,
svo er hann uppmálaður.
AKRANES
203