Freyr

Volume

Freyr - 15.09.1978, Page 57

Freyr - 15.09.1978, Page 57
Viljum síst bregða fæti fyrir velgengni hrossa- bænda. En hætt er við að fleiri kæmu á eftir. Þú ert úr héraði, þar sem fer saman sýslan og svæði búnaðarsambandsins, og ert formaður búnaðarsambands- ins auk þess að vera fulltrúi hér. Gœtir þú ekki hugsað þér, að búnaðarsambandið gæti styrkt sína aðstöðu með því að taka meira að sér fyrir Stéttarsambandið? Þetta gæti sjálfsagt orðið báðum styrkur. En það var kannski það, sem um var deilt á stofnfundi Stéttarsam- bandsins á Laugarvatni á sínum tíma 1945. Sumir vildu hafa Stéttarsambandið í nánum tengslum við búnaðar- samböndin, en aðrir hafa þetta aðskilið til grunna. En ég sé nú ekki annað en samstarf þarna á milli yrði til bóta og til að efla starfsemina. Þetta eru allt greinar á sama meiði og sömu aðilarnir, sem að þessu standa. Hvað er það fleira, sem þið eruð að rœða? Þetta er það helsta, en auk þess hefur borist beiðni frá Samtökum hrossabænda um að fá beina aðild að Stéttarsambandinu. Við viljum auðvitað síst af öllu bregða fæti fyrir velgengni hrossabænda. En það hafa komið fram ákveðnar raddir í nefndinni um það, að þeir og aðrir slíkir hópar ættu að geta náð fram rétti sínum í gegnum aðild að búnaðarfélögunum eins og aðrir bændur. Þeir eru flestir og ættu sjálfsagt allir að geta verið félagar í búnaðarfélögunum. Þó að ekki liggi fyrir form- leg beiðni frá öðrum hópum, er vitað, að t. d. svínarækt- armenn hafa rætt þetta töluvert við stjórn Stéttarsam- bandsins, bó ekki hafi það orðið til þess, að beiðni kæmi Allir „hópar“ eiga að frá þeim geta náð rétti sínum í Það væri svo hægt að hugsa sér beiðnir frá fleirum, gegnum búnaðarfélögin. alifuglabændum, hlunnindabændum, t. d. Æðarræktar- félaginu, og fleiri slíkum, þannig að ekki verður séð, hvar hægt yrði að setja mörkin. Víst er það, að erfitt yrði að finna réttvægi hvers og eins hóps, ef út á þessa braut yrði farið. Auk þess mundi þetta í mjög mörgum tilfellum geta þýtt tvöfalda aðild að Stéttarsambandinu. Álit sjömannanefndarinnar er að visu ekki rætt í laga- nefnd heldur framleiðslunefnd, en hvað finnst þér um það? Það er að mínum dómi mjög í samræmi við þá stefnu, sem mörkuð var á fundinum á Eiðum í fyrra. Þannig að líta má á það sem nánari útfærslu á því, sem þá var samþykkt, það var eðlilega mjög snöggsoðið, sem þá var ályktað. Þá var fyrst og fremst bent á leiðirnar. Þá var bent á kvótakerfi sem hugsanlega leið. Ég leit svo á þá og geri enn, að það verði að nota þetta nokkuð samhliða. F R E Y R 667

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.