Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.05.2004, Qupperneq 49

Freyr - 01.05.2004, Qupperneq 49
betur hvaða lömb þarf að bæta og geta því slátrað hinum strax sem náð hafa nægilegum þunga. Eins og sjá má á 2. mynd eru lömbin hjá þeim bændum, sem stunda sumarslátrun, mun feitari á Suðurlandi en á Vesturlandi. Fitan er strax meiri í ágúst og eykst mun meira fram á haustið, hjá þeim hluta lambanna sem geymd eru til haustslátrunar. Holdíylling eykst einnig meira á Suðurlandi og um haustið er hún aðeins meiri en á Vesturlandi þó að hún hafi verið minni í ágúst. Lömbin, sem fara um sumarið, eru tekin beint af út- haganum í báðum landshlutum en þau sem bíða fram á haustið á Suðurlandi eru tekin inn á há og fóðurkál í byrjun september. Ef gróðurinn í mýrinni er farinn að falla mikið um miðjan ágúst og jafnvel íyrr getur það haft nei- kvæð áhrif á hlutfall vöðva og fítu í vexti lambanna. Þetta gæti verið ein skýringin, en að hluta til skýr- ist þetta af því að hlutfall fitu í vexti lambanna eykst almennt með auknum þroska þeirra. Þetta gerist fyrr hjá gimbrum en hrútum og því ættu menn e.t.v. að velta fyrir sér að láta hærra hlutfall gimbra í sumarslátrun en almennt virðist vera raunin. A Vesturlandi er einn bóndi sem setur 80% af sínum lömbum í sumarslátrun vegna þess að dilkamir falla í verði vegna fítu ef þeim er slátrað á hefðbundnum tíma. Hann lætur æmar bera á hefðbundnum tima og gefur ánum um 20 g af físki- mjöli og maís á dag eftir burðinn. Æmar em á túni í þrjár vikur áður enn þeim er slepp í úthagann, sem er hálent heimaland. Lömbin em tekin beint af úthaganum til slátr- unar og er meðalfallþunginn 17,5 kg. Heimalandið er mjög víðlent og getur féð verið að elta nýgræð- inginn til fjalla langt fram eftir sumri. Annar bóndi er að ná mjög góð- um árangri bæði í fallþunga og flokkun á sumarlömbum. Þær ær sem nota á í sumarslátmn bera um miðjan apríl. Aðeins meiru er kostað til i kjamfóðri en á hinum bæjunum, 200 g/dag /á, og hefur til vorsins 2003 lömbunum alltaf verið gefið kjamfóður aukalega. Féð er á víðlendu heiðalandi yfir sumarið og getur því elt nýgræð- inginn fram eftir sumri. Miðað er við að lömbin séu ekki léttari en 38 kg þegar þeim er slátrað í sum- arslátrun. Bændur töldu almennt litinn sem engan aukakostnað vegna sumarslátrunarinnar liggja í við- bótarfóðri eða lyfjum. Það gæti verið vegna þess að í flestum til- fellum hefst sauðburður ekki mik- ið fyrr en vanalega. Hins vegar lengdi sumarslátmnin sauðburð að vori aðallega hjá Sunnlending- um og smalanir að hausti hjá öll- um. Flestir töluðu um að mikil vinna lægi að baki smölunum og fjárragi í kringum sumarlömbin. Sumum bændum fannst það já- kvætt að geta dreift álaginu yfír á lengri tíma bæði vor og haust og haft þannig betra yfírlit yfír féð. Sumarslátmnin hafði jákvæð áhrif á tekjur bændanna en þau áhrif hafa farið minnkandi undanfarin ár. Ástæðan er sú að álagsgreiðsl- ur Markaðsráðs hafa lítið sem ekkert hækkað á milli ára og út- flutningsskylda hefur verið að aukast í ágúst. Þetta hefur leitt til þess að bændur hafa fækkað lömbum í sumarslátmn nema þar sem vandamál em með fitufell- ingu seinna um haustið. Flestir slátra einu sinni til tvisvar í ágúst og geyma gimbramar fram í nóv- ember og desember til að fá hærra verð, sem e.t.v. em rangar áhersl- ur miðað við það sem fyrr var sagt um skjótari fitusöfnun gimbra en hrúta. Boðuð niðurfelling álags- greiðslna frá Markaðsráði á fítu- flokk 3 (Álagsgreiðslur Markaðs- ráðs kindakjöts, 2003), sem síðar var dregin til baka í ágúst, dró úr umfangi sumarslátrunar 2003. Miðað við meðalflokkun haust- ið 2002, hjá þeim bændum sem tóku þátt i könnuninni um sumar- slátrun, og verð frá Sláturfélagi Suðurlands haustið 2003 þá voru bændumir að fá meira fyrir lamb- ið sem slátrað var um sumarið en það sem slátrað var um haustið. Munaði þar 89 kr/kg (718 kr/lamb) á Suðurlandi og 76 kr/kg (1147 kr/lamb) á Vesturlandi. Þó em lömbin léttari í sumarslátmn- inni. Hagstæðari flokkun, aðal- lega m.t.t fítu, í sumarslátmn, yf- irborganir og lægri útflutnings- prósenta skila sér hér í hærra verði. Þar sem margir af þessum bændum láta hluta af ánum bera fýrr en venjulegt er, frá miðjum apríl fram í byrjun maí, hlýtur ein- hver aukakostnaður að liggja að baki. Æmar þurfa að vera á fóðri i a.m.k þrjár vikur áður en þær komast á beit. Það voru ekki margir bændur, sem gáfu ánum kjamfóður, og þeir sem gerðu það gáfu þeim á bilinu 50-100 g/dag sem er ekki mjög mikið, en kostn- aður samt. Ef bóndi er með 50 ær sem bera fyrr og fær undan þeim 100 lömb sem gefa honum 700 kr/lamb aukalega miðað við haustslátran þá er hann að fá 70 þús. kr. í heildina í viðbótartekjur. Segjum svo að hann gefí hverri á 100 g/dag af millljónablöndu i þrjár vikur þá kostar það 5 þús. kr. plús heyið sem gefíð er sem á að vera besta heyið á bænum. Vinna bóndans í kringum féð er líka kostnaður sem fæstir bændur meta fullu verði. Flestir bændumir fóm út í sumarslátrun í upphafí vegna hærra verðs fyrir afurðirnar. Þeir bændur sem slátra á hefðbundnum tíma hafa ekki hug á því að fara út í sumarslátrun að svo stöddu Framhald á bls. 5 7 Freyr 4/2004 - 49 |

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.