Freyr

Volume

Freyr - 01.05.2004, Page 51

Freyr - 01.05.2004, Page 51
Gjafagrindur á Lambeyrum Ný útfærsla Vímets-gjafagrind- anna var fyrst framleidd í fjárhús- in á Lambeymm en fljótlega bætt- ust fleiri bú í hópinn. Á þriðja þúsund bændur, búfræðinemar og aðrir áhugamenn um sauófjárrækt hafa lagt leið sína í íjárhúsin á Lambeyrum síðustu árin, fyrst að- allega vegna áhuga á gjafagrind- j 3. mynd. Gjafagrindur á Heiðarbæ í Þingvallasveit. Hvanneyri vetuma 1994-95 og 1995-96 sýndu að með tilliti til af- urða og fóðumýtingar var hægt að ná svipuðum árangri við sjálffóðr- un á gjafagrind eins og með hefð- bundnum aðferðum við fóðmn á garða (Jóhannes Sveinbjömsson, 1997). Það var því ekkert því til fyrirstöðu að skoða áfram leiðir til að koma þessari tækni í almenna notkun. Til þess að svo mætti verða þurfti þó að laga ýmis tæknileg atriði. Lengri gerð Vímets-gjafagrind- anna var langt frá því að vera full- þróuð þegar þarna var komið sögu. Það starf var unnið af Daða Einarssyni bónda á Lambeyrum í Laxárdal, í samvinnu við Vírnets- menn. Meðal þess, sem þurfti frekari þróunar við, var stilling á hæð jötustokks. Það var útfært með stillanlegum einingum sem héngu á plasthjólum inni í föstum ytri ramma langhliða grindarinn- ar. Hæð jötustokksins var þá still- anleg, annars vegar með því að breyta stillingu á keðju sem þess- ar einingar héngu í, og hins vegar með því að færa jötuborð upp eða niður eftir atvikum. Með þessu var möguleg mun nákvæmari hæðarstilling en áður sem er al- gert lykilatriði gagnvart því að lágmarka slæðing. Ef kindurnar þurfa að éta upp fyrir sig þá draga þær heyið niður á gólf. Jötustokk- urinn þarf alltaf að vera a.m.k. 10-20 cm ofan við heystálið sem étið er úr til að þetta sé ekki vandamál. 2. mynd. Lengri gerðir gjafagrinda, smíðaðar hjá Virneti hf., i fjárhúsunum á Lambeyrum i Laxárdal. unum en síðar einnig vegna ann- arra nýrra innréttinga í fjárhúsun- um, nýrra gólfgerða, nýrrar girð- ingatækni og annarra merkra nýj- unga. Fullyrða má að þessar heimsóknir, ásamt öðrum heim- sóknum bænda á milli þó í minna mæli væru, hafi gegnt mjög veigamiklu fræðsluhlutverki sem hefur gert framkvæmdir í átt til vinnuhagræðingar í sauðfjárrækt mun markvissari en ella. Vímets-gjafagrindur, bæði sú stutta (1. mynd) og lengri gerðin sem lýst var hér á undan (2. mynd) hafa nú verið til sölu um nokkurra ára bil og hlotið þó- nokkra útbreiðslu. Einnig hafa bændur víða um land þróað sínar eigin útfærslur, og þá ekki síst Freyr 4/2004 - 51 |

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.