Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1940, Side 34

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1940, Side 34
12 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA eins manns, þó að hann nyti þar ein- huga stuðnings starfsbræðra sinna og leikmanna yfir höfuð, sem töldu sig fylgjandi hinni frjálslyndu trú- málastefnu. Það sem fyrir honum vakti var sameining allra frjáls- lyndra Vestur-íslendinga í einn kirkjulegan félagsskap, sem hann áleit vera hið mesta nauðsynjamál. Og í því sem í öðru, sem hann beitti sér fyrir, fylgdi hann skoðun sinni fram með miklum áhuga. Meðan hann þjónaði söfnuðinum í Winnipeg í fyrra skiftið og þau árin, sem hann var útbreiðslustjóri, vann hann að stofnun safnaða til og frá. í Álftavatnsbygðinni (nú Lund- ar) var stofnaður Únítara söfnuður árið 1908, og mun hann að mestu leyti hafa undirbúið stofnun hans. Næsta ár var stofnaður söfnuður í eystri hluta bygðarinnar, Grunna- vatnsbygðinni, sem svo var nefnd, og í þeirri safnaðarmyndun mun hann einnig hafa átt nokkurn þátt; en að miklu leyti var sú safnaðarmyndun verk séra Alberts E. Kristjánssonar, sem þá var við guðfræðisnám og starfaði þessi sumur í þessum bygð- um. Árið 1910 stofnaði séra Rögn- valdur söfnuð í Foam Lake, Sask., en sá söfnuður starfaði ekki lengi, enda fluttust sumir áhugasömustu meðlimir hans burt til fjarlægra staða skömmu síðar. Sama ár var söfnuður stofnaður í Riverton og átti hann nokkurn þátt í stofnun hans, og sömuleiðis annara safnaða, sem stofnaðir voru eftir að hið sam- einaða kirkjufélag var myndað; en ekki er mér að öllu leyti kunnugt um stofnun þeirra safnaða. Hann var ávalt í stjórnarnefnd kirkjufélagsins eða í ráðum með henni. Eftir að séra Ragnar E. Kvaran, sem var for- seti félagsins frá því það var stofnað, hvarf aftur heim til íslands, var séra Rögnvaldur árlega kosinn útbreið- slustjóri (Field Secretary), í heiðurs skyni, og til þess að hann ætti sæti í nefndinni. Var lagt að honum við burtför séra Ragnars að taka við forseta embættinu, en hann vildi ekki gefa kost á sér til þess. Hið kirkjulega starf séra Rögn- valds var, eins og sjá má af þessu, margþætt og umfangsmikið; hann var prestur í þjónustu safnaðar mörg ár; hann vann að útbreiðslu og eftirliti með kirkjulegri starfsemi, bæði beinlínis og óbeinlínis, næstum fjörutíu ár; hann ritaði fjölda rit- gerða um trúmál, sem birtust í Heimi og Heimskringlu allan þann tíma, sem hann starfaði að kirkjumálum. Sem eðlilegt var, var hann mjög handgenginn mörgum forustumönn- um hinnar únítarisku kirkju í Banda- ríkjunum, einkum dr. Samuel A. Eliot, sem var forseti hins ameríska Únítarafélags um margra ára skeið, meðan séra Rögnvaldur var mest starfandi að kirkjumálum. Naut hann hins fylsta trausts þeirra og einlægrar vináttu. f bréfi, sem dr. Frederick M. Eliot, núverandi for- seti þess félags, ritaði hinu samein- aða kirkjufélagi við lát hans, er þannig komist að orði: “His leader- ship in the cause of liberal religion among Americans of Icelandic de- scent, on both sides of the Interna- tional Border, won for him the pro- found respect and admiration of his fellow liberals throughout the coun- try. We recognize the great con- tribution he has made to the intel- lectual and spiritual advancement of
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.