Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1948, Page 91

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1948, Page 91
BLINDA STÚLKAN FRÁ KOLMÚLA 73 full veikindi. Heyrnina fékk hún þó nokkra aftur, en var þó heyrnarlítil mjög, uppfrá því. Og tvo síðustu árin, sem hún lifði, fór heyrn hennar sífelt minkandi svo að óttast var um, að hún yrði alveg heyrnarlaus á ný. Eins og að líkum lætur var þetta þungt áfall henni og ættingjum henn- ur; fanst nú bæði foreldrum og öðrum vandmönnum, að útséð myndi urn framtíð hennar. En er frá leið, og heyrnin kom .aftur að nokkru, tók liún að læra sem önnur börn. (Þó auðvitað með öðrum hætti Jrar sem hún var nú algjörlega blind) og var svo fermd fjórtán ára með ágætis einkunn. Engurn dylst sem um það liugsar og tl! þekti, að um þessar mundir og einnig líka síðar, muni þeir, er næstir henni stóðu hafa lagt mikið á sig henli- ar vegna. Faðir og móðir, einkum móðirin, sátu löngum stundum og lásu fyrir og fræddu litlu blindu stúlkuna sína, sem nú var orðin þeim kærari en nokkru sinn fyr. Starf þeirra bar hka ríkulegan ávöxt, Jrví að í engu ntun dóttir Jreirra hafa staðið að baki öðrum ungmennum á hennar aldri. Einnig gekk hún að öllurn heimilis- verkum sem sjáandi væri. Hún dvelst nú heima að Vattarnesi °g síðar að Kolmúla í sömu sveit, frani tvítugs aldurs, eða þar til 1930 um haustið, að hún fer til Reykjavíkur á Hálleysingja skólann og lærir þar vetr- arlangt dönsku, og að notfæra sér hlindra letur. Fyrir foreldrum hennar hafði lengi vakað, að hún kæmist á blindraskóla utanlands, og var í því skyni, sótt um styrk til Aljnngis. Fyrir 'tnlligöngu góðra rnanna, svo sem þá- verandi forsætisráðherra Tryggva Þór- hallssonar, fræðslumálast. Ásgeirs Ás- geirssonar og forstöðukonu Málleys- ingjaskólans frú Margrétar Rasmus, fékst styrkur veittur til tveggja ára náms við Blindraskóla og heimili fyrir blindar stúlkur í Kaupmannahöfn. Vor- ið 1931 sigldi málfríður til Danmerkur 0g dvaldist við nefndan skóla í tvö ár og lærði vefnað og fleira. í skólanum gat hún sér hinn besta orðstír, sem glegst má marka af því, að kenslukonur og aðrir vandamenn skólans, sýndu henni hina mestu vinsemd og umhyggju á meðan hún dvaldist þar og síðar rneð bréfa viðskiftum og gjöfum. Forstöðu- kona skólans kallaði hana “íslenska barnið sitt” og Málfríður kallaði hana sína “dönsku mömrnu”. Danmörk nefndi hún “sælulandið” og vildi ó- gjarna þaðan hverfa. En tvö árin liðu áður en varði, og styrkurinn þraut. Kom hún Jrví heim urn vorið 1933 og dvelst heima á Kolmúla sumarlangt, en liverfur til Reykjavíkur um haustið. Hún er full áhuga og vonar og hygst, að vinna rnikið starf á vegunt “Blindra- vinafélags Islands”, sem hún væntir sér aðstoðar frá. En hún átti ekki samleið með öðru blindu fólki, hun gat ekki sætt sig við, að binda bursta, prjóna grófa leista, eða vefa gólfklúta, slík vinna samræmdist ekki hennar listrænu höndum, og viðkvæmu fegurðarleit- andi sál. Hún þráði altaf að kornast til Danmerkur aftur. Þar liafði lærdóms þrá hennar sterk og flugfús fengið nokkurn byr undir vængi, og hana fýsti svo nijög, að læra rneira. Dönsk náttúra liafði líka heillað hug hennar, Blóma ilmsins, og nærveru hinna ynd- islegu skóga, saknaði hún æ síðan. Leið hennar lá eigi til Danmerkur aftur, þótt vinir hennar þar byðu henni, að korna, því að styrjöldin skall á og sundin lokuðust. Bæði blindra- félögin í Reykjavík og einstakir starfs-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.