Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1948, Side 102

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1948, Side 102
84 TIMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ISLENDINGA hefir því verið hreyft á fundum félagsins af og til síðan. Eins og forsetinn mintist i fyrra, er þetta eitt allra strersta málið, sem Þjóðræknisfélag- ið hefir á dagskrá sinni. Nokkrar veigamiklar framkvæmdir hafa orðið í því, eins og skýrsla, sem seinna verður lesin af Dr. Thorlákssyni, mun sýna, og eg vona að þingheimur veiti þeirri skýrslu og tillögum, sem henni munu fylgja, góða eftirtekt. . Þetta mál, að mínum dómi, er eitt af þeim málum sem eg mintist í byrjun orða minna, sem, er tímar líða, getur orðið, ef að því er framfylgt, eitt af hinum ágætustu minningar- merkjum vor fslendinga hér í Vestur Canada, og tákn þess, að þó að vér séum tillölulega iitið þjóðarbrot af einni af hinum minstu þjóðum (að fólksfjölda) heimsins, þá höfum vér verið það íramtaksmeiri og framsýnni en r.okkuð annað þjóðarbrot hér vestra, og með þeim góða skilningi á menningargildi tungu vorrar og sögu hennar, og því tillagi, sem hún getur lagt til menningar þessarar þjóðar, að vér vildum með góðum hug og vilja, leggja á oss þá ábyrgð, að stofna höfuðstól nógu stóran til þess að geta stofnað kennara embætti á há- skóla þessa fylkis. Það verður, á þessu þingi annaðhvort að duga eða að drepast, að sam- þykkja það, setn hefir þegar verið gert, og ákveða enn meiri framkvæmdir, eða að gera enda á þessu máli sem hefir verið á dagskrá félagsins öll þessi ár, og nota tímann til að hugsa og ræða um eitthvað annað. Stjórnar- nefndin hefir afráðið að biðja Dr. Thorlákson, sem hefir verið kosinn formaður þeirrar nefnd- ar, sem þetta mál hefir með höndum, að bera fram skýrslu hér á þessu þingi, þriðjudaginn kl. 2, sem hann hefir lofast til að gera. Útgáfumál Um útgáfumál félagsins er ekki annað að segja, en að tímaritið sem hr. Gísli Johnson, fyrv. prentsmiðjustjóri, er ritstjóri að, er með sömu ágætum að innihaldi og frágangi og áður. Undir stjórn hans hefir ritið verið ó- aðfinnanlegt, og skipað háan sess meðal tíma- rita af liinu sama tæi. Árgangarnir sem hann hefir séð um og gefið út jafnast á við hina bestu, sem áður hafa komið og eru auðugur fjársjóður fróðleiks og vitneskju um okkur Vestur-lslendinga og mál vor. Það er ekki lítil þakklætisskuld sem Þjóðræknisfélagið stendur í við hann fyrir þetta sem hefir eins oft verið vanþakkað eins og hitt. Um sögu íslendinga í Vesturheimi er ekk- ert að segja.- Hún stendur í sama stað og í fyrra. Þrjú hefti eru komin, og það er orðinn stans á því máli. — Það gelur verið að ritari nefndarinnar komi með skýrslu inn á þingið en ef ekki, þá er ckkert meira í bili um það mál að segja. Samsæti Níunda janúar mánaðar, eins og kunnugt er, hélt Þjóðræknisnefndin með styrk og aðstoð annara félaga, góðtemplara, deildarinnar Frón, o. s. frv., Dr. Sigurði Júlíusi Jóhannessyni sam- sæti og fagnaðarmót í tilefni af áttugasta af- mæli hans. Samsætið fór fram í Fyrstu lútersku kirkju á Victor St., og voru á fjórða hundrað gestir þar staddir til að fagna hinum góða og vinsæla lækni. Það fagnaðarmót er flestum enn í fersku minni, enda fluttu blöðin fréttir um það og þarf því ekki að orðlengja um það hér, að öðru leyti en því, að láta í ljósi hina miklu ánægju þjóðræknisnefndarinnar að haia getað fagnað einum heiðursmeðlim Þjóðrækn- isfélagsins á þann hátt. Lækninum verður aldrei nóg þakkað fyrir hans ágæta starf á mörgum sviðum mannfélagsmálanna og ekki síst á sviði ræktarsemi við Island og íslenska tungu. önnur fagnaðarmót eða samsæti voru ekki haldin á árinu undir umsjón félagsins. Útbreiðslustarfsemi Um útbreiðslustarfið er það að segja að það hefir skiftst niður á milli margra, nefndar- manna og annara, og þar má helst nefna Mrs. Hólmfríði Danielson, Dr. Richard Beck, séra Valdimar J. Eylands, forseta félagsins, og fleiri. Um minn eigin þátt í útbreiðslustarfinu má nefna ferð sem eg fór til Gimli og til Riverton í samfélagi með Mrs. Danielson. Eg flutti nokkur orð á fundi deildanna á báðum þessum stöðum, og sýndi hreyfimyndir af íslandi sem eg hafði í för með mér og sem eru eign fé- lagsins. Einnig flutti eg nokkur orð fyrir hönd félagsins á íslenclingadeginum á Gimli s. 1. sumar. Mrs. Danielson, hefi eg áður minst, og ferð- anna sem hún hefir gert sér til Glenboro,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.