Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1948, Síða 118
100
TIMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÆLAGS ÍSLENDINGA
ræknisfélagsins og stjórnar þess, og eins frá
okknr hjónunum til þín og konunnar þinnar
með bestu óskum okkar um gæfu og blessun
ykkur til handa.
Þinn einlægur,
Friðrik Hallgrímsson
Fundi frestað til klukkan 9.30 næsta dag.
Samkoma Icelandic Canadian Club um
kvöldið var með ágætum góð. I'að er ekki
með öllum jafnaði, að mönnum bjóðist
skemtiskrá þar sem hvert atriði má teljast
ágætt. Mun það öllum góðum Islendingum
vera ánægjuefni að vort unga kyn sýnir góða
hæfileika. Þar sem um þetta hefir verið áður
af mér skrifað í blöðunum, skal ekki út í það
fiekar farið hér.
ÞRIÐJI FUNDUR
settur kl. 9.30 f. h. næsta dag
Fundargerð síðasta fundar lesin og samþykt.
Lausleg og munnleg skýrsla Ásmundar Jó-
hannsonar um myndastyttu Leifs hcppna gat
þess að engar breytingar hefðu orðið í þessu
máli á árinu.
Dr. Beck gat þess til viðbótar að frumvarp
myndi liggja fyrir þingi Bandaríkjanna, sem
færi fram á fjárveitingu til uppsetningar
styttunni. Skýrsla viðtekin samkvæmt at-
kvæðum þingsins.
Þá gaf Páll Bardal ítarlega skýrslu fyrir
hönd þeirrar milliþinganefndar, sem hafði
liúsbyggingarmálið til meðferðar, (hér átt við
samkomuliús fyrir Islendinga). Benti hann á
nauðsyn þess að Islendingar eignuðust sam-
komuhús eftir sínum þörfum. Áætlaður kostn-
aður 50,000 dollarar. Sýndi hann bráðabirgðar
uppdrátt um lnigsanlegt fyrirkomulag þessa
húss.
Gerði Guðmann Levy það að tillögu, sem
Mrs. B. E. Johnson studdi, að skýrslan sé við-
tekin að þvi viðbættu að fimm manna þing-
nefnd sé skipuð í málið. Tillagan samþykt og
þessir skipaðir í nefndina:
H. Thorgrímsson
Jón Ásgeirsson
Jón Jónsson
Ó. Pétursson
Guðmann Levy
TiII. Jóns Jónssonar, að forseta og ritara sé
falið að votta þeim þakklæti sem gerðu bráða-
birgðar uppdráttinn af hugsanlegu samkomu-
húsi íslendinga i Winnipeg. Stutt og samþykt.
Þeir sem uppdráttinn gerðu voru Pratt &: Ross,
IVinnipeg Electric Chambers.
Þá var lesin skýrsla deildarinnar "Grund” i
Argyle, af ritara deildarinnar G. J. Oleson.
Skýrsla dcildarinnar “Grund” í Argyle
Deildin “Grund” hefir ekki verið athafna-
mikil á árinu, hún hafði 3 almenna fundi og
einn nefndarfund. Almennu fundirnir Glen-
boro 2. júní, Baldur 8. des. og Glenboro 16.
jan. Allir fundirnir voru fámennir en góðir
og all fjörugir. Á síðasta fundinum var Mrs.
Þlólmfríður Danielson, fræðsluráðanautur og
útbreiðslustjóri Þjóðræknisfélagsins. Talaði
hún á fundinum og flutti mál sitt með eldmóð
lipurð og áhuga, hún heimsótti mörg heimili
í Glenboro, fór líka til Baldur og átti tal við
fólk þar. Lagði hún grundvöllinn að stofnun
unglinga söngflokka bæði í Glenboro og Bald-
ur, með fulltingi þeirra séra Eric H. Siginar,
Árna Sveinssonar, Maríu Sigmar og fleiri, er
stofnað til þess á íslenska vísu. Ómögulegt er
annað en Mrs. Danielson veki til lífs anda
fólksins hvar sem hún fer. Hefir hún á þessum
s 1. árum unnið meira að virkilegu þjóðrækn-
isstarfi en máske nokkrir aðrir. Koma hennar
til okkar var sérstaklega kærkomin.
20. okt. s. L hafði deildin skemtisamkomu.
Höfuðskáld okkar V.-lsI„ hr. Guttormur J
Guttormsson frá Riverton, var svo góður að
koma til okkar og flytja erindi, sem var snjalt
og skemtilegt, einnig fór hann með frumsamiu
ljóð.
ísl. skóli hefir enginn verið hér og mun
ekki verða. Kennara er ekki hægt að fá, og
allir heilvita menn sjá að ekki er til neins að
berja höfðinu við steininn. Slík kensla getur
hvergi komið að neinu gagni. Islenska er brátt
dauðadæmd, hún getur ekki lifað hér eftir
að liin yngri kynslóð er horfin. Maður verður
að segja eins og er, hvað vænt sem okkur
þykir um ísl. Okkar hlutverk er að byggja
þjóðstofninum minnisvarða. Icelandic Canad-
ian Club virðist vera vel á vegi að lesa letrið á
veggnum og er að gera mjög þýðingarmikið
verk í þá átt. “Icland’s Thousand Years” og
“The Icelandic Canadian” skilja eftir spor í