Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2002, Page 9
FORMÁLAR
ÁVARP FORMANNS VFÍ
Níutíu ára afmæli félagsins setti að talsverðu leyti svip sinn á starfsem-
ina árið 2002 og gerði hana sérstaka. Af einstökum atburðum má nefna
afmælisárshátíð, afmælishóf, kynningu í Morgunblaðinu, útgáfu rits um
frumherja í verkfræði og greinar í tímarit og blöð.
Árshátíðin var að vanda haldin í Súlnasal Hótels Sögu í byrjun febrúar
og komust færri að en vildu. Egill Skúli Ingibergsson var gerður að
heiðursfélaga og Júlíus Sólnes, Stefán Hermannsson, Jóhann Már
Maríusson og Olgeir Kristjónsson fengu gullmerki félagsins. Fram-
kvæmdastjórar systurfélaganna á Norðurlöndum komu í hófið. Á sjálfum afmælis-
deginum, 19. apríl, var haldin afmælishátíð í Listasafni Reykjavíkur. Öllum félögum í VFÍ
var boðið ásamt mökum og öðrum gestum. Yfir 500 manns mættu og er það án vafa fjöl-
mennasta samkoma verkfræðinga til þessa. Hátíðin hófst með ávarpi formanns en síðan
kynnti Pétur Stefánsson niðurstöður nefndar, sem hafði það hlutverk að velja
athyglisverðustu verkfræðiafrek seinustu aldar, eitt fyrir hvern áratug. Kynningin þótti
sérstaklega glæsileg og ráðherrar veittu viðurkenningar fulltrúum tilnefndra afreka. Eftir
kynninguna afhenti formaður Sigurði Brynjólfssyni, deildarforseta Verkfræðideildar HÍ,
gjöf að andvirði ein milljón krónur. Morgunblaðið gerði afmælishófinu góð skil og birti
jafnframt viðtal við formann um sögu og stöðu VFÍ. Þegar þetta er skrifað er nánast lokið
við að semja rit um frumherjana í verkfræði, sem koma á út í október. Verður þetta fyrsta
ritið í 10 rita röð sem lýkur með 100 ára sögu VFÍ árið 2012.
Önnur starfsemi VFÍ var kraftmikil. Ber þar hæst hinn mikla fjölda funda og ráðstefna,
sem undantekningarlítið voru vel sótt og stundum komust að færri en vildu. Svo var á
nokkrum samlokufundum en þeim er varpað yfir skólabrúna til þeirra sem þess óska.
Mest hafa sex aðilar utan Reykjavíkur tekið þátt í fundunum en einnig hafa þeir verið
sendir upp á Iðntæknistofnun á Keldnaholti. Hafa útsendingar tekist vel en áfram verður
haldið við að bæta þær. Áfram var haldið á þeirri braut að halda sameiginlega ráðstefnu
með Verkfræðideild HI. Að þessu sinni fjallaði ráðstefnan um hugbúnaðargerð í tilefni
þess að kennsla hefur verié tekin upp í deildinni á þessu sviði. Tveir íslenskir sér-
fræðingar komu erlendis frá til að halda erindi. Var ráðstefnan vel sótt, fróðleg og
skemmtileg. Tæknidagar voru með breyttu sniði að þessu sinni, en boðið var upp á röð
erinda um flesta verkfræðilega þætti í byggingu Smáralindar. Einn málaflokkur var
tekinn fyrir á hverjum degi í eina viku. Aðsókn var góð og erindin fróðleg.
Fundur norrænu verkfræðingafélaganna var haldinn hér á landi í júní sl. Var hann
haldinn í Stykkishólmi og tókst einkar vel. Margt var á dagskrá og fengust m.a. ýtarlegar
upplýsingar um starfsemi og stefnu félaganna. í hinum félögunum eru verkfræðinemar
fullgildir félagar og voru hjá sumum nálægt 30% félagsmanna.
Félagsmál VFl/TFl
5