Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2002, Page 96
V E G A M Á L
cn
©
Markaðar tekjur
Bifreiðaeign: Samkvæmt tölum frá Skráningarstofunni hf. voru nýskráðar fólksbifreiðar
7.688 á árinu 2001 á móti 14.802 árið áður sem samsvarar 48% færri skráningum. Á sama
tíma voru nýskráðar 96 hópferðabifreiðar á móti 133 árið áður sem samsvarar 28% færri
skráningum. Nýskráðar vöru- og sendibifreiðar voru 1.240 á árinu 2001 en voru 2.189 árið
áður og er það 43% fækkun skráninga.
Innflutningur og nýskráning bifreiða dróst verulega saman á árinu 2001 og hefur ekki
verið minni síðan á árinu 1995. Fólksbifreiðaeign á hverja þúsund íbúa er komin í 588
samkvæmt bráðabirgðatölum.
Bensíngjald: Bensínsala á árinu 2001 nam rúmlega 190 milljón lítra og er salan um 0,7%
meiri en á árinu 2000. Samkvæmt bráðabirgðatölum frá Ríkisbókhaldi voru innheimtar
tekjur af bensínsölunni, þ.e. bensíngjaldið, 5.447 m.kr. árið 2001. það er 579 m.kr. minna
en tekjuspá vegáætlunar gerði ráð fyrir eða um 9,6% minni tekjur.
Bensíngjald var ekki hækkað á árinu 2001 og hefur ekkert hækkað frá 1. júní 1999.
Bensíngjald er 28,60 kr/1. þegar bensíngjald var hækkað síðast hefði gjaldið mátt vera
31,16 kr/1 ef fylgt hefði verið breytingum á byggingarvísitölu og hefði mátt vera 35,09
kr/1 1. janúar 2001.
I ársbyrjun 2001 kostaði lítrinn af 95 oktana bensíni 91,80 kr frá dælu á bensínstöð með
fullri þjónustu. Verð á bensíni fór síðan hækkandi í byrjun ársins og 1. júní náði það
hámarki er lítrinn var kominn í 107,90 kr. Verð fór síðan lækkandi frá 25. júní og í árs-
byrjun 2002 kostaði lítrinn 92,20 kr. sem jafngildir 0,4% hækkun frá byrjun árs 2001.
Þungaskattur: Innheimtar tekjur af km-gjaldi námu 2.600 m.kr. Tekjuspá vegáætlunar
hljóðaði upp á 2.417 m.kr., þannig að tekjurnar af árgjaldinu reyndust töluvert meiri en
áætlað var. Þessa aukningu á árgjaldi þungaskatts má skýra með auknum bifreiðainn-
flutningi og því að hlutdeild díselbifreiða í bifreiðaeign landsmanna fer vaxandi. Einkum
er þar um að ræða stærri fólksbifreiðar, s.s. jeppa, en minni dísel-fólksbifreiðar eru enn
ekki vænlegur kostur fyrir bifreiðaeigendur jafnvel þótt neðstu flokkarnir í föstu árgjaldi
þungaskatts hafi í raun verið lækkaðir undanfarið.
Gjaldskrá kílómetragjalds þungaskatts var lækkuð um 10% frá 11. febrúar 2001. Engin
breyting var gerð á árinu 2001 á gjaldskrá fasts þungaskatts. Fast árgjald þungaskatts var
síðast hækkað 1. júní 1999 og var þá gjaldskrá kílómetragjalds þungaskatts einnig hækkuð.
Skipting útgjalda
Vegaáætlun gerði ráð fyrir ráðstöfun 12.000 m.kr. Við afgreiðslu fjárlaga var ákveðið að
fresta framkvæmdum fyrir alls 800 m.kr. Sú frestun var síðan lækkuð í 700 m.kr. á
fjáraukalögum. Á fjáraukalögum kom einnig 66 m.kr. fjárveiting vegna greiðslustyrkja til
innanlandsflugs, en það verkefni var flutt til Vegagerðarinnar á árinu.
9 2
Arbók VFl/TFl 2002