Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2002, Page 131
Minnisverð atriði úr sögu
Hitaveitu Suðurnesja (framhald)
Höfundur greinarinnar, Björn Stefánsson hjá Hitaveitu Suðurnesja, hefur alla tíð haldið
saman minnisstæðum atriðum úr sögu Hitaveitu Suðurnesja. í síðustu þremur árbókum
hefur verið birt frásögn hans af tilurð hitaveitunnar og síðan minnisverðum atriðum frá
starfsárum Hitaveitu Suðurnesja frá stofnun fyrirtækisins, 1975, og fram til ársins 1992.
Hér verður haldið áfram frásögn Bjarnar Stefánssonar þar sem frá var horfið í síðustu
árbók og hefst frásögnin á árinu 1993.
1 993
Ormat II-virkjunin var formlega gangsett 5. mars, en virkjunarleyfi vegna hennar var
gefið út 4. febrúar.
Lokið var við borun nýrrar gufuholu (nr. 14) og henni hleypt upp 5. mars.
Hafist var handa við byggingu nýrra aðveitustöðva í Garði og Vogum, ásamt lagningu 36
kV jarðstrengjanna Sandgerði-Garður og Fitjar-Vogar. Þá var einnig lagður strengur frá
Járngerðarstaðahverfi í Grindavík að Húsatóftum í Staðarhverfi.
Þann 23. júlí var keypt 1.300 m2 lagerhúsnæði að Fitjabraut 20-22 í Njarðvík og með
samningi 4. febrúar var keyptur hlutur Landsvirkjunar í rannsóknarkostnaði í
Eldvörpum.
Stjórn fyrirtækisins samþykkti á fundi sínum 2. apríl að verja allt að 40 milljónum króna
til uppbyggingar atvinnulífs á svæðinu og voru í framhaldi af því keypt hlutabréf í
tveimur fyrirtækjum fyrir um 29 milljónir króna og veittir nokkrir minni styrkir.
Aformum um sameiningu Hitaveitunnar og Sjóefnavinnslunnar hf. miðaði nokkuð vel
áfram á árinu.
A árinu var farið af stað með gerð sérstaks fyrirbyggjandi viðhaldskerfis, tekin upp
svonefnd „KKS" skráning einstakra hluta kerfisins og tekin upp altæk gæðastjórnun
innan fyrirtækisins.
Mikil aukning varð á raforkuframleiðslunni, í kjölfar gangsetningar Ormat-hverflanna.
Voru framleiddar 99,8 GWst á móti 89,1 GWst árið áður, en þar af fóru 84,7 GWst út á
netið og til Reykjaness í stað 73,6 GWst árið áður.
Fastráðnir starfsmenn í árslok voru 67, en með lausráðnum, sem unnu mestallt árið, voru
þeir 78 talsins.
Kynning og tæknigreinar fyrirtækja og stofnana
1 2 7