Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2002, Blaðsíða 234
og jökla um miðbik landsins þá er loftslag allólíkt eftir stöðum á landinu. Loftslagið
einkennist almennt af fremur lágum og jöfnum lofthita og er vinda- og vætusamt,
einkum á suðvesturhorninu, en heldur svalara og þurrara loftslag norðanlands. Aberandi
er hve loftslag norðan jökla er þurrt og svalt í samanburði við aðra staði á landinu. Fátítt
er að notað sé jarðeldsneyti til upphitunar og mengun af þeim sökum lítil. Bílafjöldi er
mikill í þéttbýli og mengun af þeim getur á stundum verið vel merkjanleg; svipaða sögu
er að segja um staðbundin áhrif frá stóriðju. Tíðir vindar valda því að langtímaáhrif
mengunar á loftslag eru almennt lítil.
í byggingariðnaði hérlendis eru málmar aðallega notaðir til járnbendingar steypu, í
klæðningar ýmiskonar og lagnir. Langstærstur hluti allra þakklæðninga er úr sink-
húðuðu stáli eða áli, og veggklæðningar úr þessum málmum eru einnig algengar á eldri
timburhúsum og hafa á síðari árum orðið vinsæll valkostur á útveggjum nýbygginga.
Arlegur innflutningur málmklæðninga er um 700.000 m2. Háspennulínur og vegamann-
virki úr stáli eru víða um landið og vegna legu þeirra þá er tæringarumhverfi þeirra afar
mismunandi, sum liggja í söltu umhverfi nærri strönd en önnur hátt upp til fjalla. Svo til
öll byggingarefni, önnur en sement, fyllingarefni og einstaka önnur efni, s.s. steinull, eru
innflutt og gildir þetta sérstaklega um alla málma. Arlegur innflutningur á málmum til
byggingariðnaðar er um 310 kg/íbúa. Allur annar innflutningur málma, s.s. farartæki,
nemur til viðbótar um 185 kg/íbúa. Magn málma sem flutt er til landsins á ári nemur
þannig tæpum 500 kg/íbúa og af þessu magni lenda um 370 kg í tærandi umhverfi af ein-
hverri gerð. Árlega nemur endurvinnsla málma aðeins um 0,2 kg/íbúa.
Innanlandsmarkaðurinn er lítill og flutningskostnaður talsverður vegna fjarlægðar frá
stærri mörkuðum. Almennt er því eðlilegt að hafa endingu efna í huga til að lágmarka
kostnað. I því samhengi sem hér um ræðir er þá til athugunar hver tæring málma er og
hvaða tæringarvarnir standa til boða. I þessum tilgangi er nauðsynlegt að þekkja
tæringarumhverfið, þ.e. hvaða þættir valda málmtæringu, og tæringarhraðann.
Kortlagning tæringarhraða er því nauðsynleg svo gera megi markaðinum, m.a. innflytj-
endum, grein fyrir hverjar aðstæður eru innanlands. Slík kortlagning er ómetanlegur
grunnur í samanburði á aðstæðum milli landa og nýtist jafnvel til að meta tímaháðar
breytingar sem kunna að verða á umhverfinu.
Tæringarmátt umhverfis má meta eftir tveim mismunandi leiðum, annars vegar með
beinni mælingu á tæringarhraða og hins vegar með mati á tæringarumhverfi í samræmi
við staðalinn ISO 9223. Hér verður gerð grein fyrir niðurstöðum mælinga á fyrsta árs
tæringu málma, en tæringarhraði fyrsta árs er meiri heldur en á síðari árum, og saman-
burði þessara gilda við staðalgildi sem fæst að teknu tilliti til ríkjandi veðurfars.
Tæringar- og veðrunarprófanir
Allt að 21 veðrunarsýni, hvert af stærðinni 100 mm x 150 x 2 mm, er fest með nælon-
töppum á berandi krossviðarplötu, 530 x 860 mm, þannig að fjarlægð milli sýnis og
krossviðar er 17 mm og 15 mm milli sýna. Sýnarekkar, einn eða fleiri, voru settir upp á
alls 15 stöðum víðsvegar um landið, þannig að sýnin eru 3-4 m frá jörðu, snúa öll í
hásuður og hallar 45° frá láréttu; þessi áttun og halli sýna er í samræmi við staðalinn EN
ISO 8565. Sýni eru af nokkrum mismunandi gerðum; hreint stál (e: technically pure steel,
C=0,05%); sinkhúðað stál, hreint sink (> 99,9% hreint), ál af tveim gerðum (1050 A og
AlMg3). Á öllum stöðvunum eru sambærileg stál-, sink- og álsýni til að gera samanburð
milli stöðva mögulegan, en á nokkrum stöðvum eru einnig máluð stálsýni með nokkrum
mismunandi tegundum málningar. Fjöldi sýna á hverri stöð er nægur svo taka má niður
sýni til skoðunar og verða gerðar mælingar eftir 1,3,5 og 10 ára veðrun. Mælingarnar eru
gerðar á tæringarhraða sýna og ending málningar á máluðum sýnum metin. Rartnsóknin
byrjaði árið 1999 og enn sem komið er liggja aðeins fyrir mælingar á fyrsta árs tæringu,
en sýni verða tekin niður í haust til að mæla 3 ára tæringu. Tæring málmasýna af um-
ræddri stærð í andrúmslofti er almennt nokkuð jöfn yfir flötinn (pyttatæring sést ekki).
2 3 0
Arbók VFl/TFl 2002