Fréttablaðið - 01.12.2012, Page 27
1. desember 2012 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 26
Um áramótin tekur ný
byggingarreglugerð gildi
og leysir af hólmi eldri
reglugerð frá 1998. Nýja
reglugerðin, sem sögð er
sú stærsta í Íslandssög-
unni, mun færa okkar að
þeim stöðlum sem tíðkast
hjá hinum norrænu ríkj-
unum.
Nýja reglugerðin mun
hafa í för með sér að íbúð-
arhúsnæði getur í mörg-
um tilfellum stækkað
verulega. Eitt af megin-
markmiðum hinnar nýju reglu-
gerðar er algild hönnun sem
merkir að íbúðir beri að hanna
þannig að það mismuni ekki ein-
staklingum eða hópi einstaklinga.
Hefur því stigið stórt skref til að
bæta aðgengi hreyfihamlaðra
þar sem allt húsnæði skal vera
aðgengilegt hjólastólum, með
örfáum undantekningum þó.
Ný byggingarreglugerð er því
jákvætt og mikilvægt skref í átt
að jöfnuði og betri tilveru hreyfi-
hamlaðra einstaklinga.
Bólgnar út í stærð
Sú spurning vaknar þó óhjá-
kvæmilega hvort hin nýja reglu-
gerð gangi of langt í stærðarkröf-
um og mismuni jafnvel stórum
hluta þjóðarinnar sem síst má
við því? Það er mikilvægt að átta
sig á því að nýja reglugerðin mun
óhjákvæmilega hafa í för með sér
að íbúðarhúsnæði mun bólgna út
í stærð. Ofan á það bætast hertar
kröfur til einangrunar, hljóðvist-
ar, eldvarnamála o.fl.
Allt þetta kemur ekki til án
kostnaðarauka en áætlað er að
byggingarkostnaður hækki veru-
lega með tilheyrandi áhrifum á
neysluvísitölu, auknum
rekstrarkostnaði, hærri
fasteignagjöldum o.s.frv.
Áhrifin verða þó mismun-
andi eftir stærðum íbúða.
Ég bar saman mismun-
andi reglugerðir og afleið-
ingar þeirra og komst að
því að dæmigerð þriggja
herbergja íbúð (flatarmál
séreignarhluta) stækk-
ar um 20% ef framfylgja
á nýju reglugerðinni.
Fyrir litla eða meðalstóra
þriggja herbergja íbúð
getur aukinn byggingarkostnað-
ur numið um 2,5-3 milljónum, ein-
ungis vegna stærðaraukningar.
Að miklu leyti er þessi gríðarlega
stærðaraukning ekki nauðsynleg
vegna aðgengismála heldur fyrst
og fremst vegna ósveigjanleika í
stærðarkröfum rýma. Þess ber
þó að geta að þessi prósentutala
lækkar eftir því sem bygging-
arnar stækka en svo virðist sem
reglugerðin komi verst niður á
þriggja herbergja íbúðum. Þessi
útreikningur er auðvitað ekki
tæmandi og getur breyst að ein-
hverju leyti eftir aðstæðum.
Erfiðara að kaupa
Hætt er við að öryrkjar, ungt fólk
og láglaunafólk muni í framtíð-
inni eiga erfiðara með að kaupa
nýtt húsnæði vegna þess að það
þarf að kaupa mun fleiri fermetra
til að ná sömu nýtingu og lenda
þannig í nokkurs konar „hús-
næðisgildru“. Nýjar íbúðir gætu
því í versta falli orðið forréttindi
ákveðinna þjóðfélagshópa.
Til samanburðar geta norskar
íbúðir uppfyllt kröfur um aðgengi
á 10% minna flatarmáli skv. fyrr-
nefndum samanburði. Íslenska
reglugerðin veitir minna svigrúm
en í henni eru settar lágmarks
flatarmálskröfur á ýmis rými í
stað þess að tilgreina hvaða þarf-
ir þau þurfi að uppfylla.
Augljóst er að meira byggingar-
efni þarf til að búa til stærri íbúð-
ir en minni. Framleiðsla bygging-
arefnis er orkufrek, mengandi og
gengur á auðlindir jarðarinnar.
Það þarf eldsneyti til að flytja
byggingarefnið og að lokum þarf
að farga því. Því stærri sem íbúð-
ir eru, því meiri orku þarf til að
lýsa þær upp, kynda, loftræsta og
viðhalda. Því stærri sem bygging-
ar verða því stærra verður fót-
spor þeirra sem leiðir að lokum
til orkufrekari samgangna. Til að
setja þetta í samhengi þá er 39%
af koltvísýringslosun í Bandaríkj-
unum tilkomin vegna bygginga.
Þó ekki sé hægt að heimfæra
þetta algjörlega á Ísland gefur
þessi tala til kynna hversu stór
umhverfisþáttur húsnæði er.
Fólk á að geta valið
Það er síður en svo hugmynd
mín að byggja ekki aðgengileg-
ar íbúðir. Þvert á móti styð ég
aðgengismál fatlaðra heils hugar
og þar má margt betur fara sem
bætt verður úr með nýrri reglu-
gerð. En ég styð líka rétt fólks til
að geta lifað sómasamlegu lífi á
launum sínum og rétt til að eiga
þak yfir höfuð sitt og fjölskyldu
sinnar. Fólk á að geta valið sér að
búa í litlum og vel nýttum íbúð-
um sem henta efnahag þeirra. Því
þarf að feta einhvern milliveg.
Sem dæmi væri eðlilegt ef
byggja mætti ákveðið prósentu-
hlutfall íbúða í hverju fjöl-
býlishúsi án þess að kröfur um
algilda hönnun ættu við. Einnig
að fella megi út flatarmálskröf-
ur sem gerðar eru til svefnher-
bergja, baðherbergja og þvotta-
húsa en þetta getur minnkað
íbúðirnar um u.þ.b. 10%. Þó svo
að lágmarks prósentuhlutfall
aðgengilegra íbúða sé tilgreint
í byggingarreglugerð má í deili-
skipulagi gera strangari kröfur
þar sem við á.
Stuttur aðlögunartími
Það sem er hvað mest íþyngj-
andi við nýja reglugerð er hversu
stuttur aðlögunartíminn er.
Hvorki þjóðfélagið né bygging-
ariðnaðurinn er tilbúinn að taka í
notkun nýja reglugerð í svo stóru
skrefi. Það skref tökum við nú á
u.þ.b. einu ári á meðan aðlögunar-
ferlið hjá Norðmönnum og Dönum
tók fimm til sex ár. Starfsfólk
Mannvirkjastofnunar hefur lyft
grettistaki á stuttum tíma við
gerð hinnar nýju reglugerðar
en hefur þó verið skammtaður
of naumur tími. Við þurfum að
halda áfram þeirri umræðu sem
loksins er komin í gang og gefa
okkur lengri tíma til að skoða
heildarafleiðingar reglugerðar-
innar.
Ný byggingarreglugerð er risa-
skref og afleiðingar þess að vaða
af stað geta bitnað á almenningi
og dregið tennurnar endanlega
úr byggingariðnaðinum. Betri er
krókur en kelda.
Ný byggingarreglugerð – íbúðir fyrir alla?
BYGGINGAR-
REGLUGERÐ
Jóhann
Sigurðsson
arkitekt
➜ Það er mikilvægt að átta
sig á því að nýja reglugerðin
mun óhjákvæmilega hafa
í för með sér að íbúðarhús-
næði mun bólgna út í stærð.
Skoðun visir.is
686
ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER
Ruglið í rauða hliðinu
Ólafur Stephensen ritstjóri
621
MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER
Illvirki inni í Þórsmörk
Árni Alfreðsson líff ræðingur
273
ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER
Opið bréf til karla
Andrés Ragnarsson og Einar Gylfi Jónsson
sálfræðingar
166
MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER
Héraðsdómur segir bankamenn
bjána
Ólafur Hauksson almannatengill
163
MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER
Þá fóru fl estir hvergi
Guðmundur Andri Thorsson pistlahöfundur
147
FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER
Nýju fötin keisarans
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir
alþingiskona
105
LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER
Bölmóður án tilefnis
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra
Átt þú rétt
á lækkun skulda?
Sértæk skuldaaðlögun er ætluð þeim sem skulda meira en 100%
af markaðsvirði veðsettra fasteigna og bifreiða. Skuldaaðlögunin
nær til allra skulda einstaklinga hjá Íbúðalánasjóði, bönkum,
sparisjóðum og lífeyrissjóðum.
Sértæk skuldaaðlögun kemur aðeins til greina ef sýnt þykir
að vægari úrræði nægja ekki til að rétta af fjárhagsstöðuna
og fyrirséð er að viðkomandi geti ekki staðið í skilum af lánum
sínum til langframa.
Sótt er um sértæka skuldaðlögun í viðskiptabanka umsækjanda.
Frestur til að sækja um sértæka skuldaaðlögun
rennur út um næstu áramót
Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími : 569 6900, 800 6969