Fréttablaðið - 01.12.2012, Side 29
1. desember 2012 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 28
Bráðum verða liðin fjög-
ur ár frá því að Evrópu-
sambandið og aðildarríki
innri markaðarins voru
fyrst slegin ofsahræðslu
við algjört bankahrun. Á
leiðtogafundi stærstu Evr-
ópuríkja í París 4. október
2008 náðist ekki samkomu-
lag um samræmdar aðgerð-
ir. Þann 6. október komst
Ísland í eldlínu kreppunnar
vegna setningar neyðarlaga
sem ríkisstjórnir umhverfis
okkur brugðust ókvæða við.
Allir þekkja framhaldið á
Íslandi en í Evrópu varð banka-
kreppa að ríkisskuldakreppu og
svo aftur að háskalegri banka-
kreppu þannig að valdamestu
menn hafa viðurkennt að oftar en
einu sinni síðustu misseri hafi litlu
munað að ekki yrði allsherjarhrun.
Á áðurnefndum leiðtogafundi í
París 4. október 2008 vildi Frakk-
land sameiginlegan bankabjörgun-
arsjóð Evrópu en Þýskaland svar-
aði „hvert land fyrir sig“. Daginn
eftir, sunnudaginn 5. október, gáfu
ríkin yfirlýsingar út og suður um
tryggingu innistæðna í bönkum en
náðu engri sameiginlegri afstöðu.
Hvert ríki bjargaði sér.
Dæmi þar um er Danmörk sem
gaf þessa daga út yfirlýsingu
um aukna tryggingu innstæðna.
Fyrst nú fyrir nokkrum dögum
varð opinbert í Danmörku hversu
hætt danska bankakerfið í heild
sinni stóð haustið 2008. Þá sýndi
danska sjónvarpið DR þjóð sinni
hvað í raun gerðist þar í landi fyrir
fjórum árum þegar danski efna-
hags- og viðskiptaráðherrann í
þverpólitísku en háleynilegu sam-
ráði stýrði björgun Danske Bank
á þeirri forsendu að félli sá eini
banki myndi allt bankakerfi Dan-
merkur hrynja. Fulltrúi danskra
jafnaðarmanna í samráðinu
kallaði björgunina í þætti DR
umfangsmestu ríkisábyrgðaryf-
irlýsingu allra tíma en hún reynd-
ist samt ekki vera nóg. Á síðustu
fjórum árum hafa Danir bjargað
hverjum bankanum á fætur öðrum
með endurteknu opinberu inngripi
– svonefndum „bankapökkum“
sem bera hver sitt númer.
Bankakreppan enn óleyst
Bankakreppa Evrópu frá 2008
er enn óleyst. Efnahagsreikn-
ingar banka sýna sem bókfærða
eign óinnheimtanlegar kröfur
sem margítrekuð álagspróf á Evr-
ópuvísu nægja engan veginn til
að uppræta. Ríkissjóðirnir hafa
bjargað bönkum og reitt sjálfa
sig á slig og geta það ekki áfram.
Kreppan í heiminum er orðin að
„the great recession“ eða „niður-
sveiflunni miklu.“ Síðasta vor var
ástandið frá 2008 komið
aftur. Heimsfjölmiðar
lýstu viðskiptastríði Evr-
ópuríkja vegna banka-
starfsemi yfir landa-
mæri. Hvert ríki varði
sjálft sig og samskipt-
in hrundu vegna fjár-
magnsflutninga „heim“
úr útibúum erlendis,
óskýrra marka á banka-
eftirliti milli ríkja og
óvissu um innistæðu-
tryggingar. Það ástand
þekkir enginn betur en
Íslendingar. Gordon Brown þakk-
aði sjálfum sér að hafa bjargað
heiminum 2008. Reynslan hefur
sýnt hvað hann hafði rangt fyrir
sér.
Nauðsynlegt samband
Fyrir nokkrum vikum birtist
opinberlega tillaga framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins að
reglugerð um svonefnt banka-
samband Evrópu. Átökin um efni
hennar eru hörð. Hún er lögð fram
vegna þess að nauðsyn brýtur lög.
Efni hennar hefði eitt sinn verið
talið óhugsandi en ekki lengur. Og
efni hennar setur stöðu Íslands
haustið 2008 í nýtt ljós. Burð-
arvirkið er sameiginlegt evr-
ópskt innistæðutryggingakerfi
og bankaeftirlit, hratt inngrip í
banka, skjót gjaldþrotameðferð
banka, nákvæm fyrirmæli um
samstarf þvert yfir landamæri
og víðtækt hlutverk Seðlabanka
Evrópu til að stjórna neyðarvið-
brögðum.
Bankasamband Evrópu yrði
hluti af innri markaði Evrópusam-
bandsins sem Ísland bæði var og
er hluti af. Í reglugerðinni segir að
núverandi stjórnvöld á innri mark-
aðnum, hvort sem er yfirþjóðleg
eða í hverju landi, hafi ekki nægar
heimildir til snemmbærs inngrips
og skipta á bönkum til að geta
tryggt fjármálastöðugleika. Um
leið sé ljóst að til þess að ná efna-
hagsbata verði að viðhalda sam-
eiginlegum innri bankamarkaði og
enginn annar kostur í boði en sá að
styrkja þennan markað með skýr-
ari leikreglum sem skapa öryggi.
Þetta hafi reynst mjög erfitt síð-
ustu ár. Gögn sanni að samruni
bankamarkaða í ESB sé að stöðv-
ast. Alþjóðlegar bankasamsteyp-
ur ráði stórum hluta markaða ríkja
og starfsemi lánastofnana dreifist
víða á margslunginn hátt.
Engu að síður sé mat á greiðslu-
færni lánastofnana enn nátengt
því ríki þar sem bankasamsteyp-
ur og lánastofnanir voru upp-
haflega settar á fót. Óvissa um
sjálfbærni opinberra skulda, hag-
vaxtarhorfur og lífvænleika lána-
stofnana myndi vítahring á mörk-
uðum sem verði að brjótast út
úr. Vandi í einu ríki geti hvenær
sem er orðið vandi annarra ríkja.
Bankar séu í hættu og fjármála-
stöðugleiki óviss. Eina lausnin sé
bankasamband. Eftirlitið verði að
vera yfirþjóðlegt svo gerlegt verði
að ná sameiginlegum skilningi á
styrk bankakerfa um alla Evrópu.
Til þess séu þessar nýju reglur
að eftirlitsaðilar læri lexíuna frá
fjármálakreppu síðustu ára og geti
fylgst með mjög flóknum fyrir-
tækjum með samtengdan rekstur
yfir landamæri.
Ísland og bankasambandið
Segja má að reglugerðin um
bankasambandið sprengi hefð-
bundna hugsun svo upp að aldrei
verði aftur snúið. Lýsingin á for-
sendum og tilgangi reglnanna er
eins og atvikalýsing um Íslands-
kreppuna 2008. Nýju yfirþjóðlegu
valdheimildirnar eru upptalning á
því sem vantaði þegar Ísland stóð
í sporum ríkis á innri markaðnum
með fullt frelsi bankafyrirtækja
til starfsemi hvar sem var.
Kaupþing, Landsbankinn og
Glitnir voru bankar sem störf-
uðu þvert á landamæri og voru
hluti af innri bankamarkaði Evr-
ópu. Framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins segir í tillögu sinni
að reglugerð um Bankasamband
Evrópu að valdheimildir skorti til
að grípa inn í starfsemi banka á
innri markaðnum nógu snemma til
að þeir veikleikar þeirra nái aldrei
að ógna fjármálastöðugleika. Það
sama sögðu þeir embættismenn
íslenskra stjórnvalda 2008 sem
komu fyrir landsdóm. Ef reglu-
gerðin hefði verið komin til fram-
kvæmda 2008 hefði aldrei orðið
Icesave-mál og hinum alþjóðlegu
bönkum með uppruna á Íslandi
verið sett alþjóðleg mörk miklu
fyrr af fullu valdi yfirþjóðlegrar
stofnunar. Í þessu ljósi ætti ríkis-
stjórn Íslands að fagna sérstak-
lega framkomnum tillögum í ljósi
reynslu landsins og leggja áherslu
á skilyrðislausan rétt minni ríkja
til að verja fjármálastöðugleika
sinn eins og Ísland gerði með neyð-
arlögum. Almenningur beitti sínu
afli ítrekað í Icesave-málinu.
Bankasamband bætist við
innri markað Evrópu Áhersla á eflingu foreldra-hæfni með fjölbreyttri uppeldisfræðslu og þjálfun
foreldra hefur aukist í vest-
rænum samfélögum undan-
farin ár. Þá hefur þekkingu
á áhrifum uppeldisaðferða
á geðheilsu og þroska barna
með mismunandi þarfir og
á ólíkum aldri fleygt fram.
Með rannsóknum hefur
verið lagður grunnur að
þróun markvissra aðferða
til að styrkja hæfni foreldra
og búa þá undir foreldra-
hlutverk. Ein af þeim er
verkefnið Að verða foreldri.
Að eignast barn fram-
kallar gleði og ábyrgðar-
kennd hjá öllum heilbrigðum mann-
eskjum. Hins vegar er ekki alltaf
viðurkennt að því fylgi nýjar skuld-
bindingar og oftast talsverð röskun
á lífsháttum. Nokkrar vísbending-
ar eru um að fólk sem frestar fjöl-
skyldumyndun og barneignum geti
stundum verið verr í stakk búið til
að eignast barn eftir að hafa lifað
„frjálsu“ lífi fram undir þrítugt
eða lengur. Á okkar tímum verður
líka algengara að ung pör skipu-
leggja fjölskyldumyndun og velja
að eignast barn á „réttum tíma“.
Forgangsröð um menntun, persónu-
leg markmið, starfsframa og barn-
eignir verður sameiginleg ákvörð-
un sem báðir aðilar vilja njóta og
bera ábyrgð á í félagi. Þrátt fyrir
góða skipulagningu og að allt takist
vel til, hefur tilkoma barns – þegar
tveir verða þrír – samt oftast í för
með sér þörf á einhverri endur-
skoðun og nýrri aðlögun í parsam-
bandinu.
Í okkar íslenska samfélagi fer
fæðingartíðni ekki minnkandi
eins og í flestum nágrannalönd-
um, vinnuþátttaka feðra og mæðra
er meiri en víðast og hefðbundinn
fjölskyldustuðningur er ekki eins
áreiðanlegt bjargráð og áður. Ytri
aðstæður eru því ekki alltaf hag-
stæðar ungum foreldrum. Íslensk-
ar skilnaðarrannsóknir hafa sýnt
að skilnaðartíðni er hlutfallslega
há meðal ungbarnaforeldra.
Erfiðleikar í parsambandi
Vitað er úr tölfræði og fjölskyldu-
rannsóknum að fæðing fyrsta barns
í parsambandi getur verið ávísun á
skilnað, ef ekki er staðið nógu vel að
undirbúningnum. Þegar í kringum
1960 sýndu rannsóknir aftur í tím-
ann að meirihluti foreldra reyndist
takast á við kreppueinkenni í sam-
bandi sínu í kjölfar fæðingar fyrsta
barns. Frá níunda áratug síðustu
aldar hefur fjöldi langtíma sam-
anburðarannsókna staðfest þetta
og sýnt að umbreytingin í parsam-
bandinu við tilkomu barns er alltaf
mikil og áhrifin oft óvænt.
Fjöldi rannsókna, allt frá árinu
1957, sýnir að foreldrar upplifa
minni ánægju í parsambandinu
fyrstu árin eftir fæðingu barns.
Niðurstöður nýlegra rann-
sókna benda til að nú upp-
lifi 60-90% foreldra minni
ánægju í parsambandinu
fyrstu þrjú árin eftir fæð-
ingu fyrsta barns (Media,
2010).
Mat á gagnsemi námskeiðsins
Að verða foreldri sýnir að mun
færri foreldrar sem sóttu nám-
skeiðið en samanburðarhópurinn
segja að gæði parsambandsins hafi
minnkað eftir fæðingu barnsins.
Þessir feður og mæður reyndust
einnig vera næmari fyrir þörfum
barnanna og brugðust betur við
þeim. Þá kom einnig fram að börn
þeirra gráta minna og brosa meira
við þriggja mánaða aldur og upplifa
minni streitu við 12 mánaða aldur í
samanburði við börn foreldra sem
ekki sóttu námskeið (Gottman og
Sapirio, 2007). Þannig stuðlar nám-
skeiðið bæði að hamingju foreldra
og vellíðan barns.
Forvarnargildi
Rannsóknastofnun í barna- og fjöl-
skylduvernd (RBF) lætur sig mál-
efni foreldra og barna varða. Nám-
skeiðið Að verða foreldri undirbýr
verðandi foreldra fyrir eitt mikil-
vægasta verkefni lífsins – að eign-
ast og ala upp barn. Því er ætlað að
hjálpa væntanlegum foreldrum að
viðhalda og efla parsambandið sam-
hliða foreldrahlutverkinu.
Verkefnið Að verða foreldri er
ekki aðeins fræðsla fyrir verðandi
og nýbakaða foreldra um undirbún-
ing fæðingu fyrsta barns. Það felur
líka í sér námskeið fyrir fagfólk og
þjálfun leiðbeinenda fyrir foreldra-
námskeið hér á landi. Fyrir dyrum
stendur að halda foreldranámskeið
fyrir stúdentapör við Háskóla
Íslands sem eiga von á barni og
vilja búa sig undir foreldrahlut-
verkið.
Að verða foreldri er samfélags-
legt verkefni með forvarnargildi
fyrir heilbrigði í fjölskyldum.
Námskeiðinu er ætlað að efla for-
eldrahæfni, bæta samband parsins
og búa þau betur undir foreldra-
hlutverkið. Miklir hagsmunir eru
í húfi að hlúa að fjölskyldunni á
þeim umbreytingartíma sem fæð-
ing fyrsta barns er í lífi þeirra. Það
getur stuðlað bæði að hamingju for-
eldra og barns. Með sameiginleg-
um undirbúningi og með samstöðu
parsins má draga úr áhættunni á
skilnaði.
Að verða foreldri
FJÁRMÁL
Kristrún
Heimisdóttir
lektor í lögfræði
➜Segja má að reglugerðin
um bankasambandið
sprengi hefðbundna hugsun
svo upp að aldrei verði aftur
snúið. Lýsingin á forsendum
og tilgangi reglnanna er eins
og atvikalýsing um Íslands-
kreppuna 2008.
SAM-
FÉLAGSMÁL
dr. Sigrún
Júlíudóttir
prófessor við
Félagsráð-
gjafardeild Háskóla
Íslands og formaður
stjórnar RBF
➜ Nokkrar vís-
bendingar eru um
að fólk sem frestar
fjölskyldumyndun
og barneignum geti
stundum verið verr
í stakk búið til að
eignast barn …
Faxafeni 5, Reykjavik og Skeiði 1, Ísafirði
NÝTT Á RÚMIÐ FYRIR JÓLIN!
Þegar mjúkt á að vera mjúkt getur þú treyst okkar
vörumerkjum. Betra bak er einungis með sérvalin
sængurverasett, svo ekki sé talað um Aloe Vera
bómullar-lökin sem slegið hafa í gegn.
AÐEINS
til 5. des.
RÝMUM TIL FYRIR NÝJUM VÖRUM
30-50% afsláttur af sængurverasettum!
15% afsláttur af nýju jólasendingunni!