Fréttablaðið - 01.12.2012, Page 39

Fréttablaðið - 01.12.2012, Page 39
1. desember 2012 LAUGARDAGUR| HELGIN | 38 Sigurður Ragnar Eyjólfsson er ekki á þeirri skoðun að banna eigi getu-skiptingu á æfingum barna í hóp-íþróttum. Sigurður er yfirmaður fræðslumála hjá Knattspyrnusam-bandi Íslands. „Það eru einhverjir foreldrar sem hafa gripið þessa umræðu á lofti og tjáð sig um þetta. Ég hef ekki heyrt í neinum þjálfara sem vill breyta þessu. Það eru um 700 knattspyrnuþjálfarar sem eru að þjálfa um 16.000 leikmenn í yngri flokkum landsins. Ég er ósammála því að kerfið sem við erum að nota sé ekki gott,“ segir Sigurður og bendir á ýmsar tilraunir sem gerðar hafa verið. „Þeir sem hafa prófað að getuskipta ekki hafa séð aðra hlið á þessu. Menn hafa mælt þann tíma sem krakkarnir voru með boltann í leik og hve oft þeir snertu boltann þar sem fimm léku gegn fimm í blönduðum liðum. Það sem kemur í ljós er að D-liðs leikmaðurinn í 5 mínútna leik var með boltann í 4 sekúndur en A-liðs leikmaðurinn var með boltann í eina mínútu. Þeir sem eru slakari fá boltann nán- ast aldrei og leikurinn fer bara fram hjá þeim. Þeir eru eins og áhorfendur, sem gæti leitt til brottfalls. Að mínu mati er betra fyrir þá sem eru lakari að vera í getuskiptum hópum. Þegar leikmenn mæta öðrum leikmönnum sem eru á sama getustigi þá upplifa þeir meiri árangur og þeirra upplifun er allt önnur, skora mörk, verja boltann, svo eitthvað sé nefnt.“ Sigurður er einnig ósammála því að getu- skipting leiði til þess að aðeins bestu leik- mennirnir fái alla athygli þjálfarans á æfing- um. „Það er ekki rétt. Flestir þjálfarar sinna öllum sínum leikmönnum, vissulega eru allt- af svartir sauðir sem gera það ekki, en ég fullyrði að það eru aðeins örfáir aðilar. For- eldrar eiga ekki að sætta sig við að þjálfari sinni aðeins leikmönnum í A-liðinu. Það þarf ekki að breyta getuskiptingakerfinu til þess að laga slíkt. Það á að skipta um þjálfara í slíkum tilvikum eða senda þá á námskeið til þess að breyta þeirra hugsun. Við erum að gera eitthvað rétt. Við erum með 21.000 iðk- endur og þar af 16.500 sem eru yngri en 16 ára. Þessar tölur væru ekki svona háar ef við værum ekki á réttri leið og börnin væru ánægð í fótboltanum. Auðvitað koma alltaf upp einhver atvik sem eru ekki eins og við vildum hafa þau í svona stórri hreyfingu. Það eru ekki góð rök að vilja breyta heilu kerfi til þess að laga slíka hluti. Það er rosa- lega mikið af mótum í boði fyrir yngri leik- menn. Heilt yfir finnst mér að þjálfarar hafi dregið úr þeim áherslum að leggja allt í söl- urnar til að vinna leiki hjá þeim yngstu. Og það hefur einnig dregið úr því að einstaka leikmenn séu að fá viðurkenningar á slíkum mótum. Að mínu mati þarf að vera gott jafn- vægi í hlutfallinu á milli keppni og æfinga.“ Varasamt að leggja áherslu á sigur Metnaður þjálfara og þeirra sem stýra gangi mála í yngri flokkum getur oft villt mönnum sýn að mati Sigurðar. „Stærsta vandamálið sem við erum að glíma við er að það eru vel menntaðir þjálfarar sem eru að þjálfa yngstu leikmennina og þeir hafa metnað til að færa sig ofar. Þeir vilja fá tæki- færi til þess að þjálfa eldri flokka. Hættan er sú er að þessi þjálfarar leggja alla áherslu á A- liðið og þar með minni fókus á þá sem eru lak- ari. Það er líka ákveðið vandamál að þeir sem leggja mat á störf þjálfara í yngri flokkum eru stjórnarmenn í barna- og unglingaráði. Stund- um er vinningshlutfall eina viðmiðið sem þar er notað til þess að meta störf þjálfarans. Það er ekki góður mælikvarði að mæla árangur þjálfarans með því að telja sigurleikina. Við eigum miklu frekar að horfa til þess hvort það sé gaman á æfingum og fjölgun í iðkenda- hópnum, hvort færni leikmanna sé að aukast eða þjálfarinn sé að kenna leikmönnum eitt- hvað gagnlegt. Þetta eru miklu stærri atriði en sigur á einhverju krakkamóti. Við þurfum að koma þessum skilaboðum til þeirra sem eru að ráða þjálfara,“ segir Sigurður Ragnar Eyj- ólfsson. Betra fyrir þá lakari að vera í getuskiptum hópum Fyrirlestur sem Vanda Sigurgeirs-dóttir, lektor við íþrótta-, tóm-stunda- og þroskaþjálfadeild Háskóla Íslands, hélt sl. þriðju-dag á ráðstefnu um stöðu íþrótta í íslensku samfélagi vakti athygli. Umræðuefnið hjá Vöndu var hvort banna ætti getuskiptingu barna í hópíþróttum. Mikil umræða hefur verið um þetta málefni á samskiptasíðum á veraldarvefnum á und- anförnum dögum. Sigurður Ragnar Eyjólfs- son, M.Sc. í íþróttasálfræði og A-landsliðs- þjálfari kvenna í knattspyrnu, er ósammála því að hætta eigi að getuskipta á æfingum barna í hópíþróttum. Fréttablaðið ræddi við Vöndu og Sigurð þar sem þau lögðu fram sín rök varðandi þetta mál. Vanda var á sínum tíma í fremstu röð sem knattspyrnukona og lék hún fjölmarga A-landsleiki á árunum 1985-1996. Að henn- ar mati þarf íþróttahreyfingin og þá sér- staklega Knattspyrnusambandið að átta sig á þeim vandamálum sem geta fylgt getu- skiptingu og hætta að leggja áherslu á mikla keppni hjá börnum í íþróttum. „Það sem varð til þess að ég fór af stað með þetta er að ég hef verið að safna sögum undanfarin tvö ár frá foreldrum og börnum um slæma upplifun sem tengist getuskipt- ingu, þessari flokkun sem á sér stað þegar við byrjum að skipta börnum upp í A-, B- og C-lið. Og ég er að tala um börn 10 ára og yngri í þessu samhengi. Sögurnar ganga út á mismunun, tár í augum og sár í litlum hjört- um. Ég hef því töluvert lengi haft áhyggjur af getuskiptingunni og vildi skapa umræðu um þau vandamál sem henni fylgja. Þá vildi ég ekki síður vekja athygli á áhrifum of mikillar keppni á börn. Ég hef á síðustu dögum heyrt ýmis rök með getuskiptingu í fótbolta og get alveg tekið undir sum þeirra, því sannarlega eru fleiri en ein hlið á þessu máli, eins og öðrum. Ég vil því ekki banna getuskiptingu en bendi á að hún er vandmeðfarin, eins og oft hefur komið fram. Ég er að vekja athygli á raunverulegu vandamáli og ég tala máli barna og foreldra, sem hafa upplifað van- líðan og jafnvel niðurlægingu,“ segir Vanda. Hætta á að einhver verði út undan Hún bendir á að getuskipting sé ekki til stað- ar í barnaíþróttum í fjölmörgum löndum og að hennar mati hefur það kerfi fleiri kosti en galla. „Ég veit að þar sem börn hafa vanist því að vera ekki í getuskiptum hópum þá er það ekkert vandamál. Getuskipting getur haft í för með sér neikvæða hluti og er ein af helstu ástæðum fyrir því að henni var hafnað varð- andi skólastarf á Íslandi fyrir 30 árum eða svo. Ef hópar eru flokkaðir og sorteraðir er hætta á að einhverjir verði út undan. Við eigum ekki að vera upptekin af því að sigra í barnaíþróttum. Það eru fleiri markmið með íþróttaiðkun barna en bara að búa til afreks- menn og það er mín skoðun að minni keppni hjá börnum búi til fleiri afreksmenn. Það eru til rannsóknir sem sýna fram á að við vitum ekkert hvort einhver nær langt fyrr en um eða eftir kynþroska,“ segir Vanda. Kappsamir þjálfarar Hún hefur sjálf upplifað að kappsamir þjálfarar missa oft sjónar á heildarmynd- inni þegar þeir eru við störf. „Margir þjálfarar eru kappsamir og þeir telja að árangur og sigrar séu eina mæli- stikan. Ég hef upplifað þetta sjálf. Ég byrj- aði ung að þjálfa og þegar ég var að byrja að þjálfa sinnti ég meira þeim sem voru betri. Í dag sé þessa hluti með allt öðrum augum. Það er von mín að þrátt fyrir það hafi umræðan náð eyrum einhverra þjálf- ara, og ekki síður foreldra, og afleiðingin verði að áhersla á keppni og það að vinna í íþróttum barna minnki, til hagsbóta fyrir öll börn, sem samkvæmt rannsóknum eru í íþróttum til að hafa gaman, læra nýja hluti og vera með vinum sínum,“ segir Vanda Sigur geirsdóttir. Getuskipting er vandmeðfarin Fyrirlestur Vöndu Sigurgeirsdóttur, lektors við HÍ, um hvort banna eigi getuskiptingu í hópíþróttum hjá börnum vakti mikla athygli. Skiptar skoðanir eru um málið. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, fræðslustjóri KSÍ, telur að núverandi kerfi gangi vel. Vanda telur að of mikil áhersla sé lögð á keppni hjá þeim yngstu. Sigurður Elvar Þórólfsson ræddi við Vöndu og Sigurð. Tala máli barna sem hafa upp- lifað vanlíðan og niðurlægingu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.