Fréttablaðið - 01.12.2012, Qupperneq 59
Þjóðir heims hafa á vettvangi Sameinuðu þjóðanna
samþykkt ályktun um að rétturinn til hreins drykk jar-
vatns og hreinlætis teljist til almennra mann réttinda
– enda vatn grundvallarforsenda lífs og heilsu.
Hjálparstarf kirkjunnar stendur að vel skipulögðum
aðgerðum, þar sem vatn skortir, í fullu samstarfi við
fólk sem þar býr – fólk sem kallar eftir réttindum
sínum. Á verkefnasvæðum hefur rigning brugðist og
grunnvatn endurnýjast þá ekki. Vatn þarf að sækja um
æ lengri veg, oft í staðna polla með gruggugu vatni.
Brunnar eru boraðir eða handgrafnir, vatnstankar og
vatnsþrær gerðar til að safna rigningarvatni.
Vatnsnefndir annast viðhald og miðla fræðslu um
hreinlæti. Vatn í næsta nágrenni eykur menntunar-
möguleika stúlkna, það er víðast í verka hring þeirra að
sækja vatn, þegar langt er að fara missa þær af
skólanum. Þegar minni tími fer í þetta verkefni komast
þær í skóla. Kamrar eru reistir og um leið frætt um
hreinlæti og smitleiðir sjúkdóma. Pumpur settar upp
fyrir áveitur. Fræ nýrra og þurrkþolnari tegunda, tól
og kennsla eru hluti af verkefninu. Einnig geitur og
hænur. Skepnur er hægt að halda þegar vatnsöflun er
örugg. Tað skilar næringu í jarðveginn. Umframafurðir
má selja og kaupa fyrir nauðsynjar eða kosta
skólagöngu barna. Öll vatnsöflun er samábyrgð
Hjálparstarfsins og fólksins á svæðinu. Þátttaka þess
er forsenda varanlegs árangurs, að fleiri fái að njóta
þessara mannréttinda.
Með þínum stuðningi er hægt að fjölga þeim sem hafa
aðgang að hreinu vatni, bæta lífsafkomu og heilsu á
þurrum svæðum í Úganda, Malaví og Eþíópíu. Taktu
þátt í jólasöfnun Hjálparstarfs kirkjunnar, greiddu
valgreiðslu í heimabanka, gefðu gjöf á framlag.is eða
leggðu inn á söfnunarreikning: 0334-26-50886, kt.
450670-0499.
Eþíópía
- Vatnsþrær gerðar.
- Bændur þjálfaðir til að greina og lækna helstu
búfjársjúkdóma.
- Samráðsfundir til markvissra lausna.
- Kamrar gerðir, frætt um gildi þeirra.
- Fræðsla um vernd og nýtingu jarðvegs og vatns.
- Nýjar þreskivélar spara vinnu.
- Þjálfun fyrir opinbera starfsmenn til að styðja við íbúa.
Malaví
- Brunnar grafnir og gert við gamla.
- Umsjónarmenn þjálfaðir til að halda við brunnum.
- Pumpur settar upp fyrir áveitur.
- Kamrar, vaskar og fræðsla til að breyta hrein-
lætisvenjum.
- Fundir og námskeið fyrir íbúa og opinbera starfs-
menn til að greina vatnsvandamál og sjálfbærar
lausnir.
- Leiðtogaþjálfun, fræðsla um vatn og vatnsvernd.
- Geita- og hænsnarækt efld.
Úganda
- Vatnstankar settir upp við hús fyrir rigningarvatn af
þökum.
- Kamrar og vaskar gerðir.
- Eldhús reist við íbúðarhús til að halda matargerð
aðskilinni og auka hreinlæti.
Mannréttindi að hafa aðgang að hreinu vatni
Margt smátt ... – 3
Frá Úganda.
Frá Malaví.
Frá Eþíópíu.