Fréttablaðið - 01.12.2012, Side 106

Fréttablaðið - 01.12.2012, Side 106
1. desember 2012 LAUGARDAGUR| HELGIN | 78 Viltu ekki fara frá þessum manni? Setningin skellur á hlustunum; hún heyrir hvað amma segir en hverju á hún að svara? Jú? Nei. Hún getur ekkert sagt. Bara horft í gaupnir sér eins og þegar hún var lítil og hafði gert eitthvað ógurlegt af sér. Ég skil bara ekki hvernig þér datt í hug að giftast honum. Ég skil ekki einu sinni hvern- ig þú getur kysst hann, hvað þá meir, segir amma og horfir sorgmædd á dótturdóttur sína sem situr andspænis henni. Álút með svartan hárflóka ofan í augun sem ljómuðu þegar hún var barn en eru ekki einu sinni brún lengur heldur sokkin ofan í doða, grá slikja liggur yfir þeim og húðin er líka grá- leit, á vöngunum og undir hökunni grillir í bólur. Hún hefur svínfitnað á örskömmum tíma, brjóstin þrýsta á stuttermabolinn sem er merktur bjórverksmiðju í Tékklandi. Amma hennar hélt alltaf að hún hefði bein í myndugu nefinu en meira að segja nefið hefur skekkst, stelpan gekk á ljósastaur, sagði hún og virtist segja satt, hvernig sem hún fór að því. Viðkvæðið þessa dagana er að hlutir gerist bara. Svosem við því að búast að hún segði það líka núna. Eyju finnst hún heyra hugsanir ömmu sinnar, svo fastráðin í að skrifa skáldsögu einn daginn að hún hreiðrar um sig í höfðum annarra og hrifsar til sín hugsanir þeirra. Þannig engist hún um af áhyggjum ömmu sinnar af sjálfri sér þangað til augnaráð gömlu konunnar verður óbærilegt. Þetta gerðist bara, stynur hún loks og kyngir hratt. Hlutir gerast ekki bara, Eyja mín. Ó jú. Jú jú jú, hlutir gerast bara. Hún hefur varla gleymt snjóflóðunum fyrir vestan. Þau gerðust bara. Slys gerast, segir amma í góðlátlegum viskutón. En hitt ákveður maður. Hitt? Við erum ákvarðanirnar sem við tökum. Þú ert ósköp góð stúlka, þú tekur bara alltaf rangar ákvarðanir. Viltu meira te? Já, takk, segir Eyja og gjóar augunum á handtösku ömmu sinnar; hún stendur á borðsendanum og minnir á bísperrtan kött sem bíður færis. Augnaráðið fer ekki framhjá ömmu hennar þó að hún sé í miðju kafi að skenkja te í rússnesku teglösin. Hún fyllir þau af rjúkandi heitum vökva, bætir mjólk út í annað glasið og stjakar því, ásamt kúfuðu sykurkarinu, í átt til Eyju áður en hún strýkur hendi laust yfir nýju lagn- inguna. Hvítt hárið bylgjast í öldum yfir laglegu en svipsterku andliti með djúpum spékoppum og augum sem skipta litum; þau verða mógrá í dagsbirtunni og ljóma af ánægju með hárgreiðslukonuna niðri í sveit, álíka bersögul um tilfinningar og augun í unglingsstelpu þrátt fyrir myndugt fasið. Hún lítur á handtöskuna og þaðan á dóttur- dóttur sína. Segir: Ég vil gjarnan hjálpa þér að taka góða ákvörðun. Nú? Amma tyllir gleraugum með gylltri umgjörð á nefsoddinn og grípur töskuna. Stingur hendinni ofan í leðrið; þessari kunn- uglegu hendi með lifrarblettina á handarbak- inu og fölbleikan lófa eftir uppvask í hálfa öld, rauðmálaðar neglur og gullhring með fjólu- bláum hnullungi á baugfingri. Eyja fylgist með henni gramsa í veskinu með olíumál- verkið hans Asger Jorn í bakgrunni: sjálf staðfestan í annars óreiðukenndum heimi. Hún dregur upp samanbrotinn vasaklút, þerrar munnvikin og leggur hann frá sér, síðan dregur hún upp hnausþykkt umslag. Setur það á indverska borðdúkinn með vín- rauða munstrinu og lítur í augu dótturdóttur sinnar um leið og hún ýtir því mjúklega í átt- ina til hennar, eins og Sikileyingur í vafasöm- um erindagjörðum, og segir: Þú færð þetta í gjaldeyri, ef þú ferð. Hvað er þetta? Hundrað þúsund krónur. Ég tók þær út hjá henni Gullu þegar ég fór niður í sveit að ná í kjúkling handa þér. ●●● Augun fljóta þegar hann horfir á hana. Ég gerði ekki ráð fyrir að þú gætir borgað húsaleiguna svo ég sagði íbúðinni upp, segir hún. Hann lyftir brúnum. Það var ekki einu sinni búið að borga þennan mánuð svo fyrir- framgreiðslan brúar hann. Og hvað? Ég reyndi að segja þér það í gær, heldur hún áfram. Ég ætla að skreppa til Svíþjóðar. Skreppa? Hún fitlar við tannburstann. Segir síðan já. Hún ætli að skreppa þetta aðeins. Verða brún og skrifa sögu. En síðan komi hún aftur og þá geti þau fundið nýja íbúð. Ábyggilega miklu betri en þessa. Blessuð góða, vertu einlægari við okkur bæði, hlær hann en hláturinn fjarar út í kjökri. Blóðsprengd augun stara ráðvillt á hana. Eins og þau hafa alltaf gert, frá því hún slysaðist í fyrsta skipti heim með honum eftir ball og hann greip fyrir andlit sér þegar hún fór daginn eftir og sagðist deyja ef hún kæmi ekki aftur. Hún trúði honum. Hún bítur á jaxlinn og segir: Ég er einlæg. Hann hlær ennþá hærra. ●●● Hættu að hlæja, biður hún. Hann þagnar. Horfir á hana, bíður átekta. Ég, segir hún. Já? Ég þarf að komast burt til að hugsa. Því ég er búin að vera svo hrædd. Hver er ekki hræddur? Manstu, þegar handrukkarinn kom? Þú sagðir mér bara frá honum. En hann kom að hitta þig. Tvisvar. Hann kemur ekki aftur. Hvernig get ég vitað það? Allt í einu grípur hann utan um hana, hratt og klunnalega. Hvíslar að hann lofi því að þessi náungi komi aldrei aftur. Hann skuli sjá til þess. Bara ef … Eyja mín? Eyja rífur sig frá honum. Á miðri skörinni stendur amma hennar með djúpa áhyggju- hrukku og starir á Garrann. Hann drúpir höfði. Snýst um sjálfan sig, bosmamikill í skítugum kraftgalla og stingur pípunni hratt ofan í vasann áður en hann býður góðan daginn. Góðan daginn! segir amma. Eruð þið að kveðjast? Ætli það megi ekki segja það, svarar Garr- inn og mjakar sér nær veggnum þegar hún tekur sér stöðu andspænis honum, í dökk- blárri sumarkápu með hatt í stíl. Það stendur fjöður upp úr hattinum sem gefur henni vald- mannslegt yfirbragð. Ætlaðir þú líka að laga til? tafsar Eyja. Ég er komin til að sækja gardínurnar sem ég gaf þér, svarar amma hennar. Það er best að ég geymi þær. Varstu nokkuð búin að taka þær niður? Eyja deplar augunum hratt. Hvar eru gard- ínurnar? Hún bara steingleymdi þeim. Setti pokann einhvers staðar og ætlaði alltaf en … Eyja mín, ítrekar amma hennar. Ég er að tala við þig. Eyja kinkar ört kolli. Já, pottþétt, tafsar hún áfram. Örugglega. Hvað áttu við með því, elskan? Ætli ég sé þá ekki bara farinn, segir Garr- inn hæglátur. Nei. Bíddu aðeins! Þú þarft að tala við ömmu þína. Bíddu aðeins, amma! Amma og Garrinn horfa bæði spyrjandi á hana sem varpar öndinni léttar þegar Skíða- drottningin stendur skyndilega í dyragætt- inni … Amma eða Garrinn hvort á að ráða? Í bók Auðar Jónsdóttur Ósjálfrátt segir frá Eyju, ungri konu í djúpum vanda. Af (næstum því) kurteisi tók hún helmingi eldri mann og óttalegan vandræðagepil upp á sína arma og situr föst. Í stórfjölskyldunni er merkilegur afi, gallaðir en heillandi foreldrar og óútreiknanleg yngri systkini en kletturinn er amman í stóra hvíta húsinu, höfuðandstæðingur eiginmannsins. SAMRÝMDAR Auður Jónsdóttir og amma hennar Auður Laxness á góðri stundu. Skáldsaga Auðar, Ósjálfrátt, er sjálfsævisöguleg og amma hennar leikur þar stórt hlutverk. Ósjálfrátt Höfundur: Auður Jónsdóttir Útgáfa: Mál og menning Fjöldi síðna: 381
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.