Fréttablaðið - 01.12.2012, Page 116

Fréttablaðið - 01.12.2012, Page 116
1. desember 2012 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 88TÍMAMÓT Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. „Þetta var mikill heiður – alveg yndis- legt,“ segir Janne Sigurðsson, forstjóri Fjarðaáls, glaðlega um þá upplifun að taka við alþjóðlegum gullverðlaunum fyrir störf sín og stjórnun hjá Fjarða- áli, svokölluð Stevie-verðlaun. „Ég tók við forstjórastöðunni 1. janúar í ár en hef unnið sem framkvæmdastjóri fyrir Fjarðaál í sex og hálft ár, fyrst í upplýs- ingatækni, svo framleiðsluþróun, síðan í kerskála og síðast fyrir alla framleiðsl- una.“ Hún hlær þegar hún er spurð hvað hún ráði nú yfir mörgum. „Ég held það sé nú frekar spurningin um hversu margir ráða yfir mér! En hér hjá Fjarðaáli eru 500 starfsmenn og þar fyrir utan eru um 300 verktakar hjá okkur dags daglega, það er fólk sem sér um mötuneyti og þrif, verkfræð- ingar, framleiðslustarfsmenn og iðnað- armenn.“ Janne er dönsk að uppruna, nánar tiltekið frá Álaborg og er menntaður stærðfræðingur og tölvuverkfræðingur. Hún kom fyrst til Íslands fyrir 24 árum til að vinna í fiski. „Þá hitti ég hann Magnús Sigurðsson sem ég er gift í dag. Saman eigum við tvö börn, Tennu og Víking, og síðan í síðustu viku líka eitt barnabarn sem er langstærsta fréttin í mínu lífi á þessu ári,“ segir hún ánægð. Hún kveðst hafa flutt með fjölskyldunni hingað til lands árið 2005 og byrjað á að hjálpa Magnúsi að stofna fyrirtæki, setja upp heimasíðu og sjá um bókhald. Hefði hún trúað því þá að hún yrði í þessari stöðu í dag? „Ónei, ekki aldeil- is. Ég vissi ekki einu sinni þá hvernig ál var búið til. Setti ál bara í samband við bílaiðnað og niðursuðudósir.“ Skrifborðið hennar Janne er í opnu vinnurými og þannig vill hún hafa það. „Það gæti enginn lokað mig inni í ein- hverju herbergi. Þá væri ekki jafn gaman að koma til vinnunnar á hverjum degi,“ segir hún glaðlega. „Það er bara þegar maður vinnur í teymi sem maður getur gert góða hluti og langbestur árangur næst þegar konur og karlar, ungt fólk og eldra fólk vinnur saman. Einu sinni var ég deildarstjóri í fyrir- tæki úti í Danmörku og þurfti að hírast inni í pínulítilli skrifstofu. Það er versti tími í vinnu sem ég man eftir. Ég þarf að hafa fólk í kringum mig.“ Spurð um lengd vinnudagsins svar- ar hún. „Auðvitað klára ég ekki alltaf á réttum tíma á daginn, ég verð alveg að vera hreinskilin með það. En ég sé það ekki sem vandamál eða ókost. Það skipt- ir ekki svo miklu máli fyrir mig hvort ég er í fríi eða að vinna, ég geri eitthvað á hverri einustu klukkustund sem mér finnst skemmtilegt. Þannig hefur það verið alla daga síðan ég byrjaði hér og mér finnst ég mjög heppin.“ Eitt af því sem nefnt var í rökstuðn- ingi fyrir gullverðlaununum var að Janne hefði náð miklum árangri í að auka starfsánægju í Fjarðaráli. Hún kannast við að samkvæmt könnunum hafi ánægja starfsmanna þar aukist um 28 prósent á síðustu tveimur árum. „En það er ekkert sem ég geri ein,“ segir hún ákveðin. „Og þessi verðlaun eru ekki fyrir neitt sem ég hef gert ein, heldur við öll hér í fyrirtækinu. Það er ekki spurning.“ gun@frettabladid.is Eitthvað skemmtilegt á hverri klukkustund Janne Sigurðsson, forstjóri Fjarðaáls, hlaut nýlega Stevie-gullverðlaunin sem forstjóri ársins í hópi kvenna í atvinnurekstri í Evrópu, Mið-Austurlöndum og Afríku. Í KERSKÁLANUM „Það er bara þegar maður vinnur í teymi sem maður getur gert góða hluti og langbestur árangur næst þegar konur og karlar, ungt fólk og eldra fólk vinnur saman,“ segir Janne. Í jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls er stefnt að því að helmingur starfsmanna fyrir- tækisins verði konur. Nú eru þær 23% starfsmanna. Janne Sigurðsson forstjóri telur það einsdæmi og segir horft til þess utan úr heimi með aðdáun hversu margar kon- ur eru hjá Fjarðaáli í öllum störfum, hvort sem er í framkvæmdastjórn, framleiðslu- störfum, sem iðnaðarmenn eða á skrifstofunni. Jafnréttisstefnan Þökkum samúð og vinarhug vegna andláts móður okkar, AUÐAR SVEINSDÓTTUR LAXNESS. Guðný Halldórsdóttir Sigríður Halldórsdóttir og fjölskyldur. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför okkar ástkæru eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu, SIGRÚNAR HALLDÓRSDÓTTUR Vesturströnd 15, Seltjarnarnesi, sem andaðist þann 18. nóvember og jarðsett var frá Grensáskirkju þann 26. nóvember. Gísli Gíslason Ásta Gísladóttir Halldór Hrafn Gíslason Jóhanna Ýr Jónsdóttir Heba Sigríður, Gísli Hrafn og Sigrún Ýr Halldórsbörn Elskulegur sambýlismaður minn, vinur okkar, bróðir og frændi, GUNNAR ÞÓRIR HANNESSON frá Hækingsdal í Kjós, andaðist á Sjúkrahúsinu á Ísafirði þann 17. nóvember. Útförin fer fram frá Víðistaða- kirkju í Hafnarfirði þann 30. nóvember kl. 13.00. Guðrún Ásgeirsdóttir börn, tengdabörn, barnabörn, systkini og frændsystkini hins látna. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, HELGU PÁLSDÓTTUR frá Hnífsdal, Hlíð 2, Ísafirði. Guðrún Skúladóttir Páll Skúlason Jóhanna Einarsdóttir Guðfinna Skúladóttir Kristján Guðmundsson Helga Skúladóttir Hilmar Sigursteinsson Sólveig Gísladóttir og aðrir aðstandendur. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, JÖRGEN BERNDSEN trésmiður, frá Skagaströnd, lengst af búsettur í Hlaðbrekku, Kópavogi, síðast til heimilis á Hjúkrunarheimilinu Hrafnistu í Kópavogi, andaðist aðfaranótt sunnudags 25. nóvember. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 3. desember kl. 13.00. Sigurbjörg Lárusdóttir (Stella) Bára Berndsen Fritz Berndsen Indíana Friðriksdóttir Lára Berndsen Jón Karl Scheving Bjarki Berndsen Regína Berndsen Bragi Þór Jósefsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HALLDÓRU JÓHÖNNU ÞORVALDSDÓTTUR fv. stöðvarstjóra Pósts og síma Reykholti. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunar- og dvalarheimilisins Brákarhlíðar fyrir einstaka umönnun. Þórir Jónsson Hulda Olgeirsdóttir Þorvaldur Jónsson Ólöf Guðmundsdóttir Eiríkur Jónsson Björg Guðrún Bjarnadóttir Kolbrún Jónsdóttir Haraldur Gunnarsson barnabörn og barnabarnabörn. Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Alúð - virðing - traust Áratuga reynsla Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, BRAGA STEINARSSONAR Löngulínu 10, Garðabæ. Ríkey Ríkarðsdóttir Steinarr Bragason Kristín Thoroddsen Björk Bragadóttir Kolbeinn Arinbjarnarson Eiríkur Bragason Guðbjörg Jóna Jónsdóttir og barnabörn.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.