Fréttablaðið - 01.12.2012, Page 140
1. desember 2012 LAUGARDAGUR| SPORT |
SKYLMINGAR Íslandsmeistaramótið í
skylmingum með höggsverði fór fram
um síðustu helgi. Hilmar Örn Jónsson,
átján ára FH-ingur, reyndist sigursælasti
keppandinn í karlaflokki annað árið í röð
en hann bar sigur úr býtum í öllum þeim
flokkum sem hann tók þátt í – opnum
flokki, U-21 og liðakeppni. Guðrún
Jóhannsdóttir, SFR, bar sigur úr býtum í
kvennaflokki eftir að hafa lagt Þorbjörgu
Ágústsdóttur að velli í úrslitum. Þorbjörg
náði reyndar bronsi í opnum flokki og
náði þar bestum árangri kvenna.
Hilmar Örn vann alla sömu flokka í
fyrra, sem og U-18 ára karla, en hann er
ekki lengur gjaldgengur í hann. Í opnum
flokki hafði hann betur gegn liðsfélaga
sínum úr FH, Gunnari Agli Ágústssyni.
Það reyndist þó ekki erfiðasta viðureign
hans um helgina.
„Ég lenti í meiri vandræðum í úrslit-
unum í U-21. Þar var ég undir gegn Guð-
jóni Ragnari [Brynjarssyni, FH] en náði
að snúa bardaganum mér í vil rétt í lokin.
Þá fór hann að gefa eftir og nýtti ég mér
það,“ sagði Hilmar Örn í samtali við
Fréttablaðið.
Hilmar Örn er nú staddur í Þýska-
landi þar sem hann er að undirbúa sig
fyrir heimsbikarmót unglinga sem fer
fram þar í landi um helgina. Gunnhildur
Garðarsdóttir, SFR, er með í för en hún
bar sigur úr býtum í U-21 flokki kvenna
um helgina.
„Markmiðið er að ná lengra á alþjóða-
mælikvarða og stóra takmarkið er að
komast á Ólympíuleikana í Brasilíu árið
2016,“ segir Hilmar Örn. „Ég keppti
á heimsbikarmóti í Úkraínu fyrir
hálfum mánuði og gekk það vel. Nú
ætla ég að gera enn betur, en fram
að móti fáum við að æfa með
félagi í Dormagen sem er eitt
besta skylmingafélag heims.
Það er frábært tækifæri fyrir
okkur.“
Hilmar Örn færði sig
nýverið upp um aldursflokk í
alþjóðlegum keppnum, úr U-18
í U-21. Hann segir því erfitt
að meta nú hvar hann standi
meðal jafningja í heiminum.
„Ég náði 27. sæti á HM U-18 á
sínum tíma sem var mjög gott.
Ég stefni þó enn hærra og vonandi
verður það hægt nú þegar ég fæ
oftar að fara út og keppa. Ef ég fæ
fjárhagslegan stuðning þá vil ég ná
sem lengst.“ - esá
Æfa með einu besta félagi heims
Hilmar Örn Jónsson varð þrefaldur Íslandsmeistari í skylmingum.
HILMAR ÖRN JÓNSSON
Varð þrefaldur Íslandsmeistari.
FÓTBOLTI Selfyssingurinn Jón Daði
Böðvarsson verður næsti atvinnu-
maður Íslands í knattspyrnu. Þessi
efnilegasti leikmaður Pepsi-deild-
ar karla síðasta sumar er búinn að
semja við norska úrvalsdeildar-
félagið Viking til þriggja ára.
„Ég er búinn að samþykkja samn-
inginn og fer svo út til Noregs á
fimmtudaginn í læknisskoðun. Ég
skrifa svo undir samning í kjölfar-
ið,“ sagði Jón Daði kátur er Frétta-
blaðið náði tali af honum í gær.
Jón Daði fór til reynslu til Vik-
ing og fleiri félaga eftir að tíma-
bilinu lauk hér heima og þessi tví-
tugi strákur var mjög hrifinn af því
sem hann sá hjá félaginu.
Fullkominn staður til að byrja
„Það eru frábærar aðstæður þarna
og virkilega flottur klúbbur. Mér
leið eiginlega strax eins og ég væri
heima hjá mér þarna. Þetta er líka
fullkominn staður til þess að hefja
atvinnumannaferilinn. Ég hef alltaf
stefnt að því að komast út í atvinnu-
mennsku og nú er draumurinn að
verða að veruleika,“ sagði Jón Daði
en hann hittir fyrir landsliðsmann-
inn Indriða Sigurðsson hjá Viking.
„Það er flott að hafa Indriða þarna.
Hann er algjör fagmaður. Það er
gott að hafa Íslending á svæðinu
og hann á örugglega eftir að hjálpa
mér mikið. Hann gerði það er ég fór
út um daginn.“
Jón Daði er klár á því að hann
sé að velja rétta félagið og að hann
muni fá að spila mikið hjá nýja
félaginu.
„Þeir eru mjög ánægðir með mig
og hafa mikla trú á mér. Þjálfar-
inn segist vera spenntur fyrir mér.
Þetta verður aldrei auðvelt en ég
hugsa að þetta muni ganga vel. Ég
er til í að leggja mikið á mig.“
Hafnaði Start
Eins og áður segir höfðu fleiri
félög samband og Jón Daði fékk til
að mynda tilboð frá Start sem þeir
Matthías Vilhjálmsson og Guð-
mundur Kristjánsson leika með.
„Start bauð mér samning sem ég
hafnaði. Það var svo áhugi frá fleiri
félögum en ég var ekki kominn með
nein tilboð frá þeim. Það var líka
þannig að ég þegar ég kom til Vik-
Leið strax eins og ég
væri heima hjá mér
Jón Daði Böðvarsson hefur sagt skilið við Selfoss og heldur í víking þar sem
hann mun spila með Viking í Noregi. Það var félagið sem hann vildi fara til enda
segir hann sér hafa liðið vel hjá félaginu um leið og hann kom þangað.
Í VIKING Jón Daði heldur út á fimmtudaginn að skrifa undir samning við Viking.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Breski spretthlauparinn og fyrr-
um Ólympíumeistarinn Darren
Campbell telur sig geta hjálpað
Fernando Torres. Frammistaða
Spánverjans með Chelsea undan-
farin tvö ár hefur valdið töluverð-
um vonbrigðum.
Torres hefur ekki skorað mark í
ensku úrvalsdeildinni í tæpar ell-
efu klukkustundir núna en margir
vonast eftir því að Rafa Benitez,
stjóri liðsins, geti kveikt neistann
hjá landa sínum líkt og hann gerði
hjá Liverpool á sínum tíma.
Campbell, sem aðstoðaði Torres
undir lok tímabilsins 2010-2011,
segist þurfa tvær vikur til þess
að koma Torres í sitt gamla góða
form.
„Ég gæti klárlega lagað hann.
Það þarf ekki að taka langan tíma
því strákarnir eru nú þegar í
frábæru formi. Því þarf ekki að
vinna í grunninum heldur er hægt
að einbeita sér að hraðanum,“
segir Campbell.
Campbell segir að Spánverjinn
hafi verið öskufljótur. Hann þurfi
hins vegar að finna sprengikraft-
inn á nýjan leik og lyftingar, í
takt við spretthlaupsæfingar, geti
hjálpað honum við leitina.
„Þess vegna lyfta spretthlaup-
arar lóðum. Til þess að auka
sprengikraftinn og hraðann,“
segir Campbell sem segir lykil-
atriði að vera afslappaður þegar
reynt sé að hlaupa hratt.
„Sjáið bara Gareth Bale. Hann
er öskufljótur en er fullkomlega
afslappaður og engin spenna í lík-
ama hans.“
Fernando Torres og félagar í
Chelsea sækja West Ham heim í
Lundúnaslag á dag.
Telur sig geta
lagað Torres
MARKAÞURRÐ Torres gengur illa að
skora mörk. NORDICPHOTOS/GETTY
Adam Örn Arnarson úr Breiða-
bliki og Daði Bergsson Þrótt-
ari hafa gengið til liðs við NEC
Nijmegen. Tvímenningarnir
skrifuðu undir tveggja og hálfs
árs samning við hollenska félagið
í dag.
Fótbolti.net greinir frá þessu
en leikmennirnir fóru fyrr á
árinu á reynslu til hollenska
félagsins og stóðu sig vel.
Íslensku félögin samþykktu til-
boð í kappana fyrr í mánuðinum
og því átti aðeins eftir að ganga
frá samningum við leikmennina
sjálfa.
Adam og Daði, sem báðir eru
fæddir árið 1995, hafa leikið
saman með yngri landsliðum
Íslands. Hjá Nijmegen hitta þeir
fyrir Guðlaug Victor Pálsson sem
hefur staðið sig vel með liðinu
undanfarnar vikur.
Íslendingar til
Nijmegen
Gareth Sout-
hgate, fyrrum
landsliðsmaður
Englands, telur
að leikmenn
myndu bjóða
samkynhneigða
knattspyrnu-
menn velkomna í búningsklefann.
Southgate tjáði sig í kjölfar þess
að Anders Lindegaard, markvörð-
ur Manchester United, lýsti því
yfir að samkynhneigðir þyrftu á
fyrirmynd í knattspyrnuheiminum
að halda.
Þrátt fyrir að stór nöfn íþrótta-
manna af hvoru kyni hafi komið
út úr skápnum undanfarin ár er
Justin Fashanu eini þekkti knatt-
spyrnumaðurinn sem opinberað
hefur samkynhneigð sína.
22 ár eru liðin síðan Fashanu
kom út úr skápnum en opinberun
hans vakti mikla athygli. Sorgleg-
ur endir var á sögu framherjans
sem framdi sjálfsmorð nokkrum
árum síðar.
„Það þarf einhvern nógu hug-
rakkan til að vera opinn og einlæg-
ur,“ segir Southgate um þann sam-
kynhneigða karlmann sem gæti
stigið stórt skref í heimi atvinnu-
knattspyrnumanna með því að
koma út úr skápnum.
„Leikmenn blanda geði við
önnur þjóðerni, kynþætti og trúar-
brögð þannig að ég sé enga ástæðu
fyrir því að samkynhneigð ætti að
vera vandamál í búningsklefan-
um,“ segir Southgate.
Hommar eru
velkomnir
ing hugsaði ég frá fyrsta degi að
þarna vildi ég vera. Ég er því eðli-
lega mjög ánægður með að hafa
komist að þar. Þetta er stökk en ég
tel mig vera tilbúinn í slaginn. Von-
andi hef ég rétt fyrir mér.“
Þó svo Jón Daði komi frá litlum
stað eins og Selfossi segir hann að
það sé ýmislegt sameiginlegt með
heimabænum og nýja staðnum.
„Þetta er auðvitað miklu stærri
bær en það er allt mjög þétt og
allir þekkjast vel þarna. Það er því
örugglega svipuð stemning þarna
og á Selfossi. Ég kann því vel.“
Jón Daði fer ekki einn út því kær-
astan hans fer með honum. Leik-
maðurinn er mjög ánægður með
það.
„Hún mun elda ofan í mig. Ég er
hræðilegur kokkur og það er því
gott að hún kemur með,“ sagði Jón
Daði léttur og hló við.
henry@frettabladid.is
Jón Daði Böðvarsson var með 4 mörk og 2 stoðsendingar
í fjórum leikjum Selfoss frá 12. ágúst til 2. september en
liðið náði í 10 af 12 stigum í boði á þessum þremur vikum.
4:2 sigur á Fram 2 mörk 1 stoðs. ML
4:0 sigur á Grindavík 1 mark 1 stoðs. ML
1:1 jafntefli við Breiðablik
1:0 sigur á KR 1 mark ML
ML= Maður leiksins hjá Fréttablaðinu
Magnaðar þrjár vikur
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Kletthálsi Reykjav.
Reykjanesbæ
Akureyri
Húsavík
Vestmannaeyjum
Asaki VERKFÆRI
ALB10DAS 10,8V Li-Ion
Bor/skrúfvél 1,4Ah 30Nm
14.890,-
ALM18DD 18V höggborvél
Li-Ion 2,8Ah 38Nm 2 hraðar
41.890,-
AR636 18V Skrúfvél
Ni-Cd 2,0Ah 158Nm
18.890,-
AV224 620W höggborvél
SDS & herðslupatróna
13.900,-
693 150W Pússvél AB
185mm93x
.890,-5
ALM14DF 14,4V Li-Ion
herðsluskrúfvél
2,8Ah 135Nm
36.890,-
ALM18DB 18V Li-Ion
orvél 2,8Ah / 38Nmb
39.990,-
ATH: Tvær rafhlöður,
taska og hraðvirkt
hleðslutæki fylgir
hverri hleðsluvél!
***** 5 stjörnu verkfæri
2012
22 leikir,
7 mörk,
4 stoð-
sendingar,
fiskaði víti.
kom að tólf
mörkum.
SPORT