Heimilisritið - 01.02.1944, Síða 22
með |>essu?" spurði Ke'stry óþol-
inmóður.
,,Þetta er leikfang, sem ég g;eti
trúað að Enston hefði gaman af",
sagði Andy. Hann horfði inn í
byssuhlaupið, tók í gikkinn og lét
hann ganga fram og aftur á víxl
með jöfnu millibili. Frá byssunni
heyrðist hljóð, sem líktist |>x-í að
hjól snerist inni í henni stutta
stund, eftir að tekið var í gikkinn.
Svo rétti hann Kestry byssuna og
hleypti enn af. Kestry starði inn
í lilaupið. og sá iðandi ljósglætu
inni í myrku hlaupinu. Hann sá
ofurlitla kvikmyndaræmu er sýndi
drenghnokka skjóta á grímubúinn
innbrotsþjóf. Þetta var skringilegt
leikfang — eftir tíu sektnndur
myrkvaðist lilaupið aftur.
„Gjöf Costellos handa litla syni
Enstons", sagði Andy rólega. —
„Hann fann hana sjálfur upp og
smíðaði hana líka. Þekkið þér ekki
vasaljósin, sem fundiu hafa verið
upp án rafgeymis? Ef þrýst er á
fjöður fer rafall í gang. Costello
hefur búið til lítinn rafal og látið
hann inn í hlaupið á þessari byssu.
Svo hefur hann tengt ofurlitla
filmu við hann. komið þessu í sam-
bandi við gikkinn og útbúið allt á
sem hagkvæmlegastan liátt. Þetta
er skemmtilegt leikfang, og þeir
hafa haft það með sér til Enstons.
Þegar hann gaf þeim afsvar um
að ganga í félag með þeiin. tóku
þeir fram leikfangið, og báðu.hanu
um að gefa svni sínum það. Eu
áður en þeir fóru skiptu þeir á þess-
ari byssu — sem er hættulaust leik-
fang — og annarri, sem var hlað-
in".
„En þeir hefðu getað átt á hættu
að það heföi verið sonur Enstons,
sem skaut sig", sagði Kestry..
,.0-nei. nei — þeir vissu. að Ens-
(ton myndi fara að leika sér að
henni, strax og hann kæmi upp.
Til vonar og vara minntu þeir liann
á byssuna um leið og þeir kvöddu.
Þannig vildi það nú til. Eg er nú
ekki annað en vesæll rithöfundur,
sem skrifa um glæpi og aflijúpun
þeirra. En blind hæna getur líka
fundið korn".
Kestry brosti fýlulega og gekk
að símanum.
__★___-
M E I H A T Ó B A K !
Garaall írskur sjómaður var einu siimi
spurður. livers lianu myndi óska sér, ef
hann ætti eina ósk.
Hann svaraði: ..Eu myndi óska mér
allt l>að púns og tóbak sem til er í heim-
inum".
„Segjum að ]>ú fengir ]>essa ósk upp-
lyllta". svaraði hinn. ..Hver væri næsta.
ósk þín?“
Sú ganili liugsaði sig um audartak og
sagði svo:
„Meira tóbak".
*
STAKA
Líklega gæti liðið betur
Lauga pósti og mér,
en eitt er víst, að okkur getur
ekki liðið verr. K. N.
20
HEIMILISRÍTtÐ