Heimilisritið - 01.02.1944, Qupperneq 26
Churchillsásjónu, en hann er bráð-
fyndinn og kann býsnin öll af gam-
ansögum og vísum. Þá eru Fred
Oeschner og kona hans, Dorothea.
Hann er hæglátur maður, en dug-
legur fréttaritari. Hún er Ijós-
hærð og lagleg, sískrafandi með
lágri, hásri röddu. Pierre Huss frá
I. N. S. er hreinn og beinn, vin-
gjarnlegur og metorðagjarn. Hann
kemur sér betur við nazistaleið-
togana en flestir aðrir. Guido
Enderis frá New York Times er á
sextugsaldri, en skartar ævinlega í
tildurslegum sportfötum og með
hárautt hálsbindi. Nazistana met-
ur hann lítils. Hann varð svo fræg-
wr að starfa hér sem amerískur
fréttaritari, eftir að við vorum
komnir í heimsstyrjöldina. A1 Ross
er aðstoðarmaður hans, fyrirferð-
armikill, syfjulegur og seinlátur, en
einstaklega ástúðlegur. Wally
Denel er frá Daily Neivs í Chicago,
*ngur maður og hæglátur, athugull
og Ijóngáfaður. Kona hans, Mary
Deuel, er lík honum og óvenju fag-
ureyg, bæði afar ástfangin. Sigrid
Schultz frá Chicago Tribune er
eini kvenfréttaritarinn í okkar
hópi, léttlynd og kát og alltaf vel
fréttafróð. Þá er Otto Tolischus,
sem er helzti maður í skrifstofu
New York Times, þótt hann sé
ekki skrifstofustjóri, margþættur
maður, djúpskyggn, námgjarn og
gjörhugull. Martha Dodd, dóttir
sendiherrans, kemur einnig oft,
lagleg og fjörug og stælugjörn.
Tveir amerískir fréttaritarar koma
sjaldan eða ekki. Það eru þeir
Louis Lochner frá A. P. og John
Elliot frá Herald Tribune í New
York. John er mjög duglegur og
lærður fréttaritari, en hann er
bindindismaður bæði á tóbak og
vín og mikill bókavinur, eins og
við ættum allir að vera.
New York,, 9. september.
Er heima í stuttu leyfi, og New
York er indæl. En mér finnst bless-
að fólkið allt of bjartsýnt á Evr-
ópumálin. Hér eru allir ákaflega
öruggir í þekkingu sinni og skoð-
unum.
New York, 16. september.
Fór um helgina með Nicholas
Roosevelt út á Long Island. Hafði
ekki uhitt hann síðan hann var
sendiherra í Buda-Pest. Hann var
svo niðursokkinn í að hugsa um
„einræði“ Franklin Roosevelts, eins
og hann kallaði það, að hann hafði
varla tíma til að ræða um Evrópu-
málin. Hann virtist mjög gramur
yfir þvi, að samkvæmt New Deal
lögunum mætti hann ekki rækta
kartöflur í gárðinum sínum og út-
listaði það út í yztu æsar, en ég
verð að játa, að ég var naumast
með á nótunum. Ég var að hugsa
um Abyssiníu og líkindin fyrir
styrjöld. Samt er hann mjög gáf-
aður maður. Ættingjar mínir tóku
24
HEIMILISRITIÐ