Heimilisritið - 01.02.1944, Síða 30
Hinum útlendu gestum hefur fund-
izt mikið til um. af hvílíkri rausn
og skörungsskap leikjunum er
stjórnað og a.lúðin hefur gengið
þeim til hjarta. Okkur, sem kom-
um frá Berlin, finnst raunar leik-
arabragur á henni. Og ég var svo
uppvægur af þessu, að ég bauð
nokkrum kaupsýslumönnum okk-
ai- til hádegisverðar og náði líka í
Douglas Miller verzlunarráðunaut
við amerísku sendisveitina og hinn
gjörfróðasta mann um þýzk mál-
efni. til þess að uppfræða þá. En
þeir fræddu hann um hlutina, og
hann kom varla orði að. Flestir
voru fréttaritararnir gramir yfir
grein Völkische Beohachter, þar
sem vitnað er í einn þeirra, Bircall
frá New York Times, um að eng-
inn hemaðarsvipur hefði verið á
Ieikjunum. Einkum var Westbrook
Pegler bneykslaður á þessu. Hann
var líka dálítið órólegur út af því
i kvöld, að Gestapo kvnni að tala
eitthvað við hann út af skrifum
hans. Ég held varla. „Ólymps and-
inn" mun tóra í hálfsmánaðar tíma
enn, og þá verður Pegler sloppinn
til Ítalíu.
Berlin, 25. febrúar.
Hef hcyrt, að Londonderry lá-
varður hafi komið hér í byrjun
mánaðarins, hitt Hitler, Göring
og flesta aðra nazistaforingja.
Leggst í mig, að hann hafi verið
í engum góðum erindum.
Berlin, 28. febrúar.
Neðri deild franska þingsins hef-
ur samþykkt sáttmálann við Rússa
með miklum meirihluta. Vandlæt-
ing mikil í Wilhelmstrasse. Fred
Oechsner segir, að þegar hann sá
Hitler fyrir fám dögum, hafi hann
verið með allmiklum áhyggjusvip.
Beriin, 5. marz.
Nazistar tala um það sín á með
al, að Hitler muni kalla saman
Ríkisþingið 13. marz sama dag-
inn og búist er við að efri deild
franska þingsins samþykki samn-«
inginn við Rússa. Þungt í lofti í
Wilhelmstrasse í dag, en ekki gott
að vita, hverra veðra er von.
Beriin, 6. marz á miðnætti.
Alls konar tröllasögur hafa geng-
ið í dag. Það eitt er víst, að Hitler
kallar saman Ríkisþingið um nón-
bil á morgun og stefnir til sín
sendiherrum Breta, Frakka, ítala
og Belga í fyrramálið. Þar sem
þetta eru Locamo ríkin er aug-
ljóst, að Hitler ætlar að afneita
Locarno-sáttmálanum, sem hann
sagði fyrir tæpu ári að Þýzkaland
mundi halda samvizkusamlega,
enda hef ég fengið pata af því frá
flokksmönnum hans. Ég get mér
líka til, og byggi það á ýmsu, sem
ég'komst að í dag, að Hitler múni
einnig ætfa að hervæða Rínarlönd-
in á ný, en þeir harðneita þessu í
Wilhelmstrasse. Ekki er víst, að
28
HEIMILISRITIÐ